Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 53

Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 53
 53 1. mál kirkjuþings 2010 Flutt af forsætisnefnd Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í löggjafarnefnd Starfsreglur um rannsóknarnefnd um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. 1. gr. Kirkjuþing 2010 kýs þriggja manna rannsóknarnefnd til að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Nefndin skal leggja mat á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfsmanna kirkjunnar, eða annarra þeirra sem gegnt hafa trúnaðarstörfum í þágu kirkjunnar, eftir að ásakanir um kynferðisbrot voru komnar fram, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Rannsóknarnefndin skal koma með ábendingar og tillögur um breytingar á starfsháttum kirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot af hálfu starfsmanna hennar. Forfallist einhver nefndarmanna eða láti af störfum í rannsóknarnefndinni skal forsætisnefnd kirkjuþings skipa annan í hans stað. 2. gr. Forsætisnefnd kirkjuþings skal leggja fyrir þingið rökstudda tillögu um skipan nefndarinnar. Nefndarmenn skulu vera með öllu óháðir stofnunum og embættum þjóðkirkjunnar og með engum hætti hafa átt nokkra aðkomu að ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Þá skulu þeir ekki hafa tjáð sig opinberlega um rannsóknarefnið. Formaður nefndarinnar skal uppfylla skilyrði laga til að gegna embætti hæstaréttar- dómara. Nefndarmenn skulu að öðru leyti vegna menntunar sinnar og starfsreynslu hafa sérstaka hæfni til að rannsaka og leggja mat á þau atriði sem tiltekin eru í 1. mgr. 1. gr. og koma með ábendingar og tillögur samkvæmt 2. mgr. sömu greinar. Um sérstakt hæfi nefndarmanna fer eftir sömu reglum og fram koma í 3. gr. stjórn- sýslulaga nr. 37/1993. Ber nefndarmanni að víkja sæti að því marki sem hann tengist aðilum sem rannsókn nefndarinnar beinist að. 3. gr. Rannsóknarnefndin skal eiga óheftan aðgang að öllum þeim heimildum, gögnum og skjölum, sem finnanleg kunna að vera í fórum þjóðkirkjunnar og stofnana hennar og varpað geta ljósi á rannsóknarefnið. Starfsmönnum þjóðkirkjunnar, hvort heldur er á biskupsstofu eða annars staðar, ber skylda til að greiða fyrir störfum nefndarinnar og veita henni óskorað liðsinni við gagnaöflun. Nefndin skal veita þeim einstaklingum sem telja sig hafa sætt kynferðislegri áreitni eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu Ólafs Skúlasonar biskups kost á viðtali og einnig að skila nefndinni skriflegri greinargerð sé þess óskað. Nefndin skal einnig ræða við þá starfsmenn kirkjunnar, núverandi og fyrrverandi, sem ætla má að búi yfir upplýsingum um rannsóknarefnið og er hinum fyrrnefndu skylt að hlýða kalli hennar. Þá skal nefndin leitast við að afla annarra gagna eftir því sem frekast er kostur, bæði munnlegra og skriflegra. Nefndinni er heimilt að hljóðrita viðtöl við þá sem hún ræðir við samkvæmt 1. mgr. enda fáist til þess samþykki hlutaðeigandi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.