Skólavarðan - 01.03.2001, Page 24
Kjaramál
26
Í kjarasamningum grunn-
skólans er það nýmæli að
skólastjóri hefur til umráða
fjárhæð sem svarar til þriggja
launaflokka kennara, leið-
beinenda og námsráðgjafa
við skólann. Þessa flokka á
hann að nota til að endurraða starfsheitum
eftir því hvernig störf skiptast, hvar þau eru
í skipuriti, ábyrgð, álagi og hve störfin eru
sérhæfð. Þegar horft er til ábyrgðar skal
hann athuga sérstaklega umfang umsjónar-
starfa, faglega, stjórnunarlega og fjárhags-
lega ábyrgð. Þá skal hann meta andlegt og
líkamlegt álag og persónulega færni. Ofan-
greinda þætti skal meta út frá viðvarandi og
stöðugum þáttum starfsins. Launaákvörðun
þessi gildir til eins árs, þ.e. frá 1. ágúst til 31.
júlí. Skólastjóri skal árlega endurskoða röð-
un samkvæmt þessu ákvæði út frá störfum
og persónulegri færni og við slíkt endurmat
geta laun kennara hækkað eða lækkað.
Leikreglur byggðar á málefnalegum
rökum
Skólastjóri ráðstafar launaflokkum úr
launapottinum eftir reglum sem hann hefur
áður kynnt öllum kennurum og skal í þeim
koma fram hvenær ákvörðun um launa-
flokkaúthlutun skal lokið. Reglur skóla-
stjóra verða að byggjast á málefnalegum
rökum. Með því er átt við að í þeim sé gætt
óhlutdrægni og þær byggist annars vegar á
mati á störfum einstaklinga og hins vegar á
mati á færni þeirra. Við undirbúninginn
verður skólastjóri að fara að rannsóknar-
reglum stjórnsýsluréttarins og uppfylla
jafnræðisreglur hans.
Mikilvægt er að kynna trúnaðarmanni
drög að reglum áður en frá þeim er gengið
og ennfremur er mikilvægt að upplýsa kenn-
ara um reglurnar og hvernig þeim er beitt.
Sérhver kennari á svo rétt á því að hon-
um sé í eigin persónu gerð grein fyrir mati
skólastjóra á störfum hans og færni með til-
liti til reglnanna. Ef hann er ósáttur við
niðurstöðuna getur hann kært málið til
næsta yfirmanns skólastjóra eða vísað mál-
inu til stéttarfélagsins ef hann telur að um
brot á samningnum sé að ræða.
Kennarar skólans eiga rétt á að fá að vita
hvernig flokkarnir skiptast og trúnaðar-
maður á jafnframt rétt á að fá upplýsingar
um forsendur skiptingarinnar.
Hannes Þorsteinsson
launafulltrúi FG
Grunnskólar
Launaflokkar sem skólastjóri hefur til umráða
Kröfugerð Félags tónlist-
arskólakennara og Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna
frá því í haust er enn í fullu
gildi og er þar efst á blaði
krafan um stórhækkuð
grunnlaun tónlistarskóla-
kennara. Eins og er hefur
tónlistarskólakennari með
12 til 15 ára tónlistarnám að baki 102.020
kr. í byrjunarlaun. Um það þarf vart að hafa
fleiri orð, launakjör tónlistarskólakennara
eru með öllu óviðunandi.
Meðal annarra mikilvægra þátta sem
samninganefndir FT og FÍH hafa lagt
áherslu á í samningaviðræðunum eru breyt-
ingar og ný áhersluatriði sem fylgja nýrri
aðalnámskrá tónlistarskóla og kalla á end-
urmenntun og endurskoðun á störfum tón-
listarskólakennara. Námið skiptist nú í þrjá
megináfanga og lýkur hverjum þeirra með
áfangaprófi þar sem samræmis er gætt og
ákveðnar lágmarkskröfur í námi eru
tryggðar. Lögð er áhersla á skapandi starf
og samleik í tónlistarnáminu og samþætt-
ingu í kennsluháttum.
