Skólavarðan - 01.09.2002, Síða 20
um. Við bjóðum fyrst og fremst upp á fjar-
kennslu fyrir eldri nemendur eða lengra
komna en með því getum við nýtt kennar-
ana betur, náum fram hagræðingu og get-
um í kjölfarið boðið upp á fjölbreyttara
nám.“
Frumkvöðlar í notkun fjarfundabún-
aðar
Menntaskólinn hefur í auknum mæli tek-
ið þátt í fullorðinsfræðslu og símenntun á
svæðinu og er einn af stofnendum Fræðslu-
nets Austurlands. Öldungadeild er starf-
andi við skólann og hefur hún eflst með til-
komu fjarfundabúnaðar en Helgi telur að
ef hann verður tekinn í notkun í öllum
þéttbýliskjörnum á svæðinu muni opnast
nýir möguleikar á að mæta þörfinni fyrir
framhaldsnám og það sé hlutverk skólans
að sinna því.
Tölvur og fjarfundabúnaður hafa líka
auðveldað allt utanskólanám og hafa allt
að 70 nemendur notað sér það undanfarið
við menntaskólann.
„Í kringum þessa utanskólanemendur
hafa þróast margskonar fjarnámstilboð og
við höfum útbúið fjarkennslunámsefni í
nokkrum greinum. Til að byrja með var
þetta hálfgert bréfaskólafyrirkomulag en
hefur svo þróast með tilkomu fjarfunda-
búnaðar í þrjá framhaldsskóla á svæðinu og
þá tókum við upp kennslu á milli skólanna.
Þeir hafa haft samstarf um nám fyrir leið-
sögumenn, boðið var upp á skrifstofubraut
í tengslum við Menntaskólann í Kópavogi
og voru nemendur víðsvegar á landinu í
námi í gegnum fjarfundabúnaðinn.“
Í raun fer fram nám á háskólastigi við
menntaskólann, þar hefur verið boðið upp
á nám í hjúkrunarfræði og leikskólafræðum
frá Háskólanum á Akureyri, nám frá End-
urmenntunarstofnun Háskóla Íslands og
kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík og
allt gert í gegnum Fræðslunet Austurlands.
Menntaskólinn á Egilsstöðum góður
kostur
Um helmingur nemenda býr á heimavist
sem hefur sett svip sinn á skólann og tengir
starfsfólk og nemendur vel saman, í raun er
vistin eins og eitt stórt heimili og er að-
dráttarafl fyrir skólann.
„Skóli er ekki bara hús. Skóli er samfélag
nemenda og starfsfólks,“ segir Helgi Ómar
og bendir á að í heimavistarskóla sé brýn
ástæða til að leggja áherslu á félagslíf nem-
enda og styrkja það og efla á allan hátt.
Gæði þess eru að sjálfsögðu undir nemend-
um sjálfum komin en stjórnendur geta ýtt
undir jákvæða þætti á margvíslegan hátt.
Stærsti hluti ungmenna hér sækir nám
heima í héraði en sumir kjósa að fara annað
og eru margar ástæður fyrir því. Á hverju
hausti velja um 45% nýnema á Austurlandi
að hefja nám við Menntaskólann á Egils-
stöðum, hinir skiptast á milli Verkmennta-
skóla Austurlands og Framhaldsskólans í
Austur-Skaftafellssýslu. Alltaf eru þó
nokkrir sem fara norður eða suður og svo
er einhver hluti sem ekki fer í skóla. Okkur
hefur gengið vel að halda í nemendur og
brottfall fer minnkandi hjá okkur en hér er
mikið streymi í gegn af nemendum og al-
gengt að menn taki sér frí til vinnu um
tíma og komi svo til baka. Við höfum
hugsað utanskólanámið fyrir þá krakka.“
Þegar hugleitt er það sem hér hefur ver-
ið sagt um mikilvægi skóla í héraði leikur
enginn vafi á að Menntaskólinn á Egils-
stöðum hefur mikil áhrif á mannlífið á
Austur Héraði, það er hagur fjórðungsins
að skólinn vaxi og dafni og það er hagur
bæði nemenda og foreldra að hægt sé að
stunda menntaskólanám heima í héraði.
Steinunn Þorsteinsdóttir
Viðta l
23
Skarphéðinn G. Þórisson tók þessar myndir af
heimsókn nemenda í ME til fasanabóndans Skúla
Magnússonar.
Okkur hefur gengið vel að
halda í nemendur og brottfall
fer minnkandi hjá okkur en
hér er mikið streymi í gegn af
nemendum og algengt að
menn taki sér frí til vinnu um
tíma og komi svo til baka. Við
hugsum utanskólanámið fyrir
þá krakka.
Dagana 2. - 24. ágúst verður haldin á Grand hóteli í Reykjavík norræn ráð-
stefna um fötlunarannsóknir á vegum NNDR, Nordic Network on Disability
Research, en það eru norræn samtök félagsvísindamanna sem vinna að fötl-
unarrannsóknum. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefna samtakanna er haldin hér
á landi. Hún fer fram á ensku og verða haldnir um 100 fyrirlestrar sem spanna
ólík svið og áherslur.
Í fréttatilkynningu um ráðstefnuna segir að hún sé opin öllum sem hafa
áhuga á fræðilegri þróun á sviði fötlunar.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar vænta þess að hún verði mikilvægt innlegg í
umræðu um líf og aðstæður fatlaðra og hvetji til frekari rannsókna á því sviði
hér á landi.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar:
http://www.nndr.dk/iceland2002
Norræn ráðstefna um fötlunar-
rannsóknir
Frétt