Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 22

Skólavarðan - 01.09.2002, Qupperneq 22
KÍ 25 Hjördís Þorgeirsdóttir lauk MA (honours) prófi í félagsfræði og félagslegri stjórnun frá Háskólan- um í Edinborg árið 1981 og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskóla Ís- lands árið 1989. Frá 1981 til 1986 starfaði Hjör- dís sem leiðbeinandi í félagsfræði við Fjöl- brautaskólann á Sauðárkróki og frá árinu 1989 hefur hún starfað sem framhaldsskólakennari í félagsfræði við Menntaskólann við Sund. Á Sauðárkróki var Hjördís trúnaðarmaður kennara í Hinu íslenska kennarafélagi og frá 1993 hefur Hjördís starfað fyrir kennarasamtökin, sat í skólamálanefnd HÍK 1993-1995 og formaður skólamálanefndar frá 1995-1999. Í nýju Kennara- sambandi Íslands varð hún varaformaður Félags framhaldsskólakennara og formaður skólamála- ráðs Kennarasambands Íslands. Hún hefur einnig gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum á tímabilinu, m.a. setið í endurmenntunarnefnd framhaldsskólakennara, stjórn EHÍ og stjórn Námsmatsstofnunar. Hún hefur einnig setið í stjórn Félags félagsfræðikennara á framhalds- skólastiginu frá 1991. Núorðið skiptist fólk á vefslóðum eins og símanúmerum og við hjá Skóla- vörðunni ákváðum að hleypa af stokkunum litlum dálki með uppáhaldsvefslóð- um hinna og þessara. Til að gefa tóninn fengum við Þröst Brynjarsson, vara- formann Félags leikskólakennara, til að upplýsa um þá vefi sem hann fer oftast inn á, fyrir utan vinnuvefinn auðvitað (ki.is): Uppáhaldsvefir Þrastar Brynjarssonar ismennt.is • unak.is • khi.is • bupl.dk • pædaogogfelag.fo • barn.is leikskolar.is • idavollur.akureyri.is • radio.france.fr • af.ismennt.is ecole.wanadoo.fr.mat-albert.petis/ • education.fr • mbl.is • strik.is baggalutur.is Uppáhaldsvefirnir mínir V e f a n e s t i Jón Ingi Einarsson lauk almennu kennaranámi árið 1970 og námi fyrir stjórnendur skóla frá KHÍ árið 1992. Hann hefur starfað sem skólastjóri frá árinu 1972, fyrst við Víkurskóla til 1982, þá við Eskifjarðarskóla til 1993 og loks við Laugalækj- arskóla þar til hann tók við starfi hjá SÍ. Jón Ingi sat í stjórn Félags yfirkennara og skólastjóra árin 1987-1990 og var formaður SÍ 1994-1997. Hann starfaði jafnframt í sveitarstjórnum og stjórnum landshlutasamtaka um tólf ára skeið.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.