Skólavarðan - 01.09.2002, Page 12

Skólavarðan - 01.09.2002, Page 12
„SMART Board er kanadískur búnaður sem auðveldar mjög alla vinnu í skólastofunni,“ segir Ólaf- ur. „Þetta er tafla sem tengd er beint við tölvu og myndinni varp- að á hana með skjávarpa. Hægt er að vinna beint á töfluna með fingrunum en einnig fylgir hug- búnaður, penni og töfluþurrka.“ Með SMART Board er hægt að hafa aðgang að og sýna upplýsing- ar af Netinu, sýna myndbönd, glærur, efni af geisladiskum og nota allan helsta hugbúnað og þær aðgerðir sem hann býður upp á, hvort heldur um er að ræða fjarfundaforrit, rit- og mynd- vinnsluforrit eða annað. Allar að- gerðir er hægt að vinna með því að styðja fingri á töfluna eða teikna beint á hana; fingurinn verkar eins og bendill, mús og penni, allt í senn. Allt sem unnið er á SMART Board er hægt að vista, prenta, senda nemendum í tölvupósti eða setja inn á heimasíðu. Einn helsti kostur SMART Board að mati Ólafs er ef til vill sá að kennarinn getur staðið uppi við töflu og snúið sér að nemendum sínum þótt verið sé að vinna með tölvu í stað þess að hlaupa að og frá tölvunni. Sjötíu og tveggja tommu SMART Board tafla kostar með öllu 315 þúsund krónur. Möguleikar þessarar töflu eru óteljandi og sífellt bætist við. Allar uppfærslur á þeim hugbúnaði sem hægt er að vinna með í tölvunni eru fríar. Ég kenni kaupendum að nota töfluna, það er sáraeinfalt og aðal- kennslan felst í rauninni í að sýna alla möguleikana sem hún býr yfir. Hvort sem fólk er vanara microsoft eða macintosh umhverfi þá vinnur það bara eins og það er vant á þessa töflu.“ Ólafur hefur svolitla sýnikennslu á forriti sem heitir „Route66“ en þar er að finna kort af öllum stöðum Evrópu. Ólafur notar fingurinn til að stækka hluta af Íslandskortinu sem hann ætlar að vinna með, teiknar strik þar sem fyrirhuguð eru jarðgöng og teiknar hringi utan um eða krossar við staði sem hann vill fjalla um hverju sinni. Á meðan unnið er í einu forriti er hægt að kalla fram önnur, svo sem glærusýningu sem tengist náms- efninu, reikniforrit eða hvað sem vera vill. Að ná athygli allra nemenda - alltaf „Nauðsynlegt er að hafa aðgang að skjávarpa til að vinna á þessa töflu,“ segir Ólafur, „en það hafa líka flestir skólar. Ég sé fyrir mér að í framtíðinni verði skjávarpi og gagnvirk tölvutafla staðalbúnaður í hverri skólastofu, hvort sem um er að ræða grunnskóla, framhaldsskóla eða háskóla. Gífurleg þróun er í gerð hugbúnaðar fyrir skóla og fyrirtæki sem tekur meðal annars mið af þessum búnaði og sem dæmi má nefna forritið SynchronEyes frá sama fyrir- tæki og býr til SMART Board. Þetta forrit gerir kleift að vinna á samræmdan hátt í tölvustofum og annars staðar þar sem allir nemendur eru með tölvu og Njarð- víkurskóli er nú þegar búinn að taka forrit- ið í notkun. Kennari getur skilgreint einn eða fleiri hópa sem hann sendir verkefni til, tekur á móti lausnum frá o.s.frv. Ekki er nauðsynlegt að nota gagnvirka töflu til að vinna með þetta forrit en það er að sjálf- sögðu hægt og - eins og með aðra vinnu - eykur þá fjölbreytni möguleikanna í kennslunni. SynchronEyes býður upp á ýmsa möguleika, til dæmis að sýna vinnu eins hóps eða nemanda á töflunni, tjaldinu eða skjánum og á skjám allra hinna nem- Tölvutaf la með gömlu tússtöf luna sem fyr i rmynd 14 Svo segir í kynningarefni um SMART Board, gagnvirku töfluna, og það verður að segjast að hér er engu log- ið. Íslenskir kennarar hafa kynnst SMART Board á tölvusýningum og í skólaheimsóknum erlendis og lýst yfir miklum áhuga á búnaðinum. Fyrir- tækið Varmás er með umboð fyrir SMART Board á Íslandi og Skólavarðan tók hús á Ólafi Sigurðssyni framkvæmda- stjóra og fékk hjá honum nán- ari upplýsingar um þessa undratöflu. Þetta er auðvelt. Þetta er gagnvirkt. Þetta er Smart.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.