Skólavarðan - 01.09.2002, Side 13

Skólavarðan - 01.09.2002, Side 13
endanna eða hópa, einnig getur kennari sent það sem er á skjánum beint í tölvur allra nemenda. Hann getur einnig læst einni eða fleiri tölvum nemenda þannig að þeir séu ekki í tölvunni á meðan hann þarf athygli þeirra óskipta annars staðar. Þá er hægt að láta nemendur kjósa. Spurning frá kennara birtist þá á skjám þeirra og þeir krossa við „já“ eða „nei“. Samstundis birtist lítil skjámynd með mynd af hendi sem er með þumalinn ýmist upp eða niður eftir því hvernig svarað var. Þetta er svo fljót- gert að kennari getur auðveldlega skotið spurningu um álit nemenda inn í venjuleg- an fyrirlestur og haldið svo áfram með hann að vörmu spori. Nú eða spurt hvort gefa eigi frí eða ekki!“ keg Berglind Arndal Ásmundsdóttir tölvukennari hefur reynslu af gagn- virku töflunni Varmás fékk umboðið fyrir SMART Board í fyrra og Hólabrekkuskóli hefur þegar fest kaup á búnaðinum. Berglind Arndal Ásmundsdóttir tölvukennari í Hólabrekkuskóla hefur notað SMART Board í kennslu í tölvuveri skólans frá síð- ustu áramótum. „Þetta er algjör bylting,“ segir Berglind. „Taflan virkar eins og tölvuskjár og kennarinn eins og músin. SMART Board hefur það framyfir tússtöfl- una að kennarinn er við töfluna og nær betra sambandi við nemendur. Það er miklu auðveldara að útskýra fyrir krökkun- um þegar maður þarf ekkert að víkja frá. Bendill eða ör er mjög lítið fyrirbæri en kennarinn er stór og allt umhverfið miklu stærra og þar af leiðandi taka krakkarnir betur eftir því sem maður er að gera. Kennslan verður miklu auðveldari. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og spenn- andi og ég held að ef ég ætti að vera án töflunnar núna fyndist mér ég hálffötluð!“ segir Berglind. Tölvutaf la með gömlu tússtöf luna sem fyr i rmynd 15 Þeir sem vilja kynna sér SMART Board geta haft samband við Ólaf hjá Varmás í síma 5668144, net- fang olisig@varmas.is Íslenska dansfræðafélagið, í samvinnu við Norræna húsið, hyggst efna til helgarnámskeiðs í norrænum gagndönsum (kontradöns- um) dagana 20. - 22. september næstkomandi. Auðvelt er að læra gagndansa og þeir henta vel til að hrista saman bekkjarhópa, beint og óbeint! Gagndansar voru mjög vinsælir og raunar dæmigerðir fyrir vestræna dans- hefð 19. aldar. Einkenni þeirra eru þau að par eða pör dansa á við par eða önn- ur pör. Sem íslensk dæmi um gagndansa mætti nefna Vefarann og Lansé. Námskeiðið fer fram í Norræna húsinu í Reykjavík og fyrirkomulagið verður þannig að föstudagskvöldið 20. september munum við hittast kl. 20.00 og dansa nokkra íslenska gagndansa. Á laugardag og sunnudag verður byrjað kl. 10.00 og dansað til kl. 16.00 með hæfilegum hléum. Hingað til lands er vænt- anlegur sænskur sérfræðingur í gagndönsum, Anna-Karin Ståhle, sem mun kenna norræna gagndansa. Íslenskir kennarar, undir stjórn Sigríðar Þ. Val- geirsdóttur, munu kenna íslensku dansana. Aðeins verður um að ræða einfalda og aðgengilega dansa. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á námskeiðinu fyrir 14. september í síma Norræna hússins: 551 7030 eða með tölvupósti: agni@nordice.is Þátttöku- gjald fyrir allt námskeiðið er kr. 5.000 og greiðist fyrir sama tíma inn á reikning Íslenska dansfræðafélagsins: 0517-26-005805. Kennitala félagsins er 580500- 4040. Benda má á gildi gagndansa fyrir félagslíf. Fyrir utan að vera kynning á menningu liðins tíma og framlag í þorrablót næsta vetrar, þá eru þeir einstak- lega skemmtileg leið til að hrista saman hópa hvort heldur er um að ræða ung- linga, eldri borgara eða félagshópa af öðru tagi. Norrænir gagndansar Tími: 20. - 22. september 2002. Staður: Norræna húsið í Reykjavík. Þátttökutilkynning fyrir 14. september 2002 í síma 551 7030 eða agni@nordice.is Þátttökugjald: Kr. 5.000. Greiðist inn á reikn. 0517-26-005805. Íslenska dansfræðafélagið Hristir saman hópa Frétt

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.