Skólavarðan - 15.01.2001, Síða 14

Skólavarðan - 15.01.2001, Síða 14
Skólastarf 16 Skyldunámsskólinn Öflug skólaskrifstofa með jákvæðan hug og vilja til tónlistaruppeld- is, eins og sú sem við höfum í Reykjanesbæ, er nauðsynlegur bak- hjarl fyrir starfsemi tónlistarskóla og tví- mælalaust lykilatriði við uppbyggingu nýs tónlistarskóla sem starfar á þann hátt sem gert er í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hann varð til úr samruna Tónlistarskólans í Keflavík og Tónlistar- skóla Njarðvíkur en er þó mjög frábrugð- inn forverum sínum. Árið 1998 var ákveðið að samstarf tón- listarskólans og grunnskólanna yrði aukið með því að forskóli tónlistarskólans verði kenndur í grunnskólunum og felldur inn í stundaskrá nemenda í 1. og 2. bekk og yrði jafnframt að skyldugrein í grunnskólum bæjarins fyrir þessa árganga. Einnig að hljóðfærakennsla yrði færð inn í húsnæði grunnskólanna fyrir vissa aldurshópa. Sama ár var farið að ræða þörfina fyrir nýtt og rúmgott hús fyrir tónlistarskólann, ætlað þeirri starfsemi hans sem ekki færi fram í grunnskólunum. Ári síðar var svo tekin sú stórhuga ákvörðun að reisa nýtt hús fyrir starfsemi tónlistarskólans og skyldi hönnun fara fram árið 2003. Að öll- um líkindum verður þar um að ræða tón- listarhús, þ.e. hús sem rúmar bæði tónlist- arskólann og góðan tónleikasal, en brýn þörf er á slíkum sal hér í Reykjanesbæ. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar tók til starfa þann 1. september 1999. Hafist var handa við að útbúa aðstöðu til hljóðfæra- kennslu í þremur af fjórum grunnskólum bæjarins, sá fjórði varð að bíða þar sem átti eftir að byggja við hann. Einn hinna þriggja var nýbyggður og tók til starfa 1. september 1999 eins og tónlistarskólinn. Þar hafði verið reiknað með tónlistarskóla inni í hús- næðinu strax við hönnun og aðstaðan því í raun tilbúin fyrirfram. Hvað tónlistarkennsluna varðar voru markmiðin þau annars vegar að forskóli tónlistarskólans færi fram í grunnskólunum og yrði skyldugrein innan þeirra fyrir nem- endur í 1. og 2. bekk. Forskólinn yrði felld- ur inn í stundatöflu barnanna og hver bekkjadeild tvískipt, þ.e. um það bil hálfur bekkur í einu. Hins vegar að allir nemend- ur tónlistarskólans í 3.—6. bekk ættu kost á því að fá hljóðfæratíma sína á skólatíma. Starfsemi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er því þannig hagað að allir nemendur í 1. og 2. bekk grunnskóla bæjarins fá forskóla- kennslu á vegum tónlistarskólans frítt, enda um skyldunám að ræða. Nemendur 1. bekkjar fá eina 40 mín. kennslustund á viku á skólatíma en nemendur 2. bekkjar tvær 40 mín. kennslustundir á viku og að sjálfsögðu einnig á skólatíma. Nemendur tónlistarskólans sem eru í hljóðfæranámi og eru í 3. til 6. bekk eiga kost á því að fá báða vikulegu hljóðfæratímana sína í sínum grunnskóla og á skólatíma. Forráðamenn nánast allra nemenda tónlistarskólans, sem eru á þessum aldri, nýta sér þennan mögu- leika fyrir börn sín og óska eftir hljóðfæra- kennslu á skólatíma. En til þess að það geti orðið þurfa þeir að undirrita sérstaka beiðni þar að lútandi. Þessir nemendur eru teknir út úr almennum kennslustundum í grunn- skóla tvisvar sinnum í viku, 30 mín. í senn, til að stunda hljóðfæranám. Þetta verður til þess að nemendur tónlistarskólans koma í hljóðfæratíma á þeim tíma dags sem þeir eru hvað ferskastir og móttækilegastir, enda veitir ekki af fyrir þetta krefjandi nám sem þeir stunda meðfram grunnskólanámi. Kennarar tónlistarskólans geta hafið kennslu á eðlilegum tíma, þ.e. kl. 8.15 á morgnana og því lokið sínum vinnudegi mun fyrr en ella. Skólinn starfar á sex stöðum, þ.e. í fjór- um grunnskólum og húsum tónlistarskól- anna gömlu í Njarðvík og Keflavík. Kenn- arar fara á milli skóla eftir þörfum og fá þann tíma það sem tekur og akstur greidd- an. Mjög mikil áhersla er lögð á hljóm- sveitastarf og annað samspil. Í skólanum eru starfandi fjórar lúðrasveitir, léttsveit (big band), tvær strengjasveitir, barnakór, bjöllukór og margs konar aðrir smærri sam- spilshópar. Allt hljómsveitastarf og samspil fer fram í húsum tónlistarskólans í Njarðvík og Keflavík. Í skólanum er mjög öflug og fjölmenn Suzuki-fiðludeild og söngdeild sem er að mestu skipuð ungum nemendum, en hún er í örum vexti. Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri TR Sambúðarskólinn Í Tónlistarskóla Kópavogs stunda nám u.þ.b. 500 nemendur, sem gerir skól- ann einn af fjölmennustu tónlistarskólum landsins. Þar gefst nemendum kost- ur á sérhæfðu tónlistar- námi á grunn- og fram- haldsskólastigi sem undir- býr þá undir frekara nám á háskólastigi. Boðið er upp á kennslu í hljóðfæraleik þar sem nemendur geta valið á milli allra helstu hefðbundinna strengja- og blásturs- Ólíkir tónlistarskólar Á Íslandi eru hátt í hundrað tónlistar- skólar. Frá Húsavík til Hvolsvallar, Búðardal til Borgarfjarðar eystri, Tröllaskaga til Timbúktú. Engu að síður hafa tónlistarskólar nokkuð einsleita mynd í hugum fólks. Þegar stigið er inn fyrir dyr heyrist hljóð úr hverju horni, einn stillir sellóið og annar slagverkið. En bæði ytri aðbún- aður og innra starf tónlistarskólanna er ótrúlega fjölbreytt. Til þess að skyggnast inn í þennan heim fengum við þrjá tónlistarskólastjóra til að lýsa hver sínum skóla í stuttu máli. Fjölbreytni í starfi tónlistarskóla Kveður við annan tón

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.