Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 147

Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 147
 147 Formáli Námskrá þessi er hugsuð fyrir fræðslustarf þjóðkirkjunnar og á hún að skapa umgjörð utan um fræðslustarfið í heild sinni. Hún er stefnumarkandi og er henni ætlað að hafa áhrif á mótun fræðslustarfs þjóðkirkjunnar í landinu. Námskráin er fyrir starfsfólk safnaða að velja leiðir og fræðslu sem talin er henta kirkjustarfinu á hverjum stað. Hún á einnig að þjóna því hlutverki að vera umræðugrundvöllur um fræðslustarfið og um leið að veita upplýsingar um starfið út á við. Námskráin á auk þess að vera leiðbeinandi fyrir þá aðila sem semja efni fyrir kirkjulegt fræðslustarf. Námskráin er rammi og viðmið fyrir söfnuði sem vilja semja safnaðarnámskrá þar sem tekið er mið af aðstæðum og þeim áherslum sem söfnuðurinn vill hafa í fræðslustarfi sínu. Námskráin á að veita safnaðarfólki, foreldrum og fólki almennt upplýsingar um markmið, inntak og skipulag fræðslustarfs kirkjunnar. Námskráin þarf að vera í stöðugri endurskoðun með það fyrir augum að hún megi gagnast sem best, á hverjum tíma, við skipulagningu og framkvæmd fræðslustarfs kirkjunnar. Námskrá þessi byggir á ýmsum gögnum sem þegar eru til, þau hafa verið endurbætt, en sumt er samið frá grunni. Tekið er mið af stefnumarkandi gögnum sem þjóðkirkjan hefur þegar samþykkt og birt. Námskráin er unnin í nánu samstarfi við sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóra fræðslusviðs, og sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur, verkefnisstjóra á Biskupsstofu. Bestu þakkir til allra sem á einn og annan hátt hafa komið að þessu verki. Undirritaður tók að sér að vinna þetta verk með hag og framgang fræðslustarfs þjóðkirkjunnar í huga. Dr. Gunnar E. Finnbogason Inngangur Tekin hefur verið saman heildstæð námskrá fyrir fræðslustarf kirkjunnar undir yfirskriftinni Að vísa veginn – fræðsla þjóðkirkjunnar frá vöggu til grafar, sem hér birtist. Við samantekt hennar hefur verið gengið út frá þeim áherslum sem er að finna í Fræðslustefnu þjóðkirkjunnar sem tók gildi 1. júlí 2005. Þar segir, með vísun í samþykkt kirkjuþings 2003, að: Fræðsla kirkjunnar hafi það að markmiði að styrkja hvert og eitt okkar til þess að öðlast dýpri skilning á kristinni trú og þroskast sem manneskjur. Ennfremur segir að vilji kirkjunnar sé: • að fræðslan sé heildstæð og nái til fólks á öllum æviskeiðum, • að horft sé sérstaklega til þeirra sem ala upp komandi kynslóðir og styðja þau í því verki að koma börnunum til manns í trú, von og kærleika. Grundvöllur fræðslustarfsins er: … skírnarfræðslan sem hefur það að markmiði að styrkja og fræða hin skírðu á ólíkum æviskeiðum og við margvíslegar aðstæður í lífinu. Talað er um frumskyldu kirkjunnar í þessu sambandi. Til að ná betur til ákveðins aldurshóps með fræðslu og til að geta mætt betur þörfum hvers hóps fyrir sig er starfinu skipt upp eftir aldursskeiðum. Í Fræðslustefnu þjóðkirkjunnar er þetta orðað svo: Til að ná betur utan um það [fræðslustarfið] er því skipt niður eftir aldursskeiði mannsins frá vöggu til grafar og um leið lögð áhersla á þau viðfangsefni lífsins sem þá blasa við hjá hinum skírða einstaklingi. Við aldursskiptinguna er gengið út frá fimm meginflokkum: 1. Barnafræðsla – foreldrafræðsla. 2. Fermingarfræðsla.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.