Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 166
166
15. mál kirkjuþings 2010
Flutt af kirkjuráði
Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í löggjafarnefnd:
Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um sóknarnefndir nr.
732/1998 og starfsreglum um presta nr. 735/1998.
1. gr.
Starfsreglur um sóknarnefndir nr, 732/1998
1. mgr. 1. gr. tillögunnar orðist svo:
Óheimilt er að ráða til starfa einstakling til að sinna börnum og ungmennum undir 18
ára aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum lagabálkum:
- barnaverndarlög nr. 80/2002,
- kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23 kafla og brot gegn
frjálsræði manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þó ekki
minniháttar líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga,
- lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra
hegningarlaga. nr. 19/1940, þ.e. refsidóm síðustu fimm ára.
2. gr.
Starfsreglur um presta nr. 735/1998
1. mgr. 2. gr. tillögunnar orðist svo:
Óheimilt er að ráða til starfa einstakling til að sinna börnum og ungmennum undir 18
ára aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum lagabálkum:
- barnaverndarlög nr. 80/2002,
- kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23 kafla og brot gegn
frjálsræði manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þó ekki
minniháttar líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga,
- lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra hegningar-
laga nr. 19/1940, þ.e. refsidóm síðustu fimm ára.
3. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfs-
hætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. desember 2010.