Fréttablaðið - 24.11.2016, Side 40
Í Arizona er sól og hiti allan árs
ins hring enda eyðimörk. „Maður
horfir á pálmatré, kaktusa og
sundlaugina í garðinum út um
gluggann. Það er þess vegna ekk
ert sértaklega jólalegt,“ segir
María. „Þetta verður í fyrsta
skipti sem ég elda sjálf þakkar
gjörðarmáltíð. Síðustu tvö ár
höfum við borðað með vinum
okkar, svokallað „Friendsgiving“
sem er vinsælt hjá fólki sem fer
ekki til fjölskyldunnar á þess
um degi. Árið þar á undan vorum
við hjá tengdaforeldrum mínum í
Conn ecticut og þar fékk ég að upp
lifa ekta ameríska Thanksgi
ving. „Ég ætla að elda
kalkún í kvöld en ég
hef aldrei gert það
áður. Það verður
spennandi að sjá
hvernig það mun
heppnast,“ segir
hún.
Horft á boltann
Undanfarna daga
hefur verið mikil
örtröð í verslunum,
enda fólk að kaupa
kalkún og allar þær kræs
ingar sem fylgja. „Maðurinn minn,
David Milo, er hálfur Íslendingur
og hálfur Bandaríkjamaður og er
vanur svakalegri kalkúnafyllingu
þannig að pressan er mikil,“ segir
María og hlær. „Ég ætla að vera
með sætkartöflu mús, waldorf
salat, maísbaunir, blómkálsgrat
ín og sveppasósu. Svo verð ég með
ekta ameríska böku, eða ég baka
íslenska tertu sem er alltaf best.
Stór partur af þessum degi hjá
Bandaríkjamönnum er að horfa á
ameríska fótboltann,“ segir hún.
„Jólastemningin hefst síðan fyrir
alvöru á morgun. Bandaríkjamenn
eru mjög duglegir að skreyta hjá
sér.“
Svo kemur Black Friday
María segir að í Arizona búi
margir Íslendingar. „Við erum
20 konur í saumaklúbbi og hitt
umst einu sinni í mánuði í sunnu
dagsbröns. Það kom mér eigin
lega á óvart hversu margir landar
mínir eru hér. Á morgun er síðan
Black Friday en sá dagur er eig
inlega rosalegur. Mörg fyrirtæki
eru þegar byrjuð með Black Friday
útsölur til að traffíkin dreifist.
Sumar fjölskyldur borða matinn
snemma á Thanks giving og fara
síðan að versla. Sjálf nenni ég
ekki í troðninginn en það er hægt
að gera mjög góð kaup, sérstaklega
á stærri tækjum,“ segir María. „Ég
finn mikið fyrir því þegar ég kem
heim til Íslands hvað allt er orðið
dýrt þar,“ segir María en þau hjón
in ætla að halda íslensk jól að þessu
sinni. „Maðurinn minn er alinn
upp við íslensk/bandarísk jól, tók
bæði upp pakka á aðfangadag og
jóladagsmorgun. Hann fékk alltaf
íslenskan jólamat ásamt þeim am
eríska. Svo fékk hann líka í skóinn
þannig að allir foreldrar í hverfinu
og í skólanum þurftu líka að gefa
sínum börnum í skóinn. Við ætlum
að vera á Íslandi núna á jólunum
og fá góðan mömmumat, hann er
alltaf bestur.“
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
María býr í Arizona í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni og dóttur. Þau verða með Thanksgiving-hátíðarmat í kvöld. Vinkona
hennar frá Íslandi er í heimsókn og fær að upplifa veisluna. Einnig íslenskur vinur sem er í doktorsnámi í Arizona. MYNDIR/EINKASAFN
Bandaríkjamenn leggja mikið upp úr glæsilegum fyllingum í kalkúninn.
Þessa mynd tók María í fyrra þegar hún fór í „Friendsgiving“ í Arizona.
Íslenskar hnallþórur leika í höndum Maríu sem útbjó þessar fyrir veisluna í fyrra.
Sjálfsagt verður eitthvað svipað á borðum í kvöld.
Þakkargjörð
í Sól og Hita
María Ólafsdóttir býr í Scottsdale í Arizona í Bandaríkjunum ásamt
eiginmanni og dóttur. Hún ætlar að elda kalkún í kvöld á
Þakkargjörðarhátíðinni. María segir að Bandaríkjamenn séu í óða önn
að jólaskreyta enda á allt að vera fínt á þessum degi.
Svo þarf auðvitað að vanda
sig vel við hátíðarborðið.
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Skyrta á 14.900 kr.
Einn litur
Stærð 42 - 52
Túnika á 12.900 kr.
Einn litur
Stærð 42 - 52
Opið
virka daga
kl. 11–18
laugardaga
kl. 11-15
Stórar stærðir
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
BLACK FRIDAY
30%-40% afsláttur af völdum vörum
(gildir til 26/11)
Stærðir 38-58
átíðarstund
í Fríkirkjunni í ReykjavíkH
Jólatónleikar til styrktar
Bráðamóttöku Landspítalans
fimmtudaginn 8. desember kl. 12
Hanna Dóra Sturludóttir, mezzosópran
Einar Clausen, tenór
Ágúst Ólafsson, barítón
Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi
Kvennakórinn Heklurnar
ásamt hljómsveit
Miðaverð 2500.-
Miðasala á tix.is og við innganginn
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r8 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ J ó lF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ T í s k A
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
9
-8
C
1
8
1
B
6
9
-8
A
D
C
1
B
6
9
-8
9
A
0
1
B
6
9
-8
8
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K