Gerðir kirkjuþings - 2010, Síða 108
108
• Reglugerð um sunnudaga og helgidagahald hjer á landi 28. marz 1855 og opið bréf um sama
efni 26. september 1860.
• Bréf dóms- og kirkjumálaráðuneytis nr. 69 7. apríl 1970.
• Handbók kirkjunnar, 1981.
• Sálmabók kirkjunnar, 1972 (með síðari breytingum).
• Leiðbeiningar um samstarf þjóðkirkjunnar og Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um afnot af
kirkjum, 2008.
6. kafli. Boðun og fræðsla
6.1 Grundvöllur og hlutverk kirkjulegrar fræðslu
Kristin kirkja hefur það hlutverk að fylgja boði Krists að gera þjóðirnar að
lærisveinum og skíra þær í nafni föður, sonar og heilags anda og kenna þeim að halda
það sem hann hefur boðið. Við skírnarfontinn heita þau sem eru viðstödd af hálfu
safnaðarins hinum nýskírðu og fjölskyldum þeirra samfélagi og stuðningi til að takast
á við tilveruna og lifa sem kristnir einstaklingar.
Frumskylda kristins samfélags er að kenna þeim sem skírð eru að þekkja Guð, elska
hann og tilbiðja og að elska náungann eins og sjálfan sig. Fræðsla kirkjunnar hefur
það að markmiði að styrkja hvert og eitt okkar til þess að öðlast dýpri skilning á
kristinni trú og
þroskast sem manneskjur.
Fræðsla þjóðkirkjunnar leitast við að þjóna þessu meginmarkmiði. Sú fræðsla fer fram
á heimilum, í sóknum, prestaköllum, innan prófastsdæma og á vegum stofnana
kirkjunnar. Það er fyrst og fremst á ábyrgð heimilisins að annast þessa uppfræðslu.
Þar sem heimilið og fjölskyldan er hluti hinnar kristnu kirkju axlar söfnuðurinn og
kirkjan öll þessa skyldu með heimilinu.
Þjóðkirkjan hefur jafnframt það hlutverk að bjóða upp á fræðslu um kristna trú, einnig
fyrir þau sem ekki eru skírð, tilheyra ekki þjóðkirkjunni eða aðhyllast önnur
trúarbrögð.
Grundvöllur fræðslustarfs þjóðkirkjunnar er skírnarfræðslan sem hefur það að
markmiði að styrkja og fræða hin skírðu á ólíkum æviskeiðum og í margvíslegum
verkefnum. Til að ná betur utan um það er því skipt niður eftir aldursskeiði mannsins
og um leið lögð áhersla á þau viðfangsefni lífsins sem þá blasa við hjá hinum skírða
einstaklingi. 14
6.2 Almennt um fræðslu kirkjunnar
Í hverri sókn landsins skal bjóða upp á fræðslu um kristna trú og líf frá vöggu til
grafar. Þetta er skylda hverrar sóknar sem getur átt samstarf við aðrar starfseiningar
innan kirkjunnar um einstaka þætti.15 Áhersla er lögð á að fræðslan sé heildstæð og
nái til fólks á öllum æviskeiðum. Fræðslunni er skipt upp í fimm meginsvið:
foreldrastarf, barnastarf, fermingarstarf, unglingastarf, og fræðslu fullorðinna. Nánar
er fjallað um þessi svið hér á eftir.
14 Sjá greinargerð við Fræðslustefnu Þjóðkirkjunnar.
15 Félög innan þjóðkirkjunnar, t.d. KFUM og K, sem standa fyrir öflugri fræðslu óháð sóknarmörkum
og skipulagi kirkjunnar.