Skólavarðan - 01.03.2009, Qupperneq 17

Skólavarðan - 01.03.2009, Qupperneq 17
17 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 SAMRæÐA KEMUR HUGMYNDUM Í FRAMKVæMD Jón Torfi Jónasson og Anna Kristín Sigurðardóttir fjölluðu um kennaramenntunina í HÍ og samstarf við Kennarasambandið til framtíðar. Anna Kristín talaði meðal annars um aðdraganda nýju kennaramenntunarlaganna, inntak undirbúningsvinnu að fimm ára kennaramenntun, lykilhugmyndir um kennarastarf og fagmennsku og um næstu skref hjá menntavísindasviði að framkvæmd laganna. Erindi Önnu Kristínar og þessari umfjöllun í heild, ásamt erindi Braga Guðmundssonar um kennaramenntun á Akureyri, verða gerð betri skil í apríltölublaði. Jón Torfi var nýkominn frá Noregi og Svíþjóð og sagði að í þessum löndum auk Danmerkur væru miklar hræringar í kennaramenntun og jafnframt átök. Á Norðurlöndunum væru sýnu minnst átök í þessum málaflokki í Finnlandi og hérlendis. Til dæmis væri verið að dreifa kennaramenntun víðar en áður í fyrrnefndu löndunum. Stjórnvöld væru meira með puttana í þessu námi en öðru starfsnámi en eftirlitskerfið í Svíþjóð og prófakerfið í Danmörku væri í mótsögn við hugmyndir stjórnvalda um fagmennsku. Mikið er rætt um fagmennsku á norrænum vettvangi og spurningin er þessi: Hvað þarf til, til að undirbúa góðan fagmann sem ræður við það sem honum er ætlað? Að mati Jóns Torfa er ekki líklegt að sterkir kennarar spretti fram í stórum hópum ef menntun er dreift víða. Annað sem þyrfti að varast væri gjá á milli fræðimanna, kennara, stjórnmálamanna og almennings. Fræðimenn væru til að mynda mest að skrifa fyrir aðra fræðimenn. Jón Torfi bætti við að samræða væri sú leið sem við hefðum til að gera okkur mat úr því sem við höfum og nýta það í skólastarfi. Hann upplýsti að skýr ásetningur væri af hálfu beggja aðila, menntavísindasviðs HÍ og Kennarasambandsins, um virkt samstarf. Það myndi meðal annars fela í sér samræðu um grunn- og endurmenntun kennara og stjórnenda, vettvangstengingu námsins (Ingvar Sigurgeirsson stýrir vettvangsráði menntavísindasviðs, innskot blm.) og vett- vangstengingu menntavísindasviðs, rannsóknir og mótun fag- mennsku. Þá yrði rætt um hræringar í Evrópu,flæði upplýsinga - þ.m.t. útgáfu og mótun samstöðu ásamt fleiru. keg Jón Torfi Jónasson Anna Kristín Sigurðardóttir Bragi Guðmundsson Björg Ólafur Aðalheiður ÁRSFUNdIR Sigrún

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.