Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 3

Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 3
4 Leiðar i Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Hönnun: Penta ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson Teikningar: Ingi Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470 Prentun: Prentsmiðjan Grafík / Gutenberg ehf. Forsíðumynd: : Jón Svavarsson / tekin í Fossvogsskóla. Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi). Dýrð hins óvænta - ásýnd hlutanna Sagt er að maður nokkur hafi einhverju sinni vikið sér að Picasso og spurt: - Af hverju málarðu ekki heiminn eins og hann er? - Ég er ekki viss um að ég skilji hvað þú átt við, svaraði Picasso. Maðurinn tók þá mynd upp úr pússi sínu og sýndi listamanninum. - Sjáðu, sagði hann, - eins og þetta. Svona lítur konan mín út. Picasso horfði nokkra stund á ljósmyndina af eiginkonu mannsins og sagði svo: - En hún er mjög lítil, er það ekki? Og frekar flöt? Svona getur heimurinn litið út á ýmsan hátt eftir því hvernig - og hver - skoðar. Listamenn gefa okkur iðulega ný sjónar- horn til að skoða hlutina út frá. Í menntun á öllum skólastigum er þetta eitt það mik- ilvægasta: Að hrista upp í viðtekinni sýn á námsefnið og vekja þannig áhuga nem- andans og athygli. Forsenda þess að hann læri nokkurn skapaðan hlut. Nemendur í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskóla þurfa ekki mikla hvatningu, það nægir að kennarinn mæti með skrítinn hatt eða segi eina setningu lágri, dularfullri röddu og athyglinni er náð. Á eldri skólastigum þarf örlítið að þróa innkomu hins óvænta en varla að ráði. Öll áttum við uppáhaldskennara í framhaldsskóla sem voru ekkert svo frábrugðnir hinum nema þeir höfðu þetta eitthvað; eldmóðinn, áhugann, frásagn- argleðina. Eitthvað óvænt, ásamt því að nemandinn finnur að kennar- inn hefur áhuga á honum og gefur til kynna: Mér þykir vænt um þig og saman eigum við eftir að læra allt mögulegt skemmtilegt. Undanfarna tvo áratugi eða svo hefur þverfagleg vinna orðið æ fyrir- ferðarmeiri í háskólastarfi og ágóði þess að skyggnast handan við hornið er núorðið almennt viðurkenndur, þótt enn gæti líka gamla við- horfsins að halda fast um sitt. Skilningur okkar á orðinu þverfaglegt felur oftast í sér samvinnu en það er líka þverfaglegt að skoða hvernig aðrir gera hlutina og apa það upp sem hentar. Hér að ofan minntist ég á framlag listamanna við að nálgast heiminn en kennarar eru ef til vill kunnugri aðferðum heimspekinga. Heimspekingar hafa, því miður stundum réttilega, verið ásakaðir um að sitja sem fastast í fíla- beinsturni sínum og tala einungis hver við annan. Þetta er þó að breyt- ast með aukinni - og leiðandi - þátttöku þeirra í umræðu um ýmis sið- ferðileg álitaefni. Og heimspekingar hafa reyndar látið mjög til sín taka í samfélagsumræðu gegnum aldirnar, frægasta dæmið er auðvitað Sókrates sem frammi fyrir dauðanum lýsti sjálfum sér sem broddflugu að angra latt hross (Aþenu). Er til betri hetjusaga að segja börnum en sagan af manninum sem var óþreytandi við að fá samferðamenn sína til að efast um gildi viðtekinna venja og lét lífið fyrir vikið? Og Epíkúr- us, heimspekingurinn sem kalla mætti fyrsta hippann, keypti sér hús með vinum sínum fyrir utan ys og þys borgarinnar og ræktaði garðinn sinn. Epíkúrus var lífsnautnamaður og að ósekju bendlaður við ofát, ofdrykkju, kynlífsöfga og hvaðeina með forskeytinu of- fyrir framan. En lífsnautnir að mati Epíkúrusar fólust ekki í neinu af þessu. Þær voru að- allega þrennt: Góðir vinir, frelsi og greinandi hugsun. Einungis með aðgangi að þessu þrennu getur manninum liðið vel og notið sannra lífsnautna. Í baráttunni gegn hlutadýrkun, neyslu vímuefna og firringu er Epíkúrus því betri og óvæntari félagsskapur en margir halda. Í stór- skemmtilegri bók sem ber titilinn The Consolations of Philosophy segir Alain de Botton frá því hvaða huggun megi sækja til þeirra Sókratesar og Epíkúrusar og fjögurra annarra að auki; Seneca, Montaigne, Schopenhauer og Nietzsche. Bók sem óhætt er að mæla með. Kristín Elfa Guðnadóttir Efni Greinar Frá Plató til Nató 7 Sl. vor var haldið söguþing í Reykjavík og meðal góðra gesta var sögukennarinn Sue Bennett frá Bretlandi, fráfarandi formaður Evrópusamtaka sögukennara. Margrét Gestsdóttir notaði tækifærið og tók við hana stórskemmtilegt viðtal. Flötur með spennandi námstefnu 10 á umbrotatímum í símenntun kennara. Birna Hugrún Bjarnar- dóttir formaður Flatar segir frá haustnámstefnu félagsins, sem er þróuð í samræmi við óskir félagsmanna. Strax orðinn öflugur 12 Í stjórn Sjúkrasjóðs KÍ situr fólk með metnað, eins og fram kemur í viðtali Skólavörðunnar við Maríu Norðdahl, konuna sem tekur á móti styrkumsóknunum. Þetta er auðvelt. Þetta er gagnvirkt. Þetta er SMART. 14 Ólafur Sigurðsson hjá fyrirtækinu Varmás er umboðsaðili fyr- ir gagnvirku töfluna sem íslenskir kennarar falla unnvörpum fyrir, eftir að hafa kynnst henni í skólaheimsóknum og á tölvusýningum erlendis. Leikskólinn vill grænfánann 18 segir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri Norðurbergs í Hafnarfirði, sem er í farabroddi hvað varðar umhverfismennt. Fossvogsskóli er hins vegar þegar búinn að hljóta þennan eftirsótta fána (bls. 20) og mynd þaðan prýðir einmitt forsíðu Skólavörðunnar að þessu sinni. Skóli er ekki bara hús 22 heldur samfélag nemenda og starfsfólks, segir skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, Helgi Ómar Bragason í viðtali við Steinunni Þorsteinsdóttur. Starfsmannabreytingar í Kennarahúsi 24 Talsverðar breytingar hafa orðið á starfsmannahópnum í Kennarahúsinu á þessu ári og þarft fyrir félagsmenn að átta sig á hverjum þeir hafa aðgang að í hverju máli fyrir sig. Nýtt orlofshúsahverfi rís í Heiðarbyggð 26 Nýverið voru sex glæsileg orlofshús tekin í notkun í Heiðar- byggð í Hrunamannahreppi. Fastir liðir Formannspistill 3 Elna Katrín Jónsdóttir skrifar. Gestaskrif 5 Hlín Agnarsdóttir býður upp á leikrænan uppáhelling. Skóladagar 16 Myndasaga Skólavörðunnar. Smiðshöggið 30 Guðrún Snorradóttir skrifar. Auk þess Evrópska málamappan, vefefni Námsgagnastofnunar, landsmót barnakóra, kjaramál, námsstyrkir og margt fleira.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.