Skólavarðan - 01.03.2009, Qupperneq 26

Skólavarðan - 01.03.2009, Qupperneq 26
26 RITdóMUR SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 9. ÁRG. 2009 Rósbjörg S. Þórðardóttir rýnir í bókina Attachment in the classroom: The links between children´s early experience, emotional well-being and performance in school eftir dr. Heather Geddes. Höfundur bókarinnar er kennsluráðgjafi (educational therapist) og hefur unnið sem kennari og sérkennari á mismunandi stig- um skólakerfisins, við handleiðslu barna og í geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga. Hún hefur einnig starfað sjálfstætt sem kennsluráðgjafi og stendur fyrir þjálfun kennsluráðgjafa, til dæmis á Caspari stofn- uninni í Bretlandi. Bókin er byggð á doktorsrannsókn Gedd- es og margra ára starfi hennar með börnum, fjölskyldum og kennurum í mismunandi um- hverfi. Með rannsókninni bar hún kennsl á samband milli fyrri geðtengsla (attachment) sem börn hafa myndað og tiltekins mynsturs í viðbrögðum þeirra við kennurum og verk- efnum. Reynslan hefur rennt stoðum undir störf hennar og hvatt hana til að stuðla að vakningu í þá veru að tekið sé tillit til barna og þeim sinnt á viðeigandi hátt í skólastarfi. Bókin er tvískipt. Í fyrri hluta eru kynntar fræðilegar kenningar og gefin dæmi um tengsl hegðunar og náms. Teknar eru fyrir þekktar tengslakenningar, rætt er sérstaklega um tengslakenningu (attachment theory) Johns Bowlbys og rannsókn Mary Ainsworth á geðtengslum móður og barns þar sem fjallað er um mynstur óöruggra geðtengsla (insecure attachment). Einnig er vísað í aðrar rannsóknir á þessu sviði. Þá er námsþríhyrningurinn (learning triangle) kynntur en hann sýnir sambandið á milli nema, kennara og verkefnis. Áhersla er lögð á notkun tengslakenningar og fleiri kenninga en einnig að eðli samskipta í frumbernsku hafi áhrif á hvernig nemendum gengur að tileinka sér námsaðferðir til að ná árangri í námi. Til frekari skýringa eru í báðum bókarhlutum tekin raunveruleg dæmi af vettvangi þar sem börn eiga í vanda. Dæmin skýra á hagnýtan hátt hvaða aðferðum er hægt að beita við mismunandi aðstæður. Í seinni hluta bókarinnar er fjallað nánar um hve vitneskja um fyrri reynslu barna er mikilvæg til að skilja hegðun þeirra og geta brugðist við á faglegan og árangursríkan hátt. Í hverjum kafla er tekið fyrir tiltekið hegðunarmynstur barna sem bendir til óöruggra geðtengsla sam- kvæmt skilgreiningu Ainsworth. Það eru óörugg/frávísandi mynstur (avoidant patt- ern) þar sem nemandinn forðast eða útilokar kennarann. Dæmi um þetta er nemandi sem biður ekki um aðstoð. Við slíkar aðstæður er leiðin að samskiptum í gegnum verkefni sem höfðar til nemans. Óörugg/tvístígandi mynstur (resistant/ambivalent pattern) eiga við um nemanda með kvíða sem leggur sig fram um að halda athygli kennarans. Óöruggt/óskipulagt mynstur (disorganised pattern) á við um nemendur sem eru óút- reiknanlegir. Fáir tilheyra þessum hópi. Mynstrin eru tekin fyrir og útskýrð ásamt því að nefndir eru dæmigerðir hæfileikar og erfiðleikar þessara barna. Útskýrt er í hvaða heilastöðvum mismunandi virkni fer fram og hvernig unnt er að vinna að frekari þroska. Þá er námsþríhyrningurinn við hvert dæmi sýndur en hann útskýrir á myndrænan hátt hvar erfiðleikarnir liggja. Með þríhyrningnum er skýrt hvernig hægt er að höfða til barnanna miðað við getu þeirra og hvaða viðbrögð eiga við í hverju tilfelli. Í lok hvers kafla er samantekt sem tekur fyrir aðalatriði hans. Í bókinni er lögð áhersla á að kennarar og starfsmenn skóla noti innsæi til að skilja hegðun barnanna og bregðast við í samræmi við hana. Hún fjallar ekki eingöngu um hvað á að gera heldur hvernig á að nálgast við- fangsefnið til að ná ákjósanlegum árangri að bættri líðan og námsárangri nemenda. Það kemur í ljós að þegar tekið er tillit til hegðunar barna og brugðist faglega við henni þá geta allir starfsmenn skóla haft mikil áhrif á vellíðan barna og fjölskyldna þeirra. Þegar þarfir nemenda eru virtar aukast framfarir í námi og lífsgæði barn- anna einnig, samkvæmt bókinni. Skólinn hefur þá sinnt hlutverki sínu sem öruggur grunnur að uppeldi barnsins. Geddes nær að útskýra fræðilegar kenn- ingar og tengja þær við hagnýt viðbrögð. Þetta er gert á læsilegan hátt þannig að áhugasamir geta náð samhenginu án mik- illar þekkingar á efninu. Kenningalegur bak- grunnur bókarinnar er ekki nýr af nálinni en tengslakenning Bowlbys og rannsóknir Ainsworth hafa lengi verið áberandi í fræða- Reynsla í barnæsku og tilfinningaleg vellíðan tengjast námsárangri „over some years, working in a range of educational and health settings, it has been my experience that teachers are perfectly able to teach almost all pupils.“ Heather Geddes.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.