Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 18

Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 18
Mótið var sett í kirkjunni klukkan 17.00 á föstudeginum. Þar var börnunum skipt niður í raddir, þau fengu hvert sitt æfinga- hefti og byrjað var að kenna og æfa nokkur af þeim lögum sem öll börnin áttu að syngja saman. Þess ber að geta að Þórunn Björnsdóttir, tónmenntakennari og kór- stjóri í Kópavogi, á allan heiðurinn af því að setja saman sönglagaheftin og voru þau sérstaklega aðgengileg og vönduð í alla staði. Að lokinni setningu og söng var sest til borðs í félagsheimilinu (hótelinu) og kokk- urinn hafði vart undan að sjóða spagetti og steikja hakk ofan í svanga ferðalanga. Þegar allir voru orðnir saddir og sælir hófst fjörug kvöldvaka þar sem hver kór kom með tilbúið atriði að heiman og svo var dansað við dynjandi tónlist. Laugardagur Við vöknuðum eldsnemma í sannkallaðri rjómablíðu og eftir staðgóðan morgunverð var krökkunum skipt niður í þrjá hópa eftir aldri, getu og kyni. Hópur A, 150 stelpur á aldrinum 9-11 ára, æfði sín lög í sal Tón- listarskólans. Hópur B, 200 stúlkur á aldr- inum 12-14 ára, æfði í kirkjunni og 60 strákar á aldrinum 10-15 ára æfðu í nýja barnaskólanum undir styrkri stjórn Hreið- ars Inga, en hann kom sérstaklega til að æfa þá. Kórstjórar röðuðu sér niður á hópana og nú var hafist handa við að kenna og æfa hvert lagið á fætur öðru í tveimur eða þremur röddum. Í hvert sinn sem and- litin á börnunum voru farin að grána voru gerð stutt hlé til að úthluta aukaorku úr nammipokum og voru nokkrir orðnir mjög sjóaðir eftir helgina í að „sýnast“ þreyttir. Eftir pizzuveislu í hádeginu var sameigin- leg æfing í íþróttahúsinu þar sem lokatón- leikarnir áttu að fara fram og að henni lok- inni fóru allir krakkarnir í sund og bátsferð með Baldri. Við vorum svo heppin að Breiðafjörðurinn skartaði sínu fegursta þennan dag og skipstjórinn sagði jafnóðum frá því sem fyrir augun bar. Að loknum kvöldverði var haldið í kirkj- una á tónleika þar sem hver kór steig á stokk og söng eitt til tvö lög. Efnisskráin var að vonum mjög skemmtileg og fjöl- breytt en vinsælasta lagið þetta árið var „This a little light of mine“ (ísl. Ég á lítið fallegt ljós) en a.m.k. þrír kórar sungu það við mikinn fögnuð áheyrenda. Sunnudagur Stuttar æfingar voru í öllum hópum fyrir hádegi. Eftir að krakkarnir höfðu pakkað saman öllu sínu dóti á gististöðunum, kjammsað á grilluðum kjúklingum, þvegið sér og farið í kórbúninga var komið að stóru stundinni. Nú skyldi afrakstur helg- arinnar fluttur í íþróttahúsinu fyrir heima- menn og þá foreldra sem fengu sér sunnu- dagsbíltúr til þess að hlýða á. Það voru þreytt en afskaplega ánægð börn sem keyrðu af stað frá Stykkishólmi um kaffileytið á sunnudeginum með koll- ana fulla af fallegum lögum sem sungin voru alla leiðina heim. Helgin var í alla staði vel heppnuð; frábærir krakkar, falleg tónlist, öll aðstaða og aðbúnaður til fyrir- myndar og guðdómlegt veður. Betra