Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 9
Í leikskólum og tónlistarskólum eru enn
sem komið er ekki jafnmiklar hræringar,
enda umhverfið nokkuð ólíkt með tilliti til
símenntunar, en kennarar á þessum skóla-
stigum gera ekki síður kröfur um aðgang
að góðri símenntun og umræðan fer sífellt
vaxandi. Margir telja að þótt símenntun
með breyttu sniði fylgi vissulega ýmsir
kostir geti mikilsverðir þættir einnig farið
forgörðum. Sú hætta skapist að skólar
kaupi misgóð námskeið fyrir starfsmenn
sína af þeim einkaaðilum sem duglegastir
eru að kynna starfsemi sína og með því að
færa símenntun inn í skólana hittist kenn-
arar víða að af landinu ekki lengur og beri
saman bækur sínar. Mikilvægt sé að áfram
verði tryggður vettvangur fyrir slíka fundi.
Samtök stærðfræðikennara, Flötur, ríða
nú á vaðið með símenntunartilboð sem
sameinar kosti beggja forma. Dagana 11.
og 12. október nk. standa samtökin fyrir
námstefnu í Reykholti í Borgarfirði með
fjórum námskeiðum sem ætluð eru kennur-
um á grunn- og framhaldsskólastigi. Í
framhaldi af námstefnunni halda námskeið-
in áfram inni í skólunum og lýkur með
sameiginlegum fundi þátttakenda hvers
námskeiðs í mars 2003. Við náðum tali af
Birnu Hugrúnu Bjarnardóttur formanni
Flatar til að forvitnast um námstefnuna.
Allir hittast en halda svo áfram hver
á sínum stað
„Við höfum hingað til haldið eitt til þrjú
námskeið fyrir stærðfræðikennara á hverju
sumri en þar sem starfstími skóla hefur
lengst og kennarar eru hættir að fá punkta
fyrir sumarnámskeið er ekki lengur grund-
völlur fyrir slíku,“ segir Birna Hugrún.
„Við í stjórn Flatar veltum því fyrir okkur
þessari spurningu: Hvernig getum við sem
best stutt við kennara og séð þeim fyrir sí-
menntun? Við ákváðum að spyrja þá sjálfa
og lögðum óformlega könnun fyrir stærð-
fræðikennara í grunnskólum þar sem spurt
var hvernig símenntunartilboðum þeir
hefðu helst áhuga á, hvað form þeir kysu
og á hvaða árstíma. Einnig leituðum við til
kennarahópa í framhaldsskólum og fengum
eitt heildarsvar frá hverjum hópi þar. Það
kom í ljós að kennarar vilja stunda sí-
menntun sína á starfstíma skóla og geta
haldið henni áfram í starfinu með verkefn-
um, umræðu og styrkingu. Grunnskóla-
kennarar sýndu mestan áhuga á símenntun
tengdri kennsluháttum og hugmyndafræði
í framhaldi af nýrri námskrá og nýju náms-
efni, en framhaldsskólakennarar voru
áhugasamari um þrengra svið eða námskeið
í einstökum þáttum innan stærðfræðinnar.
Í framhaldi af þessu ákváðum við að
standa fyrir námstefnu með fjórum nám-
skeiðum, málstofum, fyrirlestri og pall-
borðsumræðum. Námstefnan er fjármögn-
uð með námstefnugjöldum og styrkjum frá
Endurmenntunarsjóði grunnskóla og end-
urmenntun Háskóla Íslands. Við erum
búin að senda út bréf til kynningar á nám-
stefnunni og auk þess getur fólk kynnt sér
efni hennar á heimasíðu okkar, www.
ismennt.is/vefir/flotur“
Fjölbreytt námstefna
Tvö námskeiðanna eru hugsuð fyrir
kennara í 1. til 10. bekk grunnskóla. Annað
fjallar um fjölbreytta kennsluhætti en hitt
um hugmyndafræði í tengslum við nýtt
námsefni og nýja námskrá. Hin námskeiðin
tvö taka mið af kennslu á unglingastigi
grunnskóla og framhaldsskólastigi. Annað er
um tölfræði en hitt um rúmfræði. Sá hluti
námskeiðanna sem kenndur er á námstefn-
unni er tíu kennslustundir, síðan er vinna á
vettvangi, samskipti á neti og lokafundur í
mars. Námstefnan sjálf samanstendur af
námskeiðum, málstofum, fyrirlestri og pall-
borði og að auki er sameiginlegur kvöld-
verður og kvöldvaka á föstudagskvöldinu.
Hver þátttakandi getur sótt eitt námskeið og
tvær málstofur og þátttakendur geta valið
tvær af átta málstofum alveg óháð nám-
skeiðum. Sumar málstofurnar eru ótengdar
öllum námskeiðunum en aðrar tengjast
þeim að einhverju leyti. Fyrirlesturinn
heldur Anna Kristjánsdóttir en hún tekur
einnig þátt í pallborði sem haldið er seinni
daginn auk fulltrúa frá Námsmatsstofnun,
framhaldsskólanum, tveggja kennara
sem koma að samningu námsefnis og eins
sem hefur komið að samningu samræmdra
prófa.
„Samræmd próf eru náttúrlega mikið
rædd um þessar mundir,“ segir Birna Hug-
rún, „og þarna gefst kennurum í grunn- og
framhaldsskólum tækifæri til að bera saman
bækur sínar.“
Eins og áður er sagt halda námskeiðin
áfram inni í skólunum fram eftir vetri.
Þátttakendur fá ýmist lesefni eða verkefni
til að vinna með nemendum eftir því hvaða
námskeið þeir sátu og verða í netsambandi
við kennara á námskeiðunum.
Skráning á námstefnuna fer fram
á heimasíðu Flatar, www.ismennt.is/
vefir/flotur
keg
Stærðfræði
10
Um þessar mundir ríkja miklir um-
brotatímar í símenntun kennara eins
og allir vita og sumarnámskeiðin
heyra að segja má sögunni til. Á
grunnskólastigi horfir í að símenntun
muni að miklu leyti fara fram innan
skólanna sjálfra og á starfstíma
þeirra. Þessarar þróunar gætir einnig
á framhaldsskólastigi.
Flötur með spennandi
námstefnu
á umbrotatímum í símenntun kennara
„Við í stjórn Flatar veltum því fyrir okkur þessari spurningu: Hvernig getum við sem best stutt við
kennara og séð þeim fyrir símenntun?“ segir Birna Hugrún Bjarnardóttir.