Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 7

Skólavarðan - 01.09.2002, Blaðsíða 7
Ég held að æ fleiri lönd séu farin að nota próf sem eru útbúin á afar snjallan hátt hvað varðar frumheimildir og gagnrýna hugsun og hafa markmið sem snúast um útskýringar, skilning og mat. Þekking án skilnings er ekki mikils virði - það er færni sem dugar vel í spurningaþáttum en kemur að litlu gagni þess utan. Nú hefur saga orð- ið geysilega vinsælt sjónvarpsefni í Englandi, sbr. þætti um sögu Englands sem sýndir eru á BBC Prime. Hún er líklega eitt vinsælasta fjölmiðlaefnið á okkar dög- um og reyndar virðist allt sem snertir arf- leifðina vera vinsælt. Og þarna held ég að sögukennarar gegni mikilvægu hlutverki við að hjálpa nemendum að átta sig á að hver sjónvarpsþáttur eða kvikmynd sýnir aðeins túlkun viss hóps fólks á sögunni. Ef ungt fólk hefur ekki forsendur til að skilja það getur það auðveldlega orðið fórnar- lömb þeirra sem misnota söguna beinlínis í margvíslegum tilgangi. Getur þú sem reyndur kennari mælt með einni aðferð sem sé öðrum betri til að kenna ungu fólki það sem við höfum verið að tala um? Nei. Hver kennari verður að finna sína eigin aðferð. Til eru dásamlegir kennarar sem gera helst ekkert annað en að tala en eiga létt með að fá nemendur í umræður. Þeir kunna að ná svipuðum árangri og aðrir sem nota mun líflegri og fjölbreyttari aðferðir. Kennarar verða að prófa hversu vel aðferðir þeirra þjóna þeim markmiðum sem þeir hafa í huga. Ef til væri hin eina rétta aðferð væri sköpunarkraftur kennar- ans fyrir bí. Það skemmtilega við að kenna er að fara inn til nemendahópa með mis- munandi hugmyndir um hvað eigi að gera í hvert sinn. Þetta er rétt eins og að opna matreiðslubók og velja uppskrift í samræmi við þá útkomu sem mann fýsir að fá í það skiptið. Nú stöndum við íslenskir sögukenn- arar í fyrsta skipti frammi fyrir sam- ræmdum söguprófum í náinni framtíð. Hvaða ráð getur þú gefið okkur í þeim efnum? Hver er tilgangur samræmdu prófanna? Að auðvelda æðri skólum að meta nemendur sem eru að sækja um inngöngu. Þannig að þetta er krafa háskólanna. Kannski ætti að hugsa prófin líka út frá vinnuveitendum, hvað vilja þeir að fólk kunni? Vilja menn í raun og veru að nem- endur kannist við söguna frá Plató til Nató eða vilja menn að þeir geti rökstutt niður- stöður sem byggjast á þekkingu og skiln- ingi, á gagnrýnni skoðun heimilda? Þarf að hafa alla söguna undir þegar þetta er mælt eða er hægt að gera það út frá tilteknum hlutum hennar? Hvar eiga nemendur að hafa yfirsýn og hvar eiga þeir að geta kafað dýpra ofan í viðfangsefnin? Ekki er mikið vit í því að reyna að prófa úr allri sögunni. Afar fáir munu geta gert sér varanlegan mat úr þeirri þekkingu og erfitt er að mæla annað en það hvort nemendur hafa náð sér í bita hér og þar. Eftir margra ára sögunám getur slíkt próf ekki haft annað í för með sér en gífurlega yfirlegu rétt fyrir sjálft prófið. Að hvaða notum kemur það háskól- anum sem spyr? Að hvaða gagni getur yfir- borðsleg þekking komið í samanburði við dýpri skilning og færni? Í sumum löndum er mikil fjarlægð á milli sagnfræðinga í háskólum og sögu- kennara - þetta sýnist mér sem betur fer Sögumenntun 8 „Spurningin um réttmæti og tilgang samræmdra prófa er í beinu samhengi við tilgang sögukennslu yfirleitt í hverju landi,“ segir Sue Bennett og spyr: „Vilja menn í raun og veru að nemendur kannist við söguna frá Plató til Nató eða vilja menn að þeir geti rökstutt niðurstöður sem byggjast á þekkingu og skilningi, á gagn- rýnni skoðun heimilda? Þarf að hafa alla söguna undir þegar þetta er mælt eða er hægt að gera það út frá til- teknum hlutum hennar?“

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.