Skólavarðan - 01.09.2002, Síða 21
Nokkrir nýir starfsmenn hófu störf í
Kennarahúsinu á þessu ári og aðrir hættu
störfum. Valgeir Gestsson skrifstofustjóri
hætti og Hannes Þorsteinsson tók við starfi
hans. Finnbogi Sigurðsson hefur tekið við
formennsku í FG af Guðrúnu Ebbu Ólafs-
dóttur. María Pálmadóttir tekur við af
Finnboga sem formaður KFR og sinnir
50% starfi og Sesselja Sigurðardóttir er
varaformaður FG ásamt því að hefja störf
hjá félaginu þann 1. september. Sesselja er
einnig í 50% starfi. Kári Arnórsson hætti
og við starfi hans hjá Skólastjórafélaginu
tók Jón Ingi Einarsson. Hjördís Þorgeirs-
dóttir hættir störfum sem varaformaður FF
og formaður Skólamálaráðs en hún hefur
verið ráðin konrektor Menntaskólans við
Sund. Ingibjörg Úlfarsdóttir hefur verið
ráðin launafulltrúi Kennarasambandsins og
svarar öllum almennum fyrirspurnum um
kjaramál. Nýr starfsmaður Orlofssjóðs er
Anna Dóra Þorgeirsdóttir sem sinnir skrif-
stofustörfum hluta úr degi og er umsjónar-
maður orlofshúsanna á Sóleyjargötu í
Reykjavík. Jafnframt hefur verið ráðinn
starfsmaður til að sinna ræstingum í Kenn-
arahúsinu, Ingunn Þorleifsdóttir. Á liðnu
ári var einnig ráðin matráðskona, Berta
Björgvinsdóttir. Fleiri breytingar eru vænt-
anlegar og verður sagt frá þeim síðar.
Kennarasamband Íslands þakkar þeim
Guðrúnu Ebbu, Kára, Hjördísi og Valgeiri
vel unnin störf í þágu kennara og skóla-
stjórnenda í gegnum tíðina. Það er ekki létt
verk að fylla skörð þessa kraftmikla, frjóa
og harðsnúna fólks en um leið og við
kveðjum þau bjóðum við nýja starfsmenn
innilega velkomna til starfa.
KÍ
24
Starfsmannabreytingar í
Kennarahúsi
Valgeir Gestsson lauk kennaraprófi árið 1958 og
kenndi við Kársnesskóla í eitt ár en síðan í Mýr-
arhúsaskóla til ársins 1965. Þá réðst hann sem
skólastjóri að Varmalandsskóla í Borgarfirði og
gegndi því starfi næsta áratuginn, en árið 1975
varð hann skólastjóri við Álftanesskóla í Bessa-
staðahreppi. Árið 1990 hóf Valgeir síðan störf
sem skrifstofustjóri Kennarasambandsins.
Valgeir hefur verið mjög virkur í félagsstörfum
og gegndi trúnaðarstörfum fyrir kennara sam-
fleytt í tvo áratugi frá árinu 1968 þegar Kennara-
samband Vesturlands var stofnað, en þar sat
hann í stjórn. Árið 1974 var hann kosinn í stjórn
Sambands íslenskra barnakennara (SÍB) og var
formaður þess félags frá 1976 til 1980, en það ár
sameinuðust SÍB og LSFK (Landssamband
framhaldsskólakennara) í Kennarasamband Ís-
lands hið eldra. Valgeir var kosinn formaður KÍ
við sameininguna og gegndi því embætti til árs-
ins 1987. Samhliða formennsku í SÍB og síðar KÍ
var Valgeir jafnframt formaður samninganefnda
félaganna og starfaði einnig í samninganefnd
BSRB á meðan kennarasamtökin voru þar inn-
anborðs. Einnig sinnti hann um tíma ritstjórn
Kennarablaðsins.
Kári Arnórsson lauk kennaraprófi árið 1951.
Hann var í framhaldsnámi við Kennaraháskóla
Danmerkur 1957-1958 og framhaldsnámi í Ox-
ford 1974-1975. Kári var skólastjóri Barnaskóla
Húsavíkur árin 1960-1971 og skólastjóri Foss-
vogsskóla, tilraunaskóla með breytt kennslu-
form, 1971-1993. Síðan hefur hann verið starfs-
maður Skólastjórafélags Íslands. Kári sat í
stjórn Skólastjórafélags Íslands 1972-1976, var
formaður SÍ 1987-1990 og formaður Skóla-
stjórafélags Reykjavíkur árin 1991-1993.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir kenndi við Öldusels-
skóla og Laugalækjarskóla ásamt því að vera
stundakennari í Réttarholtsskóla. Hún var trún-
aðarmaður í Ölduselsskóla og Laugalækjarskóla
og sat í stjórn KFR 1990-1994, þar af sem for-
maður 1991-1994. Guðrún Ebba var varaformað-
ur KÍ 1994-1999 og eftir að hið nýja Kennara-
samband var stofnað sat hún í stjórn þar árin
2000-2002 ásamt því að vera formaður FG. Guð-
rún Ebba hefur einnig gegnt fjölmörgum öðrum
trúnaðarstörfum, setið í stjórn Yrkju, stjórn Sí-
menntunarstofnunar og samráðsnefnd mennta-
málaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitar-
félaga og samtaka kennara og skólastjóra svo
að einungis fátt eitt sé nefnt. Á alþjóðlegum
vettvangi má nefna að hún sat í stjórn ETUCE
og EIE á árunum 1997-2001 og í grunnskóladeild
NLS 1994-2001.