Skólavarðan - 01.08.2003, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 01.08.2003, Blaðsíða 14
Ljóst og létt - Loftur og gullfuglarnir FRÉTTIR OG SMÁEFNI Hjá Námsgagnastofnun er komin út bókin Loftur og gullfuglarnir eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur með myndum eftir Brian Pilkington. Sagan er í flokki auðlesinna sögubóka sem þýðir að leitast er við að skrifa söguna á léttu og ljósu máli og setja textann upp með lestrarfræðileg sjónarmið í huga. Einnig er þess gætt að myndir styðji við texta. Auðlesnu sögubækurnar eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir börn sem eiga í erfiðleikum með að lesa langan, samfelldan texta (m.a. dyslexíunemendur). Þær eru líka til á hljóðbók. textinn er þá lesinn hægt og skýrt og ætlast til að nemendur fylgist með í bókinni um leið og þeir hlusta. Loftur og gullfuglarnir er einkum ætluð nemendum á miðstigi grunnskólans en nýtist auðvitað bæði eldri og yngri börnum. Þetta er frábær bók um langveikan strák sem slæst í lið með gullfuglunum, veikum og heimilislausum börnum sem fara um allan heim í draumi eða milli svefns og vöku og hjálpa öðrum krökkum sem eiga í vanda. Nýtt lestrarefni fyrir þau yngstu Í sumarlok verða komnar út sautján nýjar litlar bækur fyrir yngstu lesendurna eftir ýmsa höfunda; Auði Jónsdóttur, Áslaugu Jónsdóttur, Kristínu Steinsdóttur, Ragnheiði Gestsdóttur, Þorgrím Þráinsson o.fl. Bækurnar eru ætlaðar börnum sem eru farin að stauta og þær er 16-24 bls. að lengd og fallega myndskreyttar. Á vef Námsgagnastofnunar verða svo verkefni og kennsluábendingar til viðbótar. PUNKTAR Punktar um samræmd próf “Ein aðalástæða þess að skólamenn þurfa að þola í auknum mæli, án mótmæla, prófatengd vandamál í nemendahópum sínum er sú að á heildina litið skortir kennarasamfélagið þekkingu á mælingum og mælitækjum. Þessi gerð ólæsis hefur orðið þess valdandi að við sitjum óvarin og horfum á í stað þess að bregðast við meðan illa unnar prófaáætlanir og illa unnin próf dreifast eins og smitsjúkdómur milli skólanna.” (Lauslega þýtt). W. James Popham Popham þessi sem vitnað er til hér að framan á að baki langan kennsluferil og hefur unnið til margra viðurkenninga fyrir störf sín. Hann hefur ásamt með fleiru ritað um tuttugu bækur um kennslufræði og skólamál og sú bóka hans sem vitnað er til hér að framan ber titilinn The Truth about Testing – an Educator’s Call to Action. Í bókinni setur Popham fram á ígrundaðan og skilmerkilegan hátt skoðanir sínar á samræmdum prófum; gildi þeirra, inntaki, framkvæmd og áhrifum á skólastarf. Popham telur að í heimalandi sínu, Bandaríkjunum, sé fólk á villigötum með samræmd próf en segir jafnframt að slík próf sé unnt að framkvæma þannig að verulegur akkur sé að fyrir alla hlutaðeigandi. Þessi bók er mjög athyglisverð og tillögum Pophams að samningu og framkvæmd samræmdra prófa verða gerð stuttleg skil í næstu Skólavörðu. Í bókarlok kemur Popham með varnaðar- eða kannski öllu heldur hvatningarorð til kennara: „Við kennarar viljum koma vel fyrir ekkert síðyur en aðrir, það er mannlegt eðli. En í örvæntingarfullri leit að sönnunum fyrir gæðum kennslunnar er auðvelt að missa sjónar á af hverju við erum yfirhöfuð að leggja mat á hana. Það er til þess að hjálpa krökkum að læra betur…“ Í skólastefnu KÍ fyrir framhaldsskóla 2002-2005 segir um samræmd próf: • Samræmd stúdentspróf hafa verið lögfest en KÍ hefur áhyggjur af hugsanlegum neikvæðum áhrifum samræmdra stúdentsprófa á faglegt og skapandi starf í framhaldsskóla. KÍ telur að samræmd stúdentspróf skuli skilgreina svo: Það eru samræmd próf þegar sömu próf eru lögð samtímis fyrir nemendur á sama skólastigi í öllum skólum og metin samræmt. • Samræmd stúdentspróf skulu vera yfirlitspróf þar sem prófað er á grundvelli lokamarkmiða náms í kennslugrein. Námsmatsstofnun skal bera ábyrgð á samningu, framkvæmd og matil á úrlausnum samræmdra stúdentsprófa. • Samræmd stúdentspróf skulu haldin í sem flestum námsgreinum eða a.m.k. þremur á hverri námsbraut. Samræmd stúdentspróf skulu haldin tvisvar á ári. Leggja skal áherslu á að við birtingu niðurstaðna úr samræmdum prófum verði niðurstöður ekki raktar til einstakra nemenda. 14

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.