Skólavarðan - 01.03.2009, Blaðsíða 8
8
eTwINNING, SKóLAdAGAR
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009
eTwinning er áætlun ESB um rafrænt
skólasamstarf. Árleg ráðstefna eTwinning
var haldin í Prag 13. til 15. febrúar
síðastliðinn. Yfir fjögur hundruð kennarar
og fulltrúar eTwinning alls staðar að úr
Evrópu sóttu ráðstefnuna. Dagskráin var
glæsileg og af ræðumönnum má m.a. nefna
hinn þekkta fræðimann Edward De Bono.
Verkefni leikskólans Furugrundar hreppti 2.
sætið í flokki stærðfræði- og vísindaverkefna
í samkeppni um Evrópuverðlaun eTwinning.
Tvö önnur íslensk verkefni, sem leikskólinn
Bakki og Öskjuhlíðarskóli eru þátttakendur
í, komust í undanúrslitahóp 22ja verkefna.
Árleg ráðstefna eTwinning
Hin árlega ráðstefna eTwinning var að þessu
sinni haldin í Prag. Ján Figel, yfirmaður
menntamála hjá framkvæmdastjórn ESB,
setti ráðstefnuna ásamt menntamálaráð-
herra Tékklands, Ondej Liška. Þema ráð-
stefnunnar að þessu sinni var „eTwinning og
sköpun“ en árið 2009 er ár nýsköpunar hjá
framkvæmdastjórn ESB.
Þátttakendur á ráðstefnunni voru yfir
fjögur hundruð kennarar og fulltrúar land-
skrifstofa eTwinning hvaðanæva úr Evrópu.
Hver landskrifstofa var með bás til að kynna
land og þjóð og árangur sinn í eTwinning.
Sérstakir básar voru helgaðir verkefnum sem
tóku þátt í Evrópusamkeppninni. Í íslensku
sendinefndinni voru tveir starfsmenn land-
skrifstofunnar, Guðmundur I. Markússon og
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, og fimm kenn-
arar, Helga Hólm, Stóru-Vogaskóla, Hilda
Torres, Verzlunarskóla Íslands, Sonja Jóns-
dóttir, leikskólanum Sólbrekku og Fjóla
Þorvaldsdóttir og Halla Jónsdóttir, leik-
skólanum Furugrund.
Dagskrá ráðstefnunnar samanstóð af
fyrirlestrum og vinnustofum. Aðalfyrirlesari
var hinn þekkti fræðimaður á sviði skapandi
hugsunar, dr. Edward De Bono. Fyrirlestur
hans var bæði ögrandi og áhugaverður og
átti hann athygli gesta óskipta. Skilaboð
hans voru í stuttu máli þau að skapandi
hugsun snerist ekki um meðfædda náðar-
gáfu heldur ákveðnar aðferðir sem hægt
væri að kenna. Jafnframt lagði hann áherslu
á að kennsla í hugsun ætti að vera sérstakt
fag í skólakerfinu. Hægt er að kynna sér De
Bono og kenningar hans á heimasíðunni
www.edwarddebono.com.
Íslenskur skóli í úrslitum til
Evrópuverðlauna
Mikil eftirvænting ríkti í íslenska hópnum því
íslenskur fulltrúi, Fjóla Þorvaldsdóttir, leik-
skólanum Furugrund, var í úrslitum Evrópu-
verðlauna eTwinning. Er það í fyrsta skipti
sem íslenskur þátttakandi nær svo góðum
árangri. Verðlaun voru veitt fyrir besta
eTwinning-verkefnið í fimm flokkum: 4-11
ára, 12-15 ára, 16-19 ára, frönsku og flokki
stærðfræði og vísinda. Verkefni Furugrundar,
1, 2, Buckle my shoe, tilheyrði síðastnefnda
flokknum sem er athyglisvert í ljósi þess
að ekki hafa verið mörg leikskólaverkefni í
þessum flokki. Verkefnið varð í 2. sæti sem
er frábær árangur en yfir 500 skráningar
bárust í keppnina.
1, 2, Buckle my shoe er samstarfsverkefni
tólf skóla frá tíu löndum: Íslandi, Skotlandi,
Englandi, Möltu, Spáni, Ítalíu, Litháen,
Rúmeníu, Póllandi og Írlandi. Heiti verk-
efnisins vísar til þulu sem notuð er til að
kenna börnum að telja. Í verkefninu er unnið
með ákveðið þema í hverjum mánuði, t.d.
tölur, rými, form o.s.frv. Sem dæmi læra
börnin húsnúmer sín, telja diska þegar
þau leggja á borð, mæla vegalengdir
o.s.frv. Afrakstrinum er miðlað með því að
nota ýmis forrit, að mestu frían og opinn
hugbúnað (e. open source), og er myndræn
framsetning, þ.e. stafrænar myndir og
myndbandsupptökur, mikilvægur þáttur.
Verkefnið er með sína eigin heimasíðu
sem er öllum opin: twinmath.wikispaces.
com. Þar er ekki aðeins hægt að skoða
afrakstur verkefnisins heldur er þar einnig
að finna lista yfir þann opna hugbúnað sem
notaður er í verkefninu. Því geta áhugasamir
kennarar sótt bæði hugmyndir og verkfæri á
heimasíðu 1, 2, Buckle my shoe og notað til
þess að þróa sín eigin verkefni.
Áður en tilkynnt var hvaða skólar kæmust
í úrslit voru 22 verkefni valin í undanúrslit.
Fyrir utan Furugrund komust tveir aðrir
íslenskir skólar í þennan undanúrslitahóp:
Leikskólinn Bakki með verkefnið Frumefnin
fjögur og Öskjuhlíðarskóli sem tekið hefur
þátt í sérkennsluverkefninu I am great the way
I learn. Það verður að teljast frábær árangur
að þrjú verkefni með íslenskri þátttöku hafi
náð í undanúrslitahóp 22ja verkefna í keppni
sem spannar nánast alla Evrópu.
eTwinning er óformleg og auðveld leið til
Evrópusamstarfs
Landskrifstofan hvetur kennara eindregið til
að kynna sér möguleika eTwinning. Áætlunin
hentar öllum kennslugreinum jafnframt því
að vera óformleg og laus við skriffinnsku.
Skráningu fylgir heldur engin skuldbind-
ing og því er hægt að skrá sig til leiks og
kanna möguleikana. Nánari upplýsingar
má nálgast á heimasíðu landskrifstofunnar
(Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins), aðalsíðu
eTwinning í Evrópu og á íslenska eTwinning-
blogginu:
www.etwinning.is
www.etwinning.net
www.etwinning.blog.is
Allar frekari upplýsingar gefur Guðmundur
Ingi Markússon gim@hi.is, sími 525 5854.
Guðmundur Ingi Markússon
Höfundur er verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins.
Þátttakendur í verkefninu 1, 2, Buckle my shoe.
Fjóla Þorvaldsdóttir er lengst til vinstri.
Lj
ós
m
yn
d
f
rá
h
öf
un
d
i.
Furugrund hreppti annað sætið!
Íslenskir skólar Í úrslitum og undanúrslitum til eVróPuVerðlauna etwinning