Skólavarðan - 01.03.2001, Qupperneq 2
Formannspist i l l
3
Fyrir dyrum stendur atkvæðagreiðsla
allra félagsmanna í Kennarasambandi
Íslands um aðild Félags íslenskra
leikskólakennara að sambandinu.
Formlegur undirbúningur hefur
staðið yfir allt frá sameiningu HÍK
og KÍ í nóvember 1999 en samstarf
gömlu félaganna og FÍL á sér lengri
sögu. Mörgum kemur sjálfsagt á
óvart hve hljótt hefur verið um undirbúning
atkvæðagreiðslunnar í samanburði við langan að-
draganda og ítarlega kynningu áður en KÍ og HÍK
sameinuðust. Þessi munur á sér nokkra skýringu. Í
fyrsta lagi hafa öll félögin í KÍ auk FÍL átt í kjara-
viðræðum undanfarna mánuði, kastljósið hefur
beinst að þeim og önnur mál verið í skugganum á
meðan. Í öðru lagi er um talsvert ólíkt ferli að ræða
vegna þess að hér er ekki verið að leggja niður félög
við samruna og stofnun nýrra samtaka heldur sækir
sjálfstætt félag um aðild að samtökum kennara og
skólastjórnenda.
Hvers vegna eiga leikskólakennarar erindi
í Kennarasamband Íslands?
Ég ætti kannski frekar að spyrja hvers vegna
ekki? Margt kallar á aukið samstarf og tengsl á milli
grunn-, framhalds-, tónlistar- og leikskólakennara.
Leikskólastigið er fyrsta lögbundna skólastigið og
menntun leik- og grunnskólakennara er nú komin
undir einn hatt, bæði í Kennaraháskóla Íslands og
Háskólanum á Akureyri. Ágætt samstarf var hjá
FÍL og gömlu kennarafélögunum og nú nýju
Kennarasambandi Íslands. Við höfum haldið sam-
eiginleg skólamálaþing og staðið að dagskrám í til-
efni alþjóðlegs dags kennara 5. október ár hvert. KÍ
og FÍL eru í norrænu kennarasamtökunum NLS
og stóðu sameiginlega að sumarnámskeiði norr-
ænna kennara á Laugarvatni sl. sumar. Eitt af lög-
bundnum hlutverkum KÍ er að vinna áfram að sam-
einingu allra kennara og er aðild FÍL auðvitað liður
í að ná því markmiði. Spurningin er því frekar sú
hvort fleiri kennarafélög, til dæmis á háskólastigi,
eigi ekki erindi í nýtt Kennarasamband Íslands?
Umsókn um aðild
Fyrirhuguð atkvæðagreiðsla snýst um aðild
Félags íslenskra leikskólakennara að Kennarasam-
bandi Íslands en ekki um stofnun nýrra samtaka
eins og þegar gömlu kennarafélögin sameinuðust í
eitt. Að baki stofnunar nýs Kennarasambands Ís-
lands lá margra ára undirbúningsvinna að æskilegu
skipulagi og uppbyggingu. Aðild FÍL ein og sér
kallar ekki á uppstokkun. Í rauninni þarf ekki að
gera miklar breytingar á Kennarasambandinu þótt
nýtt aðildarfélag með um 1200 félagsmenn bætist
við. Sem dæmi má nefna að gera þyrfti fáeinar
breytingar á lögum KÍ, fjölga myndi um tvo í stjórn
og skólamálanefnd leikskólakennara bættist í skóla-
málaráð KÍ.
Sjálfstæð félög
Þegar félagsmenn í KÍ fá atkvæðaseðilinn í hend-
ur er vert að hafa í huga hve félögin í sambandinu
eru sjálfstæð, eins og glögglega kom í ljós í kjaravið-
ræðunum í vetur. Eitt meginhlutverk þeirra er að
gera kjarasamninga fyrir félagsmenn sína og þau
kjósa í því skyni stjórn og samninganefnd. Einnig er
á verksviði aðildarfélaganna að annast tengsl við
trúnaðarmenn. Þó að félögin færu ólíkar leiðir í
samningunum höfðu formennirnir náið samstarf
enda sitja þeir allir í stjórn KÍ. Sjálfstæði félaganna
leyfir þeim að njóta sérkenna sinna og er í raun við-
urkenning á því að þrátt fyrir að starfsvettvangur
nær allra félagsmanna sé skóli er hann margbreyti-
legur og þarfir þeirra sem þar starfa ekki alltaf þær
sömu. Félagsblaðið Skólavarðan og heimasíða KÍ
eru vettvangur félagslegra skoðanaskipta, þar hafa
birst ólík sjónarmið og jafnvel gagnrýni milli aðild-
arfélaga. Má í seinna tilvikinu nefna ályktun félags-
fundar Félags tónlistarskólakennara vegna afnáms
kennsluafsláttar tónmenntakennara og í því fyrra
hugleiðingar formanns og launafulltrúa FG um
stöðu skólastjóra innan KÍ. Ég tel þetta merki um
félagslega virkni og held líka að ef setja ætti hömlur
á félögin myndu einhverjir hugleiða hvort hags-
munum þeirra væri betur borgið annars staðar. Hitt
er þó meira um vert að félögin leiti leiða til að styðja
hvert annað, eins og þau gerðu reyndar í verkfalli
framhaldsskólakennara. Félag grunnskólakennara,
Félag tónlistarskólakennara og Skólastjórafélag Ís-
lands lögðu sitt af mörkum með fjárframlögum,
greinaskrifum og stuðningsyfirlýsingum.
Samstaða í Kennarasambandi Íslands
Þó að ljóst sé að hugsanleg aðild FÍL að KÍ kalli
ekki á miklar breytingar gefst með henni ágætis tæki-
færi til að skoða innviði sambandsins og velta fyrir sér
hvernig til hefur tekist og hvað megi fara betur. Hvert
er hlutverk KÍ með svo sjálfstæð félög innanborðs sem
raun ber vitni? Það hlýtur að vera að efla samstöðu
félaganna, draga fram það sem sameiginlegt er en líka
að styðja og efla félögin eftir því sem við á. Félögin
þarfnast mismunandi þjónustu frá samtökunum enda
gefur augaleið að talsverður munur er á starfsemi
stærsta félagsins, Félags grunnskólakennara með tæp-
lega fjögur þúsund félaga, og þess fámennasta sem er
Félag stjórnenda í framhaldsskólum með innan við
hundrað félagsmenn. Kennarasamband Íslands er
okkar stéttarfélag og því ber að gæta hagsmuna allra
félagsmanna. Ég er ekki í nokkrum vafa um að aðild
Félags leikskólakennara að Kennarasambandi Íslands
mun styrkja okkur og efla enn frekar.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Verður Félag íslenskra
leikskólakennara sjöunda félagið
í Kennarasambandi Íslands?