er ekki hægt að óska sér. Í lokin langar mig að þakka öllum í Stykkishólmi sem lögðu sig fram um að gera þetta mót svo glæsilegt og þá sérstaklega Ingibjörgu Þorsteinsdóttur skólastjóra Tónlistarskólans, Sigrúnu Jóns- dóttur kórstjóra og Gunnari Svanlaugssyni skólastjóra grunnskólans. Sigríður Ása Sigurðardóttir, tónmenntakennari í Háteigsskóla og for- maður Tónmenntakennarafélags Íslands. Kóramót Landsmót íslenskra barnakóra var haldið helgina 15.-17. mars sl. í þrett- ánda sinn. Að þessu sinni var mótið í Stykkishólmi og tóku rúmlega 400 börn úr 18 kórum þátt. Ég á lítið fallegt ljós 21 Efnisskrá Hópur A Dagný. Lag: Sigfús Halldórsson. Ljóð: Tómas Guðmundsson Lítill fugl. Lag: Sigfús Halldórsson. Ljóð: Örn Arnarson Litla flugan. Lag: Sigfús Halldórsson. Ljóð: Sigurður Elíasson Þau eiga draum. Lag: Sigfús Halldórsson. Ljóð: Guðjón Halldórsson Marteinn H. Friðriksson raddsetti öll lögin. Hópur B Malaika Swahili, þjóðlag frá Kenya Söngur um frelsi. Lag: Mikis Theodorakis, ísl. þýð. Grétar Halldórsson Söngur Önnu. Lag: J. Denver, ókunnur textahöfundur Tutira mai, maorískt þjóðlag Vorvísa. Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Laxness Hópur C Amigos para sempre. Lag: Webber, ísl. texti: Einar Steinþórsson Á Sprengisandi. Lag: Sigvaldi Kaldalóns. Ljóð: Grímur Thomsen Brennið þið vitar. Lag: Páll Ísólfsson. Ljóð: Davíð Stefánsson Hraustir menn. Lag: Sigmund Romberg. Ljóð: Jakob Smári Kum ba yah! Negrasálmur Kveðið eftir vin minn. Lag: Hörður Torfason. Ljóð: Halldór Laxness Í lokin sungu öll börnin saman fjögur lög, öll við ljóð Halldórs Laxness í tilefni af aldarafmæli nóbelskáldsins 23. apríl. Það voru lögin: Bráðum kemur betri tíð, lag: Ingi T. Lárusson, raddsetn.: Marteinn H. Friðriksson Barnagæla, lag: Jón Ásgeirsson, raddsetn.: Marteinn H. Friðriksson Klementínudans, lag: Atli Heimir Sveinsson Maístjarnan, lag: Jón Ásgeirsson Barnakór Dómkirkjunnar, kórstjóri Kristín Valsdóttir, Kór Engjadalsskóla og Víðistaðakirkju, kórstjóri Áslaug Bergsteinsdóttir, Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, kórstjóri Linda Margrét Sigfúsdóttir, Barnakór Háteigskirkju, kórstjóri Birna Björnsdóttir, Kór Heiðarskóla, kórstjóri Ragna Kristmundsdóttir, Kór Hjallaskóla, kórstjóri Guðrún Magnúsdóttir, Barnakór Hofstaðaskóla, kórstjóri Hildur Jóhannesdóttir, Skólakór Hólmavíkur, kórstjóri Steingrímur Þórhallsson, Kór Hvassaleitisskóla, kórstjóri Kolbrún Ásgrímsdóttir, Barnakór Kársnesskóla, kórstjóri Þórunn Björnsdóttir, Barna- og unglingakór Selfosskirkju, kórstjóri Glúmur Gylfason, Barnakór Setbergsskóla, kórstjóri Elísabet Þ. Harðardóttir, Kór Snælandsskóla, kórstjóri Heiðrún Hákonardóttir, Barnakórinn í Stykkishólmi, kórstjóri Sigrún Jónsdóttir, Kór Tónlistarskólans í Grindavík, kórstjóri Rósalind Gísladóttir, Kór Tónlistarskóla Sigursveins, kórstjóri Elfa Lilja Gísladóttir, Barna- og unglingakór Varmárskóla, kórstjóri Guðmundur Ómar Óskarsson.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.