Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 23

Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 23
Orlofssjóður bauð fjölmiðlafólki að skoða húsin á þessum tímamótum og voru allir á einu máli um að sérlega vel hefði tekist til með hönnun þeirra. Í blaðinu Sumarhúsið birtist síðan ítarleg grein um orlofshúsin í Heiðarbyggð skreytt mörgum myndum auk þess sem sagt var frá húsun- um í fleiri fjölmiðlum. Orlofshúsin eru hönnuð þannig að þau geti hentað fyrir tvær fjölskyldur. Þau skiptast í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Í tveimur svefnherbergjanna eru hjónarúm og þriðja herbergið er með tveimur kojum. Barnarúm og barnastólar eru í öllum hús- unum. Svefnpláss, sængur og kodd- ar eru fyrir 8 manns. Húsin eru vel búin húsgögnum og tækjum. Meðal þeirra hluta sem fylgja hverju húsi eru: uppþvottavél, útvarp/geislaspilari, sjónvarp og úti- grill. Við húsin er 40 fm verönd og heitur pottur. Orlofshúsin eru timburhús á steyptum grunni. Hvert hús er 87,1 fm og 313 fm að stærð. Að utan eru húsin klædd með galvaniseruðu bárujárni og bandsöguðu timbri. Þak er hallandi sperruþak klætt bárujárni. Að innan eru húsin klædd birkikrossviði. Á gólfum eru steinflísar og línoleumdúkur. Hitakerfið er á varmaskipti og gólfgeisli í hluta gólfa. Hreinlætis- og raflagnir eru hefðbundnar. Í framtíðinni er stefnt að því að reisa allt að 18 hús á svæðinu. Næsta verkefni er bygging félagshúss í Heiðarbyggð með fundarsal fyrir 50 manns. Ekki hefur verið ákveðið hvenær hafist verður handa við 2. og 3. áfanga. Trjáræktarátak er nú þegar hafið og hafa um 1400 plöntur verið gróðursettar. Búið er að ganga frá tveim leiksvæðum og körfu- boltavelli frá Barnasmiðjunni. Arkitekt húsanna er Albina Thordarson. Orlofss jóður 26 1. áfanga við uppbyggingu nýs orlofs- húsahverfis Kennarasambands Ís- lands við Háamóa í Heiðarbyggð í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi er lokið og voru sex glæsileg orlofshús sem þar hafa verið byggð formlega tekin í notkun snemma í júlí. Nýtt orlofshúsahverfi Kennarasambands Íslands í Heiðarbyggð Eignir orlofssjóðs Á síðustu tveimur árum hefur Orlofssjóður KÍ aukið verulega eignir sínar. Hann á nú eftirfarandi eignir: • Heiðarbyggð í Hrunamannahreppi, 6 orlofshús. • Ásabyggð í Hrunamannahreppi, 13 orlofshús. • Kjarnaskógur Akureyri, 3 orlofshús. • Einnig á sjóðurinn tvö orlofshús í Reykjavík: • 4 íbúðir og 5 herbergi að Sóleyjargötu 33, • 6 íbúðir að Sóleyjargötu 25. Þá á Orlofssjóður 4 tjaldvagna sem leigðir eru félagsmönnum yfir sumartímann viku í senn. Í sumar voru 63 orlofsstaðir í boði fyrir félagsmenn Kennarasambandsins með 103 leigueiningum, samtals 1200 leiguvikur á Íslandi og Spáni. Frekari upplýsingar á heimasíðu Orlofssjóðs: http://www.ki.is/orlof/.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.