Gerðir kirkjuþings - 2010, Blaðsíða 105
105
Þjóðkirkjan er hvarvetna sýnileg í athöfnum sínum og trúariðkun. Guðsþjónusta
Þjóðkirkjunnar stendur öllum opin. Guðsþjónustan er gjöf og köllun kirkjunnar allrar
og þar birtist hinn almenni prestsdómur allra skírðra. Guðsþjónustan er verk
safnaðarins, þjónusta lýðsins.
Orðið messa merkir útsending. Söfnuður Krists þiggur dagskipun hans til að fara út í
hversdaginn til að vitna um fagnaðarerindið og vinna verk kærleikans.
Presturinn, djákninn, meðhjálparinn, hringjarinn, organistinn og söngfólkið og aðrir
sem koma með beinum hætti að helgihaldinu eru þjónar safnaðarins í samfélagi
heilagrar kirkju. Vígður þjónn kirkjunnar veitir guðsþjónustunni forstöðu í Krists stað
og í umboði heilagrar kirkju hans. Sóknarprestur og sóknarnefnd bera ábyrgð á því að
guðsþjónusta standi jafnan sóknarbörnum til boða. Sérhver sá sem til kirkju kemur og
þaðan fer innir af hendi dýrmæta þjónustu hins almenna prestsdóms.
5.2 Helgihald þjóðkirkjunnar
1. Helgihald þjóðkirkjunnar felst í almennri guðsþjónustu, messu, barna- og
fjölskylduguðsþjónustu, tíðagjörð, fyrirbænaguðsþjónustu, kyrrðarstund,
helgistund, skírn, altarisgöngu, fermingu, hjónavígslu, staðfestingu samvistar,
útför.
2. Helgihald þjóðkirkjunnar er opinbert og opið öllum. Þeir sem tilheyra
þjóðkirkjunni eiga rétt á að taka þátt í helgihaldi sóknar sinnar og athöfnum
samkvæmt því sem Handbók kirkjunnar mælir fyrir um.
3. Sóknarbörn eiga rétt á að sækja helgihald og prestsþjónustu utan sóknar sinnar ef
svo ber undir. Frumskylda presta þjóðkirkjunnar er við eigin sóknarbörn.
4. Í hverri sókn skal að jafnaði halda almenna guðsþjónustu hvern helgan dag og á
hátíðum kirkjuársins. Þar sem aðstæður krefjast geta fleiri en ein sókn í prestakalli
eða á samstarfssvæði sameinast um almenna helgidagaguðsþjónustu og annað
helgihald.
5. Almenna helgidagaguðsþjónustu skal halda í samræmi við Handbók kirkjunnar.
6. Sóknarprestur ber ábyrgð á helgihaldi sóknarkirkju sinnar. Sóknarprestur eða sá
prestur sem annast guðsþjónustu safnaðarins í umboði hans ákveður í samráði við
organista sálma og lög sem sungin skulu. 8
7. Messu sóknarinnar skal einungis prestur leiða. Djákni getur og leitt guðsþjónustu
sóknarinnar í umboði og á ábyrgð sóknarprests. Leikmaður getur leitt
guðsþjónustu sóknarinnar í umboði og á ábyrgð sóknarprests með sérstöku leyfi
biskups.
8. Einungis sá sem hlotið hefur prestsvígslu má hafa um hönd sakramenti kirkjunnar.
Í neyðartilvikum, þegar ekki næst til prests, getur þó sérhver skírður karl eða kona
annast skemmri skírn. Ber að tilkynna hana sóknarpresti svo fljótt sem auðið er.
9. Skírn, fermingu, hjónavígslu, staðfestingu samvistar og útför skal jafnan undirbúa
með samtali þess prests sem athöfnina annast og aðstandenda. Prestur ber ábyrgð
á eftirfylgd við hlutaðeigendur að athöfn lokinni.
10. Ef prestur er beðinn um að annast guðsþjónustu eða helga athöfn í kirkju utan
sóknar sinnar skal hann ávallt leita leyfis þjónandi prests viðkomandi helgidóms.
8 Sjá einnig Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar.