Skólavarðan - 01.03.2009, Blaðsíða 12

Skólavarðan - 01.03.2009, Blaðsíða 12
12 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 ÁRSFUNdIR Ágætu félagar. Aðstæður eru um margt óvenjulegar nú þegar við hittumst á sameiginlegum árs- fundi KÍ og ársfundi skólamálaráðs KÍ. Daginn sem þingi KÍ lauk í apríl 2008 setti Ísland met í háum vöxtum, vaxtastig á Íslandi fór þá upp í hæðir sem ekki höfðu þekkst áður. Segja má að efnahagslægðin sem við glímum nú við hafi hafist um þetta leyti. Ég held að fáa hafi hins vegar órað fyrir því að ástandið gæti orðið eitthvað í líkingu við það sem nú er raunin. Öll starfsemi Kennarasambands Íslands hefur með einum eða öðrum hætti mótast af ríkjandi ástandi. Þannig hafa allar raunverulegar viðræður um kjaramál legið niðri og satt að segja eru ekki miklar líkur á að félögin komist að samningaborðinu á næstunni til að ræða kjarasamninga í venjulegri merkingu þess orðs. Það kann að vera erfitt að bera saman ástand frá einum tíma til annars. Er lægðin nú til dæmis dýpri en lægðin 1968? Er vandi húsnæðiseigenda nú meiri en í byrjun níunda áratugarins? Við þessu eru engin ein- hlít svör þar sem aðstæður eru um margt gjörólíkar. Samfélagið er nú gjörólíkt því samfélagi sem 68 kynslóðin lifði í, kröfurnar aðrar, lífsgæðin allt önnur. Það hefur e.t.v. ekki mikinn tilgang að velta sér upp úr svona samanburði nema ef vera kynni þann að leitast við að læra af reynslunni. Reynsla okkar frá 1968 er sú að ástandið þá var erfitt, fjöldaatvinnuleysi og landflótti ásamt kaupmáttarrýrnun, gengisfellingum og vaxtaokri. Þetta lifðum við af og náðum okkur á strik að nýju. Ég er þess fullviss að við lifum þetta af líka núna, það er einungis spurning um hve langan tíma það tekur. Það er vissulega ánægjulegt að á þeim tíma sem liðinn er frá síðasta þingi hafa líka gerst jákvæðir hlutir. Ný lög um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla hafa verið samþykkt frá Alþingi sem eru um margt til bóta þó að sumt í þeim hafi verið gagnrýnt. Þá hafa verið samþykkt lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjóra en þau marka tímamót og segja má að Ísland hafi með þeim skipað sér á bekk með þeim þjóðum sem leggja hvað mestan metnað í kennaramenntun í heiminum. Vissulega er hætta á því að stjórnmálamenn velti fyrir sér þeim möguleika að fresta gildistöku laga- ákvæða sem fela í sér kostnaðarauka eins og til dæmis því að lengja kennaramenntun. Það verður því hlutverk okkar, ef til kemur, að reyna að opna augu stjórnmálamanna fyrir þeirri hættu sem fylgir slíkum ákvörðunum. Að fresta lengingu kennaramenntunar eða gefa einhvern afslátt frá markaðri stefnu, væri mikið ógæfuspor því ólíklegt er að slík ákvörðun yrði til skamms tíma og því gæti orðið löng bið eftir lengingunni ef horfið yrði frá þessum áformum nú. Þetta segi ég ekki vegna þess að ég hafi heyrt um slíkar fyrirætlanir heldur eingöngu vegna þess að efnahagslegur vandi þjóðarinnar er af þeirri stærðargráðu að allir hlutir eru í hættu þegar kemur að því að forgangsraða verkefnum. Það er von mín að vinna næstu vikna við reglugerðasmíði og námskrár skili okkur fram á veginn og víðtæk sátt náist um skólastarf næstu ára. Fátt er okkur mikilvægara á tímum eins og nú en að slá skjaldborg um skólana og tryggja með því starfsemi þeirra. Kennarasamband Íslands ákvað fljót- lega eftir fjármálahrunið að skoða með hvaða hætti það gæti best stutt við félagsmenn sína og þar með skólastarfið í heild. Í þessu sambandi tók KÍ upp form- legt samstarf við menntavísindasvið HÍ og landlæknisembættið. Einnig hefur fulltrúi KÍ setið í samráðshópi á vegum mennta- málaráðuneytis og í velferðarvaktinni sem félagsmálaráðherra setti á laggirnar fyrir skömmu, svo að dæmi séu tekin. Í öllum þessum starfshópum sitja fulltrúar margra hagsmunasamtaka sem láta sig varða hag heimila, skóla og samfélagsins í heild. Þá ákvað stjórn KÍ að semja við þau Hugo Þórisson og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðinga um að þau veittu félagsmönn- um sálfræðilega ráðgjöf í síma og styddu þannig við þá sem stæðu frammi fyrir erfiðleikum í starfi eða einkalífi. Mein-ingin er að meta árangurinn af þessari nýjung nú um páska og taka ákvörðun um áframhaldið eftir það. Efnt var til fundaraðar í janúar og febrúar þar sem fulltrúar KÍ mættu á samtals mótun nýs samFélags Setningarávarp Eiríks Jónssonar formanns KÍ á ársfundi sambandsins 13. mars sl. reynsla okkar frá 1968 er sú að ástandið þá var erfitt, fjöldaatvinnuleysi og landflótti ásamt kaupmáttarrýrnun, gengisfellingum og vaxtaokri. Þetta lifðum við af og náðum okkur á strik að nýju. ég er þess fullviss að við lifum þetta af líka núna.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.