Fréttablaðið - 29.09.2016, Síða 19

Fréttablaðið - 29.09.2016, Síða 19
E f Bandaríkin ein eru undan skilin var hvergi nokkurs staðar í heim-inum að finna lýðræði fyrr en um 1850 þegar byltingaralda reið yfir Evrópu og fæddi m.a. af sér Þjóð- fundinn í Lærða skólanum 1851. Byltingarnar voru að vísu barðar niður allar sem ein, en þær skiluðu eigi að síður drjúgum árangri þegar frá leið. Lýðræðisríkjum heimsins fjölgaði smám saman í 25 milli heimsstyrjaldanna, en þeim fækk- aði síðan niður fyrir tíu í síðari heimsstyrjöldinni. Þessar tölur eru reistar á viðtekinni flokkun stjórnmálafræðinga. Frá 1945 til 1960 fjölgaði lýðræðisríkjum upp í 35 eða þar um bil, en þeim fjölgaði ekki frekar 1960-1980. Árin 1980-2000 rauk fjöldi lýðræðisríkja upp í 90 sem nam þá næstum helmingi allra landa heimsins. Þarna munaði einna mest um hrun kommúnismans um 1990. Eftir aldamótin 2000 hægði á útbreiðslu lýðræðis. Engin fjölgun hefur átt sér stað í hópi lýðræðis- ríkja frá 2006 eins og ég lýsti á þessum stað 5. marz 2015. Mörg lönd hafa dregið úr eða snúið baki við lýðræði undangengin ár, t.d. Rússland og Tyrkland og einn- ig Bangladess og Taíland. Ein- ræðisríkjum fækkar, rétt er það, en fáræðisríkjum þar sem hvorki ríkir einræði né lýðræði fjölgar að sama skapi. Jafnvel ESB-ríkin Ungverja- land og Pólland sýna merki um dvínandi virðingu fyrir lýðræði og mannréttindum í blóra við grund- vallarhugsjónir ESB. Bandaríkin voru m.a.s. felld úr efsta flokki í nýrri skýrslu frá Freedom House um lýðræði og frelsi og standa nú að baki ESB-þjóðanna í lýðræðis- legu tilliti. Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Að breyta rétt Í þessu ljósi er vert að skoða þá staðreynd að Alþingi hafa ekki enzt fjögur ár til að staðfesta niður- stöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýju stjórnarskrána 2012, stjórnarskrá sem 2/3 hlutar kjós- enda lýstu stuðningi við. Stjórn- málamenn og aðrir virðast reyna að skýla sér á bak við veiklun lýð- ræðis í öðrum löndum til að rétt- læta virðingarleysi þeirra sjálfra gagnvart leikreglum lýðræðisins hér heima. Við ættum heldur öll sem eitt að gæta þess að einmitt núna fer einstaklega illa á að senda lýðræðinu langt nef. Nú þegar lýð- ræði á undir högg að sækja í Evr- ópu og Bandaríkjunum af öllum stöðum ber brýna nauðsyn til að Alþingi breyti rétt og víki í engu frá djúpstæðri virðingu Íslendinga fyrir lýðræði. Alþingi þarf að sýna umheim- inum að Íslendingum var alvara þegar þeir brugðust við banka- hruninu 2008 með því að semja lýðræðislegustu stjórnarskrá sem sögur fara af að allra dómi sem gerst þekkja, og er þá átt bæði við inntak nýju stjórnarskrárinnar og aðferðina sem var notuð við samningu hennar. Ísland er nú í aðstöðu til að senda umheiminum örvandi boð um fegurð og nota- gildi lýðræðis, boð sem vinir lýð- ræðis og mannréttinda um allan heim myndu fagna. Sú staðreynd að Alþingi hafa ekki enzt fjögur ár til að senda frá sér svo sjálf- sögð boð vekur eftirtekt, undrun og einnig áhyggjur ekki bara hér heima heldur einnig í útlöndum. Undir högg að sækja Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Í tilefni af alþjóðlegum kaffidegi í dag, 29. september, bjóðum við 20% afslátt af öllum Siemens og Bosch kaffivélum. Tilboðið gildir dagana 29. september, 30. september og 1. október eða á meðan birgðir endast. Á ekki við um önnur tilboð. Kaffivélar handa íslenskum kaffiunnendum. Kaffidagar hjá Smith & Norland Fyrirmyndir að utan Fyrirmyndir utan úr heimi eru skýrar. Þjóðaratkvæðagreiðslan um útgöngu Breta úr ESB í vor leið var ráðgefandi, en engum lýðræðissinna á Bretlandi eða annars staðar dettur í hug að ganga fram hjá niðurstöð- unni nema þá kannski Skotum tak- ist fyrir dómstólum að sýna fram á lögmætt neitunarvald sér til handa. Bandaríkjaþing breytti ekki stafkrók í stjórnarskránni sem stjórnlaga- þingið í Fíladelfíu samdi á fjórum mánuðum 1787. Þingmenn skildu að þeim var ekki ætlað að skipta sér af málinu enda varðar stjórnarskráin þá sjálfa og starfshætti þeirra. Þingið sendi stjórnarskrána því áfram óbreytta til afgreiðslu í fylkjunum sem þá voru 13 talsins. Þegar níu fylki höfðu samþykkt textann varð hann að landslögum. … sem afturhaldsöflin geta fallizt á Óvíða hefur það komið skýrar fram en hér heima hversu illa fallin þjóðþing eru til að skipta sér af stjórnarskrám. Vandinn er að sönnu vel þekktur úti í heimi. Stjórnlag- aráð samdi fullbúna stjórnarskrá fyrir opnum tjöldum á innan við fjórum mánuðum 2011 þannig að hvergi bar skugga á starfið, engin minnihlutaálit voru lögð fram og engar bókanir, enda komu þing- menn og stjórnmálaflokkar hvergi nærri verkinu. Stjórnarskrárnefnd Alþingis hélt 53 fundi fyrir luktum dyrum sl. þrjú ár til að fjalla um og úrbeina þrjár af 114 greinum í frumvarpi Stjórnlagaráðs. Nefndin reyndist að endingu þríklofin eins og bókanir brotanna þriggja á vef- setri forsætisráðuneytisins vitna um. Einn fv. nefndarmaður, tilnefndur af Framsókn, lýsti verki nefndarinnar í heyranda hljóði sem handónýtu á ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri um síðustu helgi. Annar nefndar- maður hefur lýst verki nefndarinnar svo: „Útkoman er sú sem aftur- haldsöflin geta fallist á.“ Ólíklegt verður að teljast að frumvarp for- sætisráðherra sem er byggt á verki nefndarinnar eftir 53 fundi nái fram að ganga fyrir þinglok. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 9 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 2 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B A -6 C D 4 1 A B A -6 B 9 8 1 A B A -6 A 5 C 1 A B A -6 9 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.