Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 40
Í Arizona er sól og hiti allan árs­ ins hring enda eyðimörk. „Maður horfir á pálmatré, kaktusa og sundlaugina í garðinum út um gluggann. Það er þess vegna ekk­ ert sértaklega jólalegt,“ segir María. „Þetta verður í fyrsta skipti sem ég elda sjálf þakkar­ gjörðarmáltíð. Síðustu tvö ár höfum við borðað með vinum okkar, svokallað „Friendsgiving“ sem er vinsælt hjá fólki sem fer ekki til fjölskyldunnar á þess­ um degi. Árið þar á undan vorum við hjá tengdaforeldrum mínum í Conn ecticut og þar fékk ég að upp­ lifa ekta ameríska Thanksgi­ ving. „Ég ætla að elda kalkún í kvöld en ég hef aldrei gert það áður. Það verður spennandi að sjá hvernig það mun heppnast,“ segir hún. Horft á boltann Undanfarna daga hefur verið mikil örtröð í verslunum, enda fólk að kaupa kalkún og allar þær kræs­ ingar sem fylgja. „Maðurinn minn, David Milo, er hálfur Íslendingur og hálfur Bandaríkjamaður og er vanur svakalegri kalkúnafyllingu þannig að pressan er mikil,“ segir María og hlær. „Ég ætla að vera með sætkartöflu mús, waldorf­ salat, maísbaunir, blómkálsgrat­ ín og sveppasósu. Svo verð ég með ekta ameríska böku, eða ég baka íslenska tertu sem er alltaf best. Stór partur af þessum degi hjá Bandaríkjamönnum er að horfa á ameríska fótboltann,“ segir hún. „Jólastemningin hefst síðan fyrir alvöru á morgun. Bandaríkjamenn eru mjög duglegir að skreyta hjá sér.“ Svo kemur Black Friday María segir að í Arizona búi margir Íslendingar. „Við erum 20 konur í saumaklúbbi og hitt­ umst einu sinni í mánuði í sunnu­ dagsbröns. Það kom mér eigin­ lega á óvart hversu margir landar mínir eru hér. Á morgun er síðan Black Friday en sá dagur er eig­ inlega rosalegur. Mörg fyrirtæki eru þegar byrjuð með Black Friday útsölur til að traffíkin dreifist. Sumar fjölskyldur borða matinn snemma á Thanks giving og fara síðan að versla. Sjálf nenni ég ekki í troðninginn en það er hægt að gera mjög góð kaup, sérstaklega á stærri tækjum,“ segir María. „Ég finn mikið fyrir því þegar ég kem heim til Íslands hvað allt er orðið dýrt þar,“ segir María en þau hjón­ in ætla að halda íslensk jól að þessu sinni. „Maðurinn minn er alinn upp við íslensk/bandarísk jól, tók bæði upp pakka á aðfangadag og jóladagsmorgun. Hann fékk alltaf íslenskan jólamat ásamt þeim am­ eríska. Svo fékk hann líka í skóinn þannig að allir foreldrar í hverfinu og í skólanum þurftu líka að gefa sínum börnum í skóinn. Við ætlum að vera á Íslandi núna á jólunum og fá góðan mömmumat, hann er alltaf bestur.“ Elín Albertsdóttir elin@365.is María býr í Arizona í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni og dóttur. Þau verða með Thanksgiving-hátíðarmat í kvöld. Vinkona hennar frá Íslandi er í heimsókn og fær að upplifa veisluna. Einnig íslenskur vinur sem er í doktorsnámi í Arizona. MYNDIR/EINKASAFN Bandaríkjamenn leggja mikið upp úr glæsilegum fyllingum í kalkúninn. Þessa mynd tók María í fyrra þegar hún fór í „Friendsgiving“ í Arizona. Íslenskar hnallþórur leika í höndum Maríu sem útbjó þessar fyrir veisluna í fyrra. Sjálfsagt verður eitthvað svipað á borðum í kvöld. Þakkargjörð í Sól og Hita María Ólafsdóttir býr í Scottsdale í Arizona í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni og dóttur. Hún ætlar að elda kalkún í kvöld á Þakkargjörðarhátíðinni. María segir að Bandaríkjamenn séu í óða önn að jólaskreyta enda á allt að vera fínt á þessum degi. Svo þarf auðvitað að vanda sig vel við hátíðarborðið. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Skyrta á 14.900 kr. Einn litur Stærð 42 - 52 Túnika á 12.900 kr. Einn litur Stærð 42 - 52 Opið virka daga kl. 11–18 laugardaga kl. 11-15 Stórar stærðir Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Flott jólaföt, fyrir flottar konur BLACK FRIDAY 30%-40% afsláttur af völdum vörum (gildir til 26/11) Stærðir 38-58 átíðarstund í Fríkirkjunni í ReykjavíkH Jólatónleikar til styrktar Bráðamóttöku Landspítalans fimmtudaginn 8. desember kl. 12 Hanna Dóra Sturludóttir, mezzosópran Einar Clausen, tenór Ágúst Ólafsson, barítón Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi Kvennakórinn Heklurnar ásamt hljómsveit Miðaverð 2500.- Miðasala á tix.is og við innganginn 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r8 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ J ó lF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ T í s k A 2 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 6 9 -8 C 1 8 1 B 6 9 -8 A D C 1 B 6 9 -8 9 A 0 1 B 6 9 -8 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.