Skólavarðan - 01.03.2009, Side 3

Skólavarðan - 01.03.2009, Side 3
3 FORMANNSPISTILL Formaður og varaformaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ skiptast á um að skrifa formannspistla í Skólavörðuna. Félögin á bak við formannspistlana eru: Félag framhaldsskólakennara (FF), Félag grunnskólakennara (FG), Félag leikskólakennara (FL), Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félag tónlistarskólakennara (FT), Skólastjórafélag Íslands (SÍ). Ný lög um menntamál og erfiðar aðstæður á Íslandi SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 Enn hafa aðstæður í þjóðfélaginu breyst verulega frá því að ég sendi Skólavörðunni nokkrar línur síðast. Nú hrærumst við í nýju lagaumhverfi. Ekki eru allir sammála um ágæti nýju laganna, kennarar hefðu vafalaust kosið að meira tillit væri tekið til umsagnar Kennarasambandsins um lagafrumvarpið. Sumir segja þó að sjaldan hafi jafn mikið fé verið ætlað í undirbúning að framkvæmd nýrra laga og nú er því ástæða til að láta hendur standa fram úr ermum og nýta nýja möguleika menntun í landinu til framdráttar. Nokkrir framhaldsskólar hafa þegar hafið vinnu að breytingum í sínum ranni. Frá hendi ráðuneytis menntamála er mælst til að vinnan geti nýst á milli skóla þannig að ekki sé unnið í öllum skólum að sömu málunum, mismunandi uppbygging og námsframboð hlýtur jú að kalla á mismunandi lausnir. Nokkur verkaskipting hlýtur þó að nýtast vel og auðvelda nauðsynlega samræmingu á milli skóla. Þessa dagana er svo námskeið í gangi sem hjálpar fólki að opna augun fyrir möguleikum breyttrar hugsunar. Þeir þátttakendur sem ég hef heyrt í bera lof á námskeiðið og vænta mikils af þeirri nýju hugsun sem þar er kynnt og leiðbeint við að framkvæma. Aðstæður í umhverfi okkar hafa væntanlega ekki áhrif á efnislegar breytingar sem nýju lögin kalla á. Hugsanlega hafa þær þó einhver áhrif á tímasetningar breytinga. Í lok janúar síðastliðins sótti ég mjög áhugaverða ráðstefnu hagsmunasamtaka í málm- og véltækniiðnaði um stöðu hans og tækifæri í framtíðinni. Það fyrsta sem vakti athyglina var nafn ráðstefnunnar: „Björt framtíð málm- og véltækniiðnaðar á Íslandi ef ...“ Fyrst var litið til baka, á þróunina nokkuð aftur á síðustu öld. Samkeppnishæfni var eitt hugtakið en íslenskir iðnaðarmenn hafa gjarnan talist eftirsóttir starfskraftar. Á sumum sviðum hefur íslenskum iðnfyrirtækjum í málm- og véltæknigeiranum líka tekist að hasla sér völl erlendis, jafnvel í fjarlægum heimsálfum. Staða okkar hefur þó á sumum sviðum átt mjög undir högg að sækja og samkeppnishæfni okkar telst hafa hrakað. Þar er því miður ekki aðeins um að kenna ódýrara vinnuafli annars staðar frá. Alþjóðlegar menntunar- og gæðakröfur gera okkur erfitt fyrir á sumum sviðum. Rifjum aðeins upp heiti ráðstefnunnar: „Björt framtíð ... á Íslandi ef ...“. Framsögumenn töluðu um stöðuna og voru allir sannfærðir um að framtíðin er björt. Talið snerist reyndar talsvert um þetta „ef“ í enda ráðstefnuheitisins. „Tækifærin blasa við,“ sögðu menn. Það þarf þó að vinna að því að eyða „ef“-inu. Hvað þarf til? Ekkert iðnvætt þjóðfélag kemst af án vel menntaðra iðnaðarmanna. Eitt það fyrsta sem nefnt var er það sem ótal framámenn hafa einnig talað um á tyllidögum og jafnvel nefnt sem eitt af brýnustu verkefnum í íslenskum skólum: Að stórefla iðn- og tæknimenntun. Fyrirtækin sárvantar fleiri góða iðnaðarmenn. Iðn- og starfsmenntun þarf að verða meira aðlaðandi fyrir konur. Menn sjá sóknarfærin um allt, ný lög um menntamál opna ótal nýjar dyr. Auka þarf fjölbreytni í námsframboði. Fyrirtækin þurfa að vera virkari í samvinnu við skólana. Efla þarf kynningarstarf allra hagsmunaaðila meðal ungmenna. Iðnaðarstörf eru ekki lengur sama eðlis og fyrir fáeinum áratugum, tæki og aðbúnaður hafa stórbatnað. Mörg störf sem áður voru óhreinleg eru nú unnin í hvítum sloppum í dag. Möguleikar á framhaldsmenntun hafa farið sívaxandi. Þar opna ný lög enn nýjar dyr. Já, það voru engar kvartanir eða barlóm að heyra hjá málm- og véltæknimönnum. Ég játa að ég er sjálfur sprottinn úr þeim geira og langar því að koma þessum málum á framfæri. Ég ítreka að tækifærin eru handan við hornið. Það sem fyrst og fremst þarf að gera er það sama og ætíð er talað um þegar þrengir að í efnahag þjóðarinnar: Að efla og efla og efla menntun. Ég óska þess að okkur Íslendingum auðnist að nýta okkur möguleika nýrra laga fyrir menntastofnanir við að vinna okkur í gegnum erfiðleikana sem að okkur steðja. Guðmundur Guðlaugsson formaður FS. Guðmundur Guðlaugsson formaður FS. Lj ós m yn d f rá h öf un d i

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.