Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 15

Skólavarðan - 01.03.2009, Síða 15
15 ÁRSFUNdIR SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 HæTTAN: AÐ VIÐ FESTUMST Í DOÐA! Ef við tökum strax á vandanum og ef okkur tekst að skapa traust á íslensku efnahagslífi þá getum við farið að sjá til lands um eða upp úr 2011. Annars er hætt við að hagkerfið festist í doða. Þetta sagði Ólafur Darri Andrason í erindi sem umsvifalaust feykti öllum fundarmönnum upp úr doða hafi þeir á annað borð verið í honum. „Þetta er gríðarlegt samdráttarskeið,“ sagði Ólafur Darri. „Samdrátturinn var mikill 1968-69 og við þurfum að fara þangað til að finna eitthvað viðlíka og nú. En samdráttarskeiðið sem við erum rétt að byrja að sigla inn í verður meira en frá stofnun lýðveldis.“ Að sögn Ólafs Darra gæti orðið verðhjöðnun 2010 sem væri vissulega gott fyrir skuldara en endurspeglaði jafnframt mjög erfitt hagkerfi. Líklega færum við að að verja álíka miklu fé í atvinnuleysistryggingar og í allt framhaldsskólakerfið, eða um átján milljörðum. „Við verðum að minnka hallann um 50 milljarða árið 2010 og um 30 milljarða 2011, annars verða vaxtagreiðslur ríkisins óviðráðanlegar,“ sagði Ólafur Darri. Að hans sögn er óumflýjanlegt að stóru kerfin þrjú, sem Ágúst nefndi útgjaldaturnana í erindi sínu, verði fyrir barðinu á kreppunni. „Það verður lægra þjónustustig í öllum þessum kerfum og skattar hækka, en við verðum líka að dreifa byrðum réttlátlega. Þeir sem hafa vinnu verða að taka meira á sig, það er að segja taka frekar á sig kaupmáttarskerðingu en að auka atvinnuleysi. Við eigum ekki að sleppa því að taka á vandamálunum því þótt hörmungarnar séu ekki okkur að kenna þá skaðar slík afstaða okkur og börnin okkar.“ „Við verðum að tryggja að allir hafi aðgang að menntun,“ sagði Ólafur Darri jafnframt. „Það er varnarbarátta framundan og við getum búist við minni stoðþjónustu í skólum, stærri námshópum og fleiru. Það verður að auka sveigjanleika í skólastarfi en vera um leið vakandi fyrir því að ef girðingar eru teknar úr kjarasamningum auðveldar það ríkinu að gera ýmislegt óásættanlegt. Kennarasambandið á að láta sig efnahags- og atvinnumál varða og það er skynsamlegt af KÍ að taka þátt í samflotinu.“ Ólafur Darri nefndi jafnframt mikilvægi þess að rannsaka banka- hrunið. „Þetta þarf að vera lærdómur og uppgjör. Við eigum að krefjast skýlausrar,viðamikillar og vandaðrar rannsóknar á bankahruninu. Við eigum að krefjast þess að þeir sem bera siðferðilega, pólitíska og lagalega ábyrgð axli hana. Ekki bara horfa á lagalega þáttinn. Já, árið 2007 var indælt ár. En viljum við fá það aftur? Nei. Því ef við gerum það þá lendum við bara aftur í sömu vitleysunni. Því miður er ekki hægt að fara í gegnum þessar þrengingar án þess að almenningur finni verulega fyrir því. En munum þetta: Við eigum þrjár gífurlegar auðlindir: Orkuna í fallvötnum og í jörðinni, fiskinn í sjónum og mannauðinn.“ Ólafur Darri Andrason Já, árið 2007 var indælt ár. En viljum við fá það aftur? Nei. Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ og formaður skólamálaráðs setti saman innihaldsríka dagskrá eftir hádegi 13. mars (á ársfundi skólamálaráðs) og einbeiting fundargesta leynir sér ekki.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.