Þegar samningsaðilar urðu ásáttir um að
gera með sér skammtímasamning í lok jan-
úar sl. bar mikið í milli og er því ljóst að
mikið og erfitt verk er fyrir höndum.
Samninganefnd Félags tónlistarskólakenn-
ara vill hér nota tækifærið og þakka fyrir
bréf sem barst nýverið frá tónlistarkennur-
um við Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar þar sem þeir hvetja fulltrúa sína í
samninganefnd til dáða.
51,5% félagsmanna tóku þátt í atkvæða-
greiðslu um nýgerðan skammtímasamning.
Það er vel viðunandi þegar litið er til þátt-
töku í atkvæðagreiðslum síðastliðinna ára
og tillit tekið til þess að starf tónlistarskóla-
kennara er mun einangraðra og einnig
dreifðara en til dæmis starf grunnskóla- og
framhaldsskólakennara.
Afar mikilvægt er að samninganefnd
félagsins finni fullan stuðning að baki sér í
viðræðunum sem nú fara í hönd og hún
hvetur tónlistarskólakennara til að sýna
samstöðu í verki. Mikið liggur við og á
brattann er að sækja!
Sigrún Grendal
Formaður Félags tónlistarskólakennara
Samkvæmt þeim skammtímasamn-
ingi sem tónlistarskólakennarar sam-
þykktu nýverið munu samninga-
nefndir Félags tónlistarskólakennara
og Félags íslenskra hljómlistarmanna
brátt hefja viðræður á ný við samn-
inganefnd launanefndar sveitarfélaga
um gerð kjarasamnings til lengri
tíma. Í yfirlýsingu með skammtíma-
samningnum er gert ráð fyrir að
samningsaðilar hittist á nýjan leik
eigi síðar en 15. apríl nk.
Tónlistarskólar
Á brattann að sækja
Evrópsku kennarasamtökin ETUCE
(European Trade Union Committee for
Education) og evrópsku foreldrasamtökin
EPA (European Parents Association) hafa
samþykkt yfirlýsingu um árangursríkt
tungumálanám. Hún var undirrituð í
Reykjavík þann 26. nóvember sl. þegar
margir fulltrúar beggja samtakanna komu
saman í tengslum við ráðstefnu um fram-
lag foreldra í tungumálanámi. Í yfirlýsing-
unni er m.a. rætt um mikilvægi málafærni í
alheimsvæðingu og fjölmenningu samtím-
ans. Samtökin fagna ákvörðun ráðherra-
nefndar ES og Evrópuþingsins um að lýsa
árið 2001 evrópskt tungumálaár. Þarna er
einnig að finna tillögur að því hvernig ná
megi fram betri árangri í tungumálanámi
og -kennslu, en yfirlýsinguna í heild er að
finna á heimasíðu Kennarasambandsins.
Yfirlýsing um
tungumálanám
F r é t t i r
Á aðalfundi Félags dönskukennara sem
haldinn var 16. febrúar sl. lét Þyri Kap Árna-
dóttir af formennsku í félaginu, en í hennar
stað var Hafdís Bára Kristmundsdóttir kenn-
ari í Garðaskóla kjörin formaður.
Aðrir í stjórn félagsins eru:
Varaformaður: Jette Dige Pedersen
(Borgarholtsskóla).
Gjaldkeri: Marta Guðmunsdóttir
(Árbæjarskóla).
Ritari: Bergljót Böðvarsdóttir (Rimaskóla).
Meðstjórnendur: Ágústa Harðardóttir
(Laugalækjarskóla), Ásdís Ásmundsdóttir
(Fjölbrautaskólanum við Ármúla) og
Guðrún Ragnarsdóttir (Menntaskólanum í
Reykjavík).
Netfang Hafdísar Báru Kristmundsdóttur,
formanns Félags dönskukennara, er
hafdisbara@isl.is.
Ný stjórn í Félagi
dönskukennara