Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 7

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 7
honum þegjandi súpuskálina. „Það er of mikil eymd í þessu landi,“ sagði gamli maðurinn, „glæpir borga sig“. Þessa nótt dreymdi hann ekki sundlaugina. Hann sá undurfallega konu sem hafði stigið niður frá himnum og stóð við billjardborðið. Konan var í síðum kjól sem var skreyttur litlum gimsteinum og bar gullkórónu á höfði. Hún skein eins og lampi. „Þú ert jólasveinninn,“ sagði konan. „Ég sendi þig hingað til að hjálpa heimilislausu börnunum. Farðu í búðina, feldu leikföngin í pokanum þínum og farðu svo og gefðu þau börnunum.“ Gamli maðurinn hrökk upp. Umhverfis billjardborðið í svartamyrkrinu var þétt ský af glitrandi ryki. Hann breiddi tepp- ið yfir sig aftur en gat ekki sofnað. Hann stóð á fætur, fór í jólasveinabúninginn sinn og út á götu. Hann var enga stund að komast til Mútamba. Torgið var autt og það lýsti af versl- uninni eins og geimskipi. Þarna voru Barbídúkk- ur í aðalsýningarglugganum; allar í mismunandi kjólum en með sama óþolandi brosið. Í öðrum glugga gat að líta vélskrímslin, leikfangabyss- urnar, rafmagnsbílana. Pascoal vissi að ef hann myndi brjóta sýningargluggann þá kæmi hann hendinni inn og gæti opnað dyrnar. Hann tók upp stein og braut rúðuna. Hann var á leiðinni út með troðfullan poka þegar lögreglumaður kom að honum. Á sömu stundu sá hann að akasíutré á götuhorninu var baðað ljósi. Konan úr draumnum brosti til Pascoals, hún sveif yfir blómum úr loga. Lögreglumaðurinn virtist ekki taka eftir neinu. „Skammastu þín, gamli fausk- ur,“ hrópaði hann. „Segðu mér undireins hvað þú ert með í pokanum.“ Pascoal fann að munn- urinn á honum opnaðist gegn vilja hans; hann heyrði sjálfan sig segja: „það eru rósir, herra minn.“ Lögreglumaðurinn leit á hann ringlaður. „Rósir . . .? Ertu nú algerlega búinn að tapa þér, gamli minn . . .“ og klappaði honum á bakið. Svo tók hann upp byssu, beindi henni í andlit Pascoals og hrópaði: „Svo þetta eru rósir! Sýndu mér þessar rósir!“ Gamli maðurinn hik- aði augnablik. Hann leit á akasíutréð sem var í fullum blóma og sá konuna aftur og hún brosti til hans; hún var fallegasta kona sem hann hafði nokkurntíma séð, hún var eins og heil ljósahátíð í sjálfri sér. Hann opnaði pokann og tæmdi hann við fæturna á lögreglumanninum. Og það voru rósir – úr plasti að vísu. En rósir engu að síður. búið um sárin hans og hann fékk að borða. Svo sögðu þeir honum að hann mætti fara. Og þá bjó hann úti á götu. Einn dag, það var í desem- ber, kom Indverjinn sem átti verslunina í Mútamba að máli við hann: „Okkur vantar jóla- svein,“ sagði hann, „ef þú ert jólasveinninn þarf ég ekki að kaupa skegg. Og svo ertu líka þessi norræna týpa. Þú kæmir mjög vel út. Við borgum þrjár milljónir á dag. Er það nóg fyrir þig?“ Starfið var í því fólgið að standa fyrir utan verslunina í rauðum náttfötum og með húfu á hausnum. Þar sem hann var mjög mjór varð hann að troða tveimur púðum undir buxna- strenginn. Pascoal þjáðist í hitanum; hann svitnaði allan daginn í steikjandi sólinni en í fyrsta skipti í mörg ár var hann hamingjusamur. Svona klæddur, með poka í hendi, gaf hann litl- um börnum gjafir (sem komu frá sænskri hjálp- arstofnun í gegnum heilbrigðisráðuneytið) og bauð foreldrunum að gjöra svo vel og ganga inn í búðina. „Ég er kambúladorjólasveinn,“ út- skýrði hann fyrir Generálnum. (Kambúladorar voru til í Angóla á seinni hluta 20. aldar, þeirra starf var að standa fyrir utan verslanir og tæla viðskiptavini inn). Með hverjum deginum sem leið þótti Pascoal meira varið í nýja starfið. Börnin hlupu til hans með opinn faðminn. Konurnar hlógu, þær blikkuðu hann eins og þau væru í einhverju leynimakki saman (brostu samt aldrei). Karl- mennirnir heilsuðu honum virðulega: „Góðan daginn, jólasveinn! Hver er staðan í gjafamál- um þessa dagana?“ Gamli maðurinn naut þessa til fullnustu, sérstaklega undrunarsvips- ins á andlitum litlu barnanna. Þau slógu hring um hann. Þau báðu um leyfi til að koma við pokann hans. „Jólaþveinn,“ sagði afar veiklu- legt lítið barn, „gerðu það má ég fá blörðu“. Pascoal hafði ströng fyrirmæli um að gefa börn- um ekki smokka nema í fylgd með fullorðnum og foreldrarnir urðu að eiga eitthvað undir sér. Samningurinn var afar skýr hvað þetta varðaði; götubörnin voru ekki velkomin og hann varð að reka þau frá. Í lok annarrar viku, eftir að búðin lokaði, ákvað Pascoal að fara ekki úr búningnum og fór á krána, klæddur á þennan fáránlega hátt. Generállinn sá hann en sagði ekkert og rétti bls. 7 José Eduardo Agalusa var fæddur í Huambo í Angóla árið 1960. Hann er búsettur í Portúgal og hefur sent frá sér skáld- sögur og smásögur um líf sitt í Afríku. Tilvísunin í lok sögunn- ar er í sögu Heilagrar Elísabetar frá Aragon (1271–1336) sem var gift Denis konungi af Portúgal. Hún var hjartagóð og gaf fátækum að borða, manni sínum til mikillar skapraunar. Sagan segir að þegar konungurinn stóð hana að verki og heimtaði að fá að sjá hvað hún hefði í poka sínum þá hafi brauðið breyst í rósir. 06 Smás Þegarþeirhandtóku jóla 6.12.2002 14:09 Page 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.