Skólavarðan - 01.03.2009, Blaðsíða 20
20
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009
brosir. „Svo eru þetta mínar ær og kýr, allt
sem tengist menntun, og ég er þakklát fyrir
að geta fengist við það sem mér finnst svona
skemmtilegt. Í Noregi er reyndar svolítið
basl að fá gott fólk inn í kennaramenntun og
einnig að fá unga kennara til að tolla í starfi.
En kennaradeildin í Háskólanum í Bergen
er eftirsótt og hefur haldið því þrátt fyrir
breytingu sem var gerð fyrir nokkrum árum,
en þá var sett krafa um lágmarkseinkunnir
í kennaramenntun. Margir minni skólar
misstu þá nemendur.“
Við erum örlagavaldar
„Skólinn er mikilvægasta stofnun sem til
er í samfélaginu,“ heldur Inga áfram. „Það
er mín skoðun að við getum aldrei orðið
nógu meðvituð um hversu mikilvæg hún er
fyrir nemendur. Kennarinn er í svo mörgum
hlutverkum og ég verð stundum pirruð yfir
hvað önnur hlutverk hans eru oft krefjandi
og á kostnað kennslunnar. Ég á við að vera
launþegi, undirmaður og samstarfsmaður.
Þetta má aldrei skyggja á kennsluna. Ég
hef séð í gegnum mín störf hversu sáralítið
þarf til að nemandi fari út á óheillabraut.
Og líka til að hann feti heillabrautina. Þess
vegna verður þessi vitund alltaf að vera efst
í huga kennarans: Að hann er örlagavaldur.
Ég verð eiginlega bara að endurtaka þetta,
við verðum aldrei nógu meðvituð um hversu
mikilvæg stofnun skólinn er fyrir nemendur
og um hversu mikil áhrif við höfum sjálf
með kennslu okkar.“
Kjarninn er börnin
„Það er gífurlegt álag á kennurum. Ríkis-
vald og menntamálaráðuneyti ákveða hvað
beri að leggja áherslu á, sömuleiðis borgar-
og bæjaryfirvöld og loks skólastjórnendur.
Þessir straumar koma úr mörgum áttum og
flæða yfir kennara. Fyrir óörugga kennara
er auðvitað gott að vera stýrt á þennan hátt
en það er mjög erfitt fyrir þá sjálfstæðari.
Kjarninn í starfinu vill stundum hverfa:
Börnin sjálf. Ég hamra á þessu við nemendur
mína.“
Að Murphy slepptum, heillaðist Inga mjög
af George Herbert Mead og kenningum hans
þegar hún var sjálf í námi. „Ég var lengi vel
með mynd af Mead á skrifborðinu mínu
en hún týndist einhvern tímann. Kenningar
hans höfðu mikil áhrif á mig og þær fjalla
líka um áhrif, um hvernig við höfum áhrif
hvert á annað og hvernig við getum unnið
úr þeim. Eitt af því sem Mead kennir okkur
er að vinsa úr þá sem við leyfum að vera
áhrifavaldar í lífi okkar. Eru þeir það sem
hann kallar „significant others“ eða „hinir
mikilvægu“ í lífi okkar? Ef þeir eru ekki í
þeim flokki þurfum við ekki að fara í mínus
þótt þeir gagnrýni okkur. Kennarar eru oft og
tíðum í mikilvæga flokknum í lífi nemenda
sinna.
Broddi Jóhannesson var skólastjóri þegar
ég var í Kennaraskólanum, hann var hlýr og
yndislegur maður og ég bar mikla virðingu
fyrir honum. Margt af því sem Broddi sagði
mótaði mig mikið, hann markaði djúp spor
í mig sem ungling og ungan kennara. Eitt af
því sem Broddi sagði var: Nám og menntun
er ekki eitt og hið sama. Ég hélt að ég skildi
þetta á þeim tíma en það var ekki fyrr en
mörgum árum síðar sem það rann fyllilega
upp fyrir mér hvað hann átti við: Það er ekki
hvað við lærum sem skiptir máli heldur hvað
við gerum við það.“
keg
Í náttúrufræðihluta aðalnámskrár grunnskóla segir m.a.:
Óhætt er að fullyrða að útikennsla, það er að flytja kennslu að einhverju leyti út
fyrir veggi skólans, auðgi og styrki allt nám ásamt því að vera hollt bæði líkama og
sál... Vegna sérstöðu lands okkar og þjóðar er nauðsynlegt að nemendur ... séu vel
upplýstir á sviðum náttúrufræðanna. Með því að efla þekk-ingu og þjálfa vinnulag
nemenda eflum við skynjun þeirra á umhverfinu. Vart er hægt að hugsa sér betri
vettvang fyrir náttúrufræðikennslu en náttúruna sjálfa.
Vopnafjarðarskóli auglýsir
Kennara vantar við Vopnafjarðarskóla næsta skólaár.
Kennslugreinar eru smíðar, myndmennt, tungumál,
náttúrufræði og almenn kennsla.
Í Vopnafjarðarskóla eru 85 nemendur og góð aðstaða fyrir nemendur
og starfsfólk. Grunnskólinn, tónskóli og bókasafn sveitarfélagsins
eru undir sama þaki og leikskólinn handan götunnar. Nemendur
grunnskólans sækja tónskólann úr kennslustundum og æskulýðs- og
íþróttastarf er í beinum tengslum við grunnskólastarfið.
Vopnafjörður er fallegt og vinalegt byggðarlag sem býður upp á
fjölbreytta náttúru, fagra sveit og snyrtilega byggð, Góð almenn
þjónusta er í boði og staðurinn hefur verið lofaður fyrir gott veðurfar.
Frekari upplýsingar eru veittar af skólastjóra eða
aðstoðarskólastjóra.
Skólastjóri, sími 470-3251, 861-4256 netfang: adalbjorn@vopnaskoli.is
Aðst.skólastjóri, sími 470-3252 netfang: sirra@vopnaskoli.is
Katrín Jakobsdóttir núverandi menntamálaráðherra á heimasíðu sinni í mars 2007:
„Samhliða þessu viljum við ... að nemendur á öllum stigum grunnskólans njóti
fjölbreytni í námi sínu þannig að verknám, listnám og útikennsla sé mikilvægur hluti
af námi þeirra allt til loka skólaskyldu. Þá viljum við efla jafnréttisfræðslu, fræðslu
um fjölmenningu og menntun til sjálfbærrar þróunar.“ (Feitletrun keg).
KENNARAvIÐTAL
Mynd frá Náttúruskóla Reykjavíkur.