Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 174
174
20. mál kirkjuþings 2010
Flutt af biskupi Íslands
Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í allsherjarnefnd:
Þingsályktun um staðfestingu á breytingu á
„Samþykktum um innri málefni þjóðkirkjunnar“.
Kirkjuþing 2010 ályktar að staðfesta breytingar á „Samþykktum um innri málefni
þjóðkirkjunnar“, sem staðfestar voru á kirkjuþingi 2009 þannig:
1. IX. kafli samþykktanna Hjónavígsla Hjónavígsla, hjónaband orðist svo:
Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem tveir einstaklingar, karl og kona, eða
tveir karlar eða tvær konur, heita hvor öðrum ævitryggðum, að eiga, njóta og þiggja
saman önn sem yndi lífsins, gleði og sorgir.
Hjónavígslan er tjáning gleði og fagnaðar, samstöðu, ábyrgðar og vonar á þessum
vegamótum lífsins sem hjónin standa á. Söfnuðurinn umlykur hjónin fyrirbæn sinni
ásamt kirkjunni allri og vill með Jesú Krist sem fyrirmynd sýna því samfélag hinnar
gagnkvæmu þjónustu og þörf allra fyrir samfélag við Guð og náungann utan hrings
fjölskyldunnar.
Návist Guðs í hjónabandinu veitir hjónunum hjálp til að lifa saman í kærleika og
umhyggju og vera vottar þess í umhverfi sínu.
Hjónin játast hvort öðru opinberlega fyrir Guði og söfnuðinum, heita því að vera hvort
öðru trú, elska og virða hvort annað. Guð sameinar þau, þau tvö verða eitt. Presturinn
minnir þau á skuldbindingar og ábyrgð og fyrirheit hjónabandsins, og lýsir þau hjón
og leggur blessun Guðs yfir hjúskap þeirra. Viðstaddir biðja fyrir þeim og heimili
þeirra.
2. X. kafli samþykktanna falli brott.
3. Núverandi XI. kafli verður X. kafli og breytist númer annarra kafla er á eftir koma
til samræmis við það.
4. Breyting þessi taki gildi þegar í stað.