Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 4

Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 4
Ég kom heim frá Svíþjóð 1981 og hafði þá lokið háskólaprófi í leiklistarfræðum við Stokkhólmsháskóla. Fyrsta hluta þess náms stundaði ég í bókmenntadeild Háskólans í Uppsölum. Þar var ver- ið að gera tilraun með árs nám í því sem Svíar kölluðu Yrkesin- riktad drama (leiklist í starfi) og var aðallega ætlað móðurmáls- kennurum á ýmsum skólastigum. Hugsunin var að tengja saman móðurmál og leiklist. Þetta nýja nám heillaði og höfðaði til fleiri en móðurmálskennara, m.a. þeirra sem vildu kenna almenna leik- list í skólakerfinu. Það komust aðeins 30 nemendur að í þetta tilraunanám og mikið var lagt upp úr hópstarfi og samvinnu. Í nýbyggingu Háskólans í Uppsölum, Humanistcentr- um, sem var glæsileg og framúrstefnuleg bygging í þessum gamla háskólabæ, var innréttað svokallað „dramaherbergi“ í kjallar- anum og það teppalagt út í öll horn með þykku ullar- teppi. Í dramaherberginu voru hvorki borð né stólar heldur sátum við á gólfinu með krosslagða fætur eins og börn á moldargólfi í þriðja heimin- um og hlustuðum á kennarana flytja speki sína um mátt leiklistar í skapandi hugsun og skólastarfi. Þeir sem vildu hafa mýkra undir rasskinn þurftu að skaffa sínar sessur sjálfir. Þetta var 1976 þegar ungt fólk trúði enn á mátt mannsandans en hafði ekki hugmynd um hvað hlutabréf og verðbréf yrðu snar þáttur í framtíðinni og hvað það skipti miklu máli að fara í „rétt“ nám, námslánin ekki einu sinni verðtryggð. Þaðan bárust ósjaldan undarleg öskur... Ég lá aðallega á maganum þennan vetur með hönd undir kinn og fékk stundum móral yfir því að vera á námslánum við þetta, sér- staklega þegar mér fannst kennararnir ekki nógu gáfaðir fyrir mig. Ég vildi nefnilega fá svo mikið út úr náminu og vildi hafa stöðugt vit í því sem ég var að læra. Ég vildi að þetta væri alvöru háskóla- nám þótt það færi ekki fram í hefðbundnu fyrirlestraformi. Það var ekki laust við að aðrir stúdentar háskólans rækju upp stór augu þegar þeir heyrðu hvað færi fram í dramaherberginu. Þaðan bárust ósjaldan undarleg öskur, óp og læti sem end- urómuðu um alla þessa fínu akademísku byggingu og við nemendurnir vor- um stundum litin horn- auga í matsalnum í hádeginu þar sem verðandi markaðsfræðingar og lögfræðingar sátu bældir og þöglir og þorðu varla að borða af ótta við að opna munninn of mikið til að stinga upp í sig skeið af flesksúpu og bita af pönnuköku með týtuberjasultu. Margir voru skíthræddir við þetta skrítna dramalið sem klæddi sig í litrík föt, Ges task r i f Sumir nemendur kunnu sér ekkert hóf og tjáðu sig heil ósköp um hvað einhver annar í grúppunni væri frekur og framúrskarandi leiðinlegur og þá var gjarnan rifist og grátið og rokið út með látum og móðgast. Allur tilfinn- ingaskalinn var spilaður upp og niður og sumir þóttust miklu betri manneskjur á eftir og hafa lært eitthvað af viti um sjálfa sig og aðra. 5 Að læra og kenna af list

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.