Skólavarðan - 01.03.2001, Side 20
Skól i og samfélag
22
Nú eru 24 nemendur frá ýmsum þjóðlönd-
um í deildinni en flestir þeirra koma frá
Asíu. Þegar móttökudeildir voru settar á
laggirnar var ákveðið að hafa börn frá Asíu í
deildinni í Háteigsskóla. Talið var betra að
þau væru sem flest í einum skóla því að
börn þaðan þurfa lengri tíma til að ná tök-
um á íslenskunni en börn annars staðar frá
sökum þess hversu gjörólík íslenska er
þeirra móðurmálum að öllu leyti.
Rafvirki, landfræðingur og endur-
skoðandi
Santi Prangsri er fæddur í Tælandi í
janúar árið 1986. Hann hefur verið á Ís-
landi í þrjú ár og langar til að starfa sem
rafvirki í framtíðinni. Yanzhen Wu er fædd
í Kína í júlí sama ár. Hún hefur verið á Ís-
landi í átján mánuði og stefnir á að verða
landfræðingur. Óðinn Anuforo er jafnaldri
þeirra, fæddur í Nígeríu í júní 1986. Hann
hefur verið á Íslandi í tvö ár og hugur hans
stendur til að verða endurskoðandi. Þau eru
nemendur í níunda bekk skólans og taka
þátt í starfsemi móttökudeildarinnar þar
sem Helga Guðrún Loftsdóttir er við
stjórnvölinn.
Santi og Yanzhen voru fyrsta skólaárið
sitt hér á landi í móttökudeildinni þar sem
áhersla er á íslenskunám. Fljótlega fóru þau
að taka þátt í sérgreinum eins
og heimilisfræði og hand-,
mynd- og tónmennt. Óðinn
byrjaði í Háteigsskóla haustið
2000 en fyrsta árið á Íslandi
bjó hann í Stykkishólmi og
stundaði nám við grunnskól-
ann þar.
Íslenskukennsla fór þá fram
í gegnum kennsluna. Þegar
börnin höfðu náð nokkrum
tökum á málinu og umhverf-
inu í skólanum fóru þau út í
bekki.
Þau Santi, Yanzhen og Óð-
inn eiga öll sinn heimabekk, eins og það er
kallað. Þar taka þau taka þátt í því námi
sem fer fram, en þau koma í móttökudeild-
ina þegar bekkjarfélagar þeirra eru í ís-
lensku, dönsku og ensku.
Þau eru sammála um að reynslan af mót-
tökudeildinni sé góð og segja kennarana
góða. Heimabekkurinn skiptir þau samt
mjög miklu máli og kemur í veg fyrir að
þau einangrist. Þar kynnast þau skólafélög-
um sínum. Stundum bjóða þau krökkunum
í bekknum að koma í deildina og vinna að
verkefnum með þeim.
,,Við mættum að vísu gera meira af því til
að kynna hinum hvað fer fram í nýbúa-
deildinni,” segir Helga Guðrún.
Þrátt fyrir að börnunum líki vel í
Háteigsskóla væri þó betra ef þau gætu
verið í sínum hverfisskólum og myndað
tengsl við krakkana í hverfinu. Í framtíðinni
verður vonandi einhver sem sér um málefni
nýbúa í hverjum skóla.
Íslenskan ekkert svakalega erfið
Móttökudeildin hefur aðgang að túlkum
og í vetur eru sjö slíkir sem taka þátt í starf-
inu þar. Að vísu eru fleiri en sjö tungumál
töluð í Háteigsskóla en mörg barnanna geta
bjargað sér í gegnum námið án aðstoðar
túlks og mörg eru jafnvíg á íslensku og sitt
eigið móðurmál. Túlkar eru aðallega kall-
aðir til vegna foreldraviðtala og ef upp
koma einhver mál sem þarf að ræða ýtar-
lega.
Santi er mjög ánægður með námið, skól-
ann og krakkana og honum finnst tungu-
málið ekkert sérstaklega erfitt enda talar
hann orðið ágæta íslensku. Hann segir að
vel hafi verið tekið á móti sér og hann hafi
eignast marga vini. Yanzhen talar ekki eins
mikla íslensku og Santi en lætur vel af skól-
anum og íslenskunáminu. Í sama streng
tekur Óðinn. Hann á íslenska mömmu og
hefur ensku að móðurmáli og talar því
stundum ensku við skólafélaga sína.
Erfitt að byrja í íslenskum skóla
,,Það var erfitt að koma í skólann og geta
ekki talað við krakkana og það tók tíma að
kynnast þeim, en núna gengur mér mjög
vel og ég á fullt af vinum í
skólanum,“ segir hann. Hann segir skólana
í Tælandi vera allt öðruvísi en hér, þar sé
mun meiri agi og harka. Kennarar beiti
nemendur hiklaust ofbeldi, slái þá ef þeir
koma ólærðir í skólann og öskri oft á nem-
endur.
Krakkarnir eru allir sammála um að þeim
líki vel í skólanum og námsefnið sé
Háteigsskóli er einn af fimm skólum í
Reykjavík þar sem starfandi er mót-
tökudeild fyrir nýbúa. Sex ár eru síð-
an deildin var stofnuð og hefur hún
fyrir löngu sannað gildi sitt.
Skóli í samfélagi fjölmenningar, seinni grein
Frábært að vera í skólanum
- segja þau Santi, Yanzhen og Óðinn, nemendur í Háteigsskóla
Fjölbreyttara námsefni
vantar. Þarfir nemenda
eru mjög mismunandi og
það er leiðinlegt til
lengdar að fá bara ljós-
rituð verkefni en ekki
fallegar bækur með lit-
prentuðum myndum.
Þau Santi, Yanzhen og Óðinn segjast ekki
hafa orðið fyrir barðinu á kynþáttahatri og
þeim hafi verið tekið mjög vel á Íslandi.