Skólavarðan - 01.03.2009, Page 10

Skólavarðan - 01.03.2009, Page 10
10 SKóLAvERKEFNI UMbOÐSMANNS bARNA SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 Leik- og grunnskólabörn vinna verkefni með umboðsmanni barna Embætti umboðsmanns barna hleypti af stokkunum skólaverkefninu Hvernig er að vera barn á Íslandi? sl. haust sem felst í að nemendur tjá sig um þessa spurningu með því að fylla póstkort með myndum, sögu, ljóði, ljósmynd eða á hvern þann hátt sem þau kjósa. Tugir leik- og grunnskóla eru búnir að tilkynna þátttöku, fá sent kynningarefni og margir hafa líka fengið heimsókn frá embættinu. Verkefnisstjóri er Eðvald Einar Stefánsson. Kynningarbréf voru send til skólastjórn- enda og þeir kennarar sem sýndu verk- efninu áhuga fengu svo senda kynningu á því hvernig hægt er að leggja það fyrir nemendur. Loks fengu nemendur sent bréf með upplýsingum fyrir sig. Í kynningarbréfi til nemenda sem taka þátt segir meðal annars: Eitt af því sem umboðsmaður barna gerir er að hlusta á raddir barna. Hann vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra. Hann vill fá að vita hvernig það er að vera barn á Íslandi í dag. Þess vegna hefur þú fengið í hendur póstkort. Á það getur þú skrifað, teiknað eða jafnvel límt ljósmynd sem þú sjálf/ sjálfur hefur tekið af einhverju sem er mjög mikilvægt fyrir þig. Verkefnið tekur mið af 12. og 13. grein Barnasáttmálans og tilgangur þess er að gefa börnum tækifæri að láta raddir sínar heyrast á fjölbreyttan hátt. Á Degi barnsins sunnudaginn 24. maí, verður haldin sýning á póstkortum barnanna. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt,“ segir Eðvald verkefnisstjóri aðspurður en hann hefur ferðast um allt land að heim- sækja skóla í tengslum við verkefnið. „Við sóttum meðal annars heim níu barna grunnskóla í Þistilfirði sem var í senn gaman og sérstakt. Við erum í reglulegu sambandi við þátttökuskólana og erum nú þegar búin að fá póstkort frá einum skóla, en það er Rimaskóli í Reykjavík. Krakkar í 2. og 5. bekk tóku þátt í verkefninu þar og við höfum átt mjög gott samband við Helga Árnason skólastjóra. Í hverjum skóla er tengi-liður, í mörgum tilvikum er það einhver í stjórn- unarstöðu en sums staðar sjá kennarar um verkefnið. Í sumum skólum taka nokkrir kennarar þátt í verkefninu en í öðrum bara einn – það er enginn skuldbundinn til þátttöku þótt skólastjóra lítist vel á! Þetta er þróunarverkefni og bara rétt að byrja. Skólar geta því enn skráð sig til þátttöku, við erum tilbúin með póstkort fyrir næsta ár og vonumst auðvitað til að þátttaka verði hundrað prósent áður en yfir lýkur. Þótt við séum bara búin að fá skil frá einum skóla eru engu að síður sterk skilaboð fólgin í póstkortunum. Þeim var skilað í desember sl. og það má sjá þrjú þemu í póstkortum barnanna. Í fyrsta lagi vináttuna og fjölskylduna. Það er greinilegt hvað þetta skiptir börnin miklu máli og að þeim finnst mikilvægast að vera ekki ein. Í öðru lagi fjalla þau mikið um einelti, hvað þeim líður vel þegar allir eru vinir og hversu illa þeim líður þegar aðrir eru vondir við þau. Að stríða, leggja í einelti og útiloka eru þættir sem koma fram aftur og aftur. Í þriðja Hvernig er að vera barn á Íslandi? 12. grein Barnasáttmálans: Börn eiga rétt á að láta í ljós skoðanir sínar í öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Eðvald Einar Stefánsson

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.