Skólavarðan - 01.03.2009, Blaðsíða 4
4
LEIÐARI
Forsíðumynd: Leikskólinn Kópahvoll, nemendur í Ugludeild.
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Ísafold
Skólavarðan, s. 595 1120 (Kristín) Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
EFNISYFIRLIT
Formannspistill: Ný lög um menntamál og erfiðar aðstæður á Íslandi 3
Leiðari: Pössum vel upp á skólann 4
Gestaskrif: „Vits er þörf þeim er víða ratar“ 5
Kjaramál: Veikindaréttur 7
eTwinning: Furugrund hreppti annað sætið 8
Skólaverkefni umboðsmanns barna: Hvernig er að vera barn á Íslandi? 10
Nýtt starfsheiti: Sérgreinastjórar í leikskólum 11
Ársfundur KÍ: Mótun nýs samfélags, setningarávarp Eiríks Jónssonar 12
Ársfundur skólamálaráðs: Gripið niður í nokkra fyrirlestra 14
Kennaraviðtalið: Inga H. Andreassen 18
Stærðfræði: Bilið brúað milli leikskóla og grunnskóla 21
Stærðfræði: Áhugaverð skýrsla um stærðfræðikennslu ungra barna 23
Ritdómur: Reynsla í bernsku, tilfinningaleg vellíðan og námsárangur 26
Fréttir og tilkynningar: Ályktun FF, námsstyrkur, fæðingarstyrkir o.fl. 27
Smiðshöggið: Fáir verða fullnuma í sjálfum sér 28
KÍ: Réttur atvinnulausra félagsmanna 30
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið
Kristín Elfa Guðnadóttir
Lj
ós
m
yn
d
:
K
ri
st
já
n
Va
ld
im
ar
ss
on
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009
Nú er það svart maður, segjum við og brettum upp ermar. Við höfum
gert ótæpilega grín að okkur sjálfum fyrir „þetta reddast“ en nú eins
og oft áður kemur æðruleysið sér vel. Dugnaður og æðruleysi. Það
vantar tvennt í þennan kokteil. Við eigum nóg af öðru: Samkennd.
Hvað er þetta eina sem upp á vantar? Það er að koma okkur saman
um leiðir. Kosningar eru handan hornsins en almenningur bíður ekki
andaktugur, það hefur sýnt sig að hann lætur ekki segja sér fyrir
verkum. Og málin þola enga bið. Við viljum réttlæti og við viljum
jöfnuð.
Þetta er einmitt inntak skólakerfisins. Þar hefur hvað bestum
árangri verið náð í að hindra uppgang misréttis og spillingar. Þar
hefur heppnast hvað best að koma í veg fyrir að gróðahyggja yfirtaki
fagmennsku. Þar hafa markaðssjónarmið mátt víkja æ ofan í æ fyrir
öðrum gildum, svo sem að gæði skipti meira máli en magn og að
menntun taki tíma. Auðvitað hefur það ekki alltaf tekist. En í flestum
tilvikum hafa kennarar, sem eru nokkuð íhaldssöm stétt, spyrnt við
fótum þegar nýfrjálshyggjan hefur bankað upp á: Nei, þú kemur ekki
hér inn fröken.
Þegar við komum okkur saman um leiðirnar verðum við að gæta
skólans. Að þangað komist allir inn. Að þar sitji allir við sama borð,
háir sem lágir. Að þar fái allir frið til að læra, leyfi til að hlæja og
rúm til að vera til.
Alþjóðasamband kennara (Education International, EI) sendi
nýlega frá sér aðgerðaáætlun fyrir menntun og hagkerfi heimsins.
Sýn EI er þessi:
• Menntun er almannaeign, ekki markaðsvara.
• Menntun er miðlæg á ýmsa lund í samfélögum okkar, hún hefur
mikla félagslega og hagræna þýðingu, hún leikur aðalhlutverk í
að byggja upp og viðhalda lýðræði, hún leggur sitt af mörkum til
fullnægju og velferðar einstaklinga og þróunar nærsamfélagsins,
sem og hagkerfisins. Menntun á að stuðla að jafnrétti, vinna gegn
misrétti og efla skilning milli fólks með ólíkan bakgrunn.
• Góð menntun krefst góðra kennara sem njóta virðingar í sam-
félaginu, viðunandi vinnuumhverfi er það sama og viðunandi lær-
dómsumhverfi.
• Stéttarfélög kennara eiga að vera í fararbroddi í mótun og
framkvæmd menntastefnu.
• Menntun er mannréttindi. Það er ósiðlegt að sætta sig við annað
en að allir hafi aðgang að góðri almennri menntun, í öllum löndum
heims.
EI hefur líka sett fram áætlun um tíu aðgerðir í þremur flokkum og
hvetur aðildarsamtök sín á heimsvísu til að vinna eftir henni. Hún fer hér
á eftir (nokkuð stytt og lauslega þýdd):
Útskýrið þörfina 1. Safnið upplýsingum um mönnun, þ.e. hvað
margir kennarar og aðrir starfsmenn þurfa að vera í hverjum skóla.
2. Segið frá því hversu marga þarf til að halda uppi menntun í
góðum og öruggum skólum fyrir börn og ungmenni.
Kallið eftir áætlunum á landsvísu 3. Teiknið upp áætlun um
hvernig er hægt að mæta þörf fyrir kennara. 4. Kynnið hana fyrir
stjórnvöldum og samstarfsaðilum, þ.á.m. samtökum foreldra, og
vinnið að framgangi hennar á opinberum vettvangi.
Berjist fyrir ráðningum í stað uppsagna 5. Kallið eftir því að stjórnvöld
vinni með ykkur í að halda í kennara og mennta og ráða fleiri ef
þess er þörf. 6. Staðfestið á nýjan leik stefnu kennarasamtakanna
um góða kennaramenntun. 7. Styðjið lengingu kennaramenntunar
og símenntunar, einnig verkefni um stuðning og aðlögun fyrir nýja
kennara og aðra starfsmenn skóla til að ýta undir að þeir haldist
í starfi. 8. Þróið samvinnu þvert á skólastig og styðjið háskóla
í rannsóknum, nýsköpun og kennslu, þ.á.m. menntun kennara.
9. Minnið ríkisvald og almenning á að þúsaldarmarkmiðin, þ.á.m.
menntun fyrir alla, skipta sköpum í að heimsbyggðin komist út
úr kreppunni. 10. Vinnið að meiri samvinnu Norðurs og Suðurs.
Auka þarf þróunarsamvinnu, styrkja fjölþjóðlegar þróunarstofnanir
og efla kennaramenntun í löndum sem eru að reyna að ná
þúsaldarmarkmiðunum.
„Við megum engan tíma missa,“ segir Fred van Leeuwen fram-
kvæmdastjóri EI í bréfi til aðildarsamtakanna þar sem áætlunin er
kynnt. Ég er sammála. Ekki bara menntun til framtíðar. Menntun er
framtíðin.
Kristín Elfa Guðnadóttir
Pössum vel upp á skólann