Skólavarðan - 01.03.2001, Page 9
Undankeppni fer fram innan hvers skóla.
Hún hefst á degi íslenskrar tungu og lýkur
með hátíð innan skólanna í febrúarlok. Þeir
nemendur sem lásu til sigurs innan síns
skóla keppa við þá bestu í sínu byggðarlagi
eða skólaumdæmi. Stóra upplestrarkeppnin
er í senn hátíð og keppni. Lokahátíð henn-
ar veitir gestum tækifæri til að hlýða á
vandaðan upplestur barna sem eru á „há-
punkti æsku sinnar og munu aldrei aftur
lesa eins og nú“ svo vitnað sé til orða Bald-
urs Sigurðssonar, lektors við KHÍ, þegar
hann veitti sigurvegurum í Hafnarfirði og
af Álftanesi verðlaun 13. mars síðastliðinn.
Lokahátíðin í Hafnarfirði var með sér-
lega glæsilegu sniði því að hún var jafn-
framt fimm ára afmælishátíð upplestrar-
keppninnar. Skipulag hátíðarinnar var til
fyrirmyndar sem og umgjörð öll. Hún var
haldin í fallegum sýningarsal Hafnarborgar
og gestir gengu í salinn undir dillandi tón-
um lúðrasveitar Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar. Ingibjörg Einarsdóttir, rekstrar-
stjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, stjórn-
aði keppninni með glæsibrag og meðal
gesta var margt fyrirmenna, svo sem bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, menntamálaráðherra
og frú og síðast en ekki síst forseti Íslands
en hann veitti lesurum viðurkenningu. Þeir
fengu allir bókina Þjóðsögur við sjó í viður-
kenningarskyni.
Í Hafnarfirði lásu fjórtán keppendur,
tveir úr hverjum grunnskóla í umdæmi
Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Fyrst lásu
börnin þrjú þýdd ævintýri og skemmtu
áheyrendur sér hið besta undir lestrinum.
Eftir stutt hlé þar sem gestum var boðið
upp á veitingar lásu keppendur ljóð, fyrst
eftir Tómas Guðmundsson en svo ljóð sem
þau höfðu sjálf valið sér. Öll lásu börnin
sérlega fallega og höfðu prúðmannlega
framkomu. Eigi að síður varð að velja þau
þrjú sem lásu best og var hlutverk dóm-
nefndar vandasamt og erfitt. Sigurvegarar í
upplestrarkeppninni voru Einar Sverrir
Tryggvason frá Álftanesskóla, Sunna Dóra
Sigurjónsdóttir frá Víðistaðaskóla og Irma
Hrönn Martinsdóttir frá Setbergsskóla.
Þau og skólarnir þeirra fengu viðurkenn-
ingarskjöl og einnig veitti Sparisjóður
Hafnarfjarðar peningaverðlaun.
Árið 2001 er evrópskt tungumálaár og af
því tilefni var óvæntur glaðningur á lokahá-
tíðinni í Hafnarfirði. Tvö börn úr 7. bekk
Hvaleyrarskóla, bæði nýbúar, fluttu ljóð á
sínu tungumáli. Drengur frá Kosovo las
ljóð á albönsku og telpa frá Póllandi ljóð á
pólsku. Ingibjörg Einarsdóttir bað gesti að
hugsa til þess undir lestri barnanna hvernig
væri fyrir börn innflytjenda að setjast í ís-
lenska skóla þar sem þau skildu ekki orð.
Lestur þessara tveggja barna var í hugum
margra hápunktur hátíðarinnar.
Lokahátíðir stóru upplestrarkeppninnar
standa til 30. mars. Hér er eindregið mælt
með því við áhugasama kennara að mæta á
hátíðina í sínu skólaumdæmi. Tímasetning-
ar og nánari upplýsingar um keppnina er að
finna á heimasíðu keppninnar. Slóðin er:
http://www.ismennt.is/vefir/
upplestur/heild.htm
Sigurrós Erlingsdóttir
Skóla l í f í land inu
11Lokahátíðir stóru upplestrarkeppninnar
„Að lesa og skrifa list er góð...“
Marsmánuður er tími lokahátíða
stóru upplestrarkeppninnar. Þessi
keppni er haldin meðal grunnskóla-
nemenda í 7. bekk og í ár tóku um
4000 nemendur þátt í henni.
Dagana 9.-10. mars var haldin í
Borgarholtsskóla ráðstefna um
upplýsingatækni í skólastarfi á
vegum menntamálaráðuneytisins.
Um 900 manns skráðu sig á ráð-
stefnuna og á annað hundrað
manns flutti erindi og kynningar.
Efni ráðstefnunnar var skipt niður á mál-
stofur. Ein þeirra var tileinkuð nýjum
kennsluaðferðum í háskólum, önnur
notkun tölva í leik- og grunnskólum og í
einni voru kynningar á tæknilausnum svo
eitthvað sé nefnt. Í málstofu sem var til-
einkuð fartölvuvæðingu framhaldsskóla
voru sagðar reynslusögur af gangi þeirra
mála, m.a. kynntu kennarar við Fjöl-
brautaskólann við Ármúla kennslu í
áföngum þar sem nemendur hafa fartölv-
ur. Fyrst lýstu Kristinn Kristjánsson og Ei-
ríkur Páll Eiríksson íslenskukennarar
hvernig þeir hafa nýtt sér netið við
kennslu sína. Því næst sagði Jóna Guð-
mundsdóttir stærðfræðikennari frá
reynslu sinni af kennslu nemenda með
tölvur. Hún sagði að mjög hefði reynt á
þolinmæði kennara í fyrstu á meðan
nemendur voru að kynnast nýju tölvun-
um/leikföngunum sínum. Þetta hefði
breyst smám saman og allt annað væri
að vinna með nemendum nú á vorönn.
Steinunn Hafstað kynnti fartölvuvæddan
dönskuáfanga og sagði meðal annars frá
því hvernig nemendur hennar hefðu nýtt
sér danskan vef og spjallrás til að þjálfa
og auka orðaforða sinn. Fyrir kennara
sem kenna í gamaldags stofnunum þar
sem nemendur mæta með töskur, bækur
og ritföng var áhugavert að hlusta á
reynslusögur og lýsingar þessara og fleiri
nútímalegra kennara!
Margt fleira spennandi var á ráðstefn-
unni og fögnuðu margir því að fá að
heyra frá ólíkum skólastigum og kynnast
þeim fjölbreyttu tækifærum sem eru fyrir
hendi. Þeim sem hafa áhuga á að heyra
meira af ráðstefnunni er bent á vef
Menntar:
http://www.mennt.is
Í fyrstu reyndi á þolinmæðina
Keppendur og erlendir ljóðalesarar frá
Hvaleyrarskóla ásamt forseta Íslands,
menntamálaráðherra og bæjarstjóranum í
Hafnarfirði.