Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 13

Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 13
13 ÁRSFUNdIR þrettán fundi vítt og breitt um landið. Þar var farið yfir ýmis mál sem tengjast fjár- málakreppunni og einnig mál sem tengjast réttindum félagsmanna. Fundasókn var misgóð eins og gengur en segja má að hér hafi verið gerð fyrsta tilraun til að bjóða upp á fræðslu til félagsmanna sem var ætluð öllum, burtséð frá félagsaðild. Vonandi verður hægt í framtíðinni að bjóða upp á fleiri þætti hjá KÍ þar sem mörkum milli félaga er ýtt til hliðar og fræðsla miðuð við atriði sem varða alla burtséð frá félagsaðild. Þetta kæmi að sjálfsögðu ekki í staðinn fyrir fræðslustarfsemi á vegum félaganna heldur væri hér um að ræða viðbót. Fjölmargir Íslendingar hafa orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni á undanförnum mánuðum. Þegar ljóst var að bankarnir væru komnir á hliðina óttuðumst við í fyrstu að KÍ hefði orðið fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni þrátt fyrir þá staðreynd að mikill hluti fjár- muna sambandsins og sjóða væri í vörslu BYRS. Þó að tapið sé umtalsvert er það minna sem hlutfall af heildareignum en búast mátti við enda hefur verið rekin var- færin stefna í fjárfestingum KÍ á undan- förnum árum. Um afkomu KÍ og sjóða er að öðru leyti vísað til reikninga sambandsins en þar eru þessir þættir tíundaðir. Tíminn frá áramótum hefur verið mjög sérstakur svo að ekki sé meira sagt. Mótmælin sem hófust í haust undu smátt og smátt upp á sig og þegar þing kom saman eftir áramót sauð endanlega upp úr. Þjóðinni var og er misboðið. Allt stoðkerfi efnahagslífsins hafði brugðist sem og stjórnmálamennirnir. Kennarasambandið tók strax þá ákvörðun að vera ekki virkur þátttakandi í mótmælaaðgerðum og einnig að setja ekki fram kröfur um afsögn einstakra stjórnmálamanna eða embættismanna. Ég tel þetta rétta afstöðu þar sem ekki er hefð fyrir því að Kennarasambandið setji fram kröfur af þessu tagi og mál sem þessi hafa ekki verið til umræðu á þingum sambandsins hingað til. Ég spyr mig hins vegar oft þeirrar spurningar hvort ekki sé nauðsynlegt að breyta þessu að einhverju leyti þegar litið er til framtíðar. Ég er í þessu sambandi ekki að tala um að Kennarasambandið eigi að vera flokkspólitísk samtök heldur hvort það eigi ekki að láta álit sitt í ljós þegar augljóst er að stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, láta hagsmuni sína og síns flokks ganga fyrir þjóðarhag. Nokkur atriði til umhugsunar í þessu sambandi. Er eðlilegt að alþingismenn ákveði að veita stjórnmálaflokkunum þrjú til fjögur hundruð milljónir króna af almannafé meðan ekki eru til peningar til að standa undir lögbundnum verkefnum? Þetta er gert þrátt fyrir að bókhald stjórnmálaflokka sé ekki að fullu opið almenningi. Er eðlilegt að þingmenn ræði á Alþingi dögum saman um tæknileg atriði á borð við hvort ekki verði að rjúfa þing þennan daginn eða hinn til að uppfylla meint skilyrði um lágmarkstíma frá þingrofi til kosninga? Er eðlilegt að eyða mörgum klukkutímum í umræðu um mál sem allir eru sammála um, eins og raun varð á í umræðunni um útgreiðslu séreignarsparnaðar? Er eðlilegt að þetta gerist meðan ekki er hægt að taka til umræðu mál sem varða framtíð þjóðarinnar? Við hljótum að gera þá kröfu til Alþingis Íslendinga að sandkassaleiknum linni. Það virðist sama hver er í stjórn og hver í stjórnar-andstöðu, hegðun þingmanna og ráðherra er þeim oft og tíðum til skammar og í fullkomnu ósamræmi við vilja þjóðarinnar. Við verðum að vona að þingkosning- arnar framundan verði upphaf að mótun nýs samfélags. Það er tími til kominn að menn hafni græðginni og snúi bökum saman við að byggja upp þjóðfélag þar sem einstaklingurinn er settur í öndvegi og Mammoni vikið til hliðar. Ágætu ársfundarfulltrúar. Við eigum fyrir höndum langan vinnudag. Auk lögbundinna verkefna ársfundar höfum við fengið til liðs við okkur fjölda frummælenda til að fjalla um mörg mikilvæg mál á sviði kjara- og skólamála. Ég vona að við eigum eftir að eiga saman ánægjulegan dag og að við getum snúið heim margs vísari. Sameiginlegur ársfundur KÍ og ársfundur skólamálaráðs KÍ er settur. er eðlilegt að alþingismenn ákveði að veita stjórnmála- flokkunum þrjú til fjögur hundruð milljónir króna af almannafé meðan ekki eru til peningar til að standa undir lögbundnum verkefnum? kennarasamband Íslands ákvað fljótlega eftir fjármálahrunið að skoða með hvaða hætti sambandið gæti best stutt við félagsmenn sína og þar með skólastarfið í heild.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.