Skólavarðan


Skólavarðan - 01.03.2001, Page 17

Skólavarðan - 01.03.2001, Page 17
Sjónarmið 19 „Einn réttur handhafi sannleikans“ Í grein Eiríks eru atriði sem ég tel rétt að staldra við. Í fyrsta lagi er það hárrétt að menn hafa á kjarasamningnum misjafnar skoðanir og þess vegna er hvorki til rétt skoðun né röng. Hins vegar eru til réttar og rangar túlkanir og þar er aðeins einn réttur handhafi sannleikans, nefnilega þeir sem gerðu samninginn. Þess vegna var sameig- inleg túlkun samninganefnda Félags grunn- skólakennara og launanefndar sveitarfélaga (LN) rétthærri en túlkun einstaka kennara og skólastjóra. Fréttabréf FG var eins og margoft hefur komið fram yfirlesið af samninganefnd LN og samþykkt af for- manni hennar, Birgi Birni Sigurjónssyni, enda notaði fulltrúi í samninganefnd LN það til dæmis til kynningar í Fræðsluráði Reykjavíkur. Forysta FG var réttur handhafi sannleikans þegar kom að því að túlka kjarasamninginn við kynn- ingu fyrir atkvæðagreiðsluna. Lágmarksundirbúningstími Í öðru lagi segir Eiríkur að næsta vetur eigi grunnskólakenn- arar að hugsa á þennan hátt: „Ég á að vinna fleiri daga en í staðinn á ég að eyða minni tíma í að und- irbúa kennslustundir.“ Viðbótar- dagarnir tíu verða til við tilfærslu úr vikulegum vinnutíma kennara sem var samkvæmt gamla kjara- samningnum 45,77 klukkustundir á viku en verður 42,86 í þeim nýja. Það er líka rétt að tími til undirbúnings fyrir hverja kennslustund var lengri í gamla samningnum en þeim nýja, eða 28 mínútur í stað 20 mínútna. Hins vegar vantar inn í þetta að í gamla samningnum voru 28 mínútur hámarks- jafnt sem lágmarkstími. Í nýja samningnum eru 20 mínútur lágmarksundirbúningur fyrir hverja 40 mínútna kennslustund og skólastjóri metur í samráði við hvern kenn- ara hvort þörf er fyrir rýmri undirbúnings- tíma. Þetta atriði er mjög einkennandi fyrir þá nýju hugsun sem kemur fram í kjara- samningnum; vald til að meta og ákveða fyrirkomulag á vinnutíma hvers kennara er að stórum hluta fært yfir til skólanna. Þannig er gert ráð fyrir því að skólastjóri og kennari komist að samkomulagi um út- færslu vinnunnar. Sem dæmi má taka hve mikinn viðbótarundirbúningstíma kennari þarf með tilliti til þeirra námsgreina og ald- urshópa sem hann á að kenna. Kennir hann nýtt námsefni? Er námsefni ef til vill af skornum skammti í greininni? Kennir hann aldurshópum sem hann hefur ekki kennt lengi? Eru viðfangsefnin mörg og ólík? Þarf hann að fara yfir margar ritgerðir og mikla heimavinnu? Öll þessi atriði kalla á meira en 20 mínútna lágmarksundirbún- ingstíma og þann tíma skal taka af 9,14 klukkustundum sem samkvæmt kjarasamn- ingnum eru önnur störf kennara undir verkstjórn skólastjóra. Umsjónarkennara- starf er metið sérstaklega við launaflokka- röðun en ekki tíminn sem fer í umsjónar- starfið. Hann þarf að skilgreina sérstaklega og taka af 9,14 klukkustundunum. Hvað gerist þegar þessar 9,14 klst. nægja ekki, eins og t.d. hjá sérkennurum? Þá er tvennt til ráða, annað hvort að lækka kennslu- skyldu eða greiða fyrir með yfirvinnu. Fáum við betri grunnskóla með þess- um kjarasamningi? Niðurstaða Eiríks er að þetta sé „einfald- lega lélegur samningur sem ekki muni leiða til þeirra breytinga á skólastarfi sem höf- undar hans hafa talið vísar.“ Höfundar samningsins stefna með honum að betra og árangursríkara skólastarfi. Markmiðið er að gera grunnskólann samkeppnisfæran og kennarastarfið eftirsóknarvert. Kjarasamn- ingurinn tryggir þau markmið ekki einn og sér. Hann getur hins vegar bætt skólastarf- ið. Allt veltur á þeim sem starfa eiga eftir honum. Samningurinn stýrir ekki fjármagni til skóla með alls kyns kvótum eins og sá eldri og þess vegna eiga sveitarfé- lög erfitt með að meta kostnað- inn við hann. Eins og margoft hefur komið fram var vinna við þessa kjara- samninga afar frábrugðin því sem við kennarar þekkjum. Samnings- aðilum tókst að yfirvinna þá tor- tryggni sem gjarnan hefur ein- kennt kjaraviðræður kennara og viðsemjenda þeirra. Við tömdum okkur vinnubrögð sem við þurf- um að koma til skila út í skólana til að koma í veg fyrir úlfúð og misklíð sem margir virðast óttast að sé fylgifiskur aukins sjálfstæðis skóla og meira valds skólastjóra. Ég vona að kennarar og skóla- stjórar sjái möguleikana sem felast í þessum kjarasamningi og að við leggjumst á eitt við að gera grunnskólann samkeppnisfæran og kenn- arastarfið eftirsóknarvert. Höfundur er formaður FG. Ég vil byrja á að þakka Eiríki Brynj- ólfssyni fyrir pistilinn og ritstjórn Skólavörðunnar fyrir að gefa mér tækifæri til að bregðast við honum. Kjarasamningurinn er umdeildur en hefur verið samþykktur af meirihluta félagsmanna. Það segir þó ekki alla söguna því að mikið veltur á fram- kvæmdinni, einkum í ljósi þess hve mikið vald er flutt yfir til kennara og skólastjóra í skólum. Þess vegna er mikilvægt að halda umræðu um hann lifandi. Guðrún Ebba Ólafsdóttir: Lifandi umræða mikilvæg Ég vona að kennarar og skólastjórar sjái möguleikana sem felast í þessum kjarasamningi og að við leggjumst á eitt við að gera grunn- skólann samkeppnis- færan og kennarastarfið eftirsóknarvert. „Menn hafa misjafnar skoðanir á kjarasamn- ingnum og þess vegna er hvorki til rétt skoðun né röng. Hins vegar eru til réttar og rangar túlkanir,“ segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.