Fréttablaðið - 29.09.2016, Page 32
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Guðrún Birna ætlar að fá sér nýjan varalit fyrir veturinn, einhvern fallega dökkan
og rómantískan. MYND/ERNIR
„Ég hef alltaf verið hrifin af því að
vera með flottan varalit, eyeliner
og augnhár en ég elska rauða vara-
liti og verða þeir oft fyrir valinu.“
Nýju maskarnir frá
Loréal eru algjört æði
að sögn Guðrúnar.
Snyrtivörur hafa alltaf heillað
Guðrúnu Birnu Gísladóttur, förð
unarfræðing og bloggara á Lady.is.
„Ég held að þetta hafi allt byrjað
þegar mamma fór með mig í MAC
þegar ég var fimmtán ára. Ég var
með mikið af bólum og slæma húð
en við fórum saman í MAC og hún
keypti fyrir mig meikstifti til að
hylja bólurnar. Ég var alveg heill
uð eftir það.“
Hvaða snyrtivörur eru í uppá-
haldi?
Face and Body meikið frá MAC,
það er létt og ljómandi og hef ég
ekki fundið sambærilegt meik sem
ég er eins ánægð með. Pro Long
wear hyljarinn frá MAC, hann er
besti hyljari í heimi. Lash Sensati
onal maskarinn frá Maybelline, ég
hef prófað fullt af möskurum en
þessi toppar allt sem ég hef prófað.
Sand Tropez naglalakkið frá Essie,
fullkomið nudenaglalakk. Brúnku
kremin frá St. Tropez, ég byrjaði
að nota þau þegar ég var ólétt að
stelpunni minni og féll alveg fyrir
þeim, froðan og instanttanið eru í
uppáhaldi.
Hvaða vörur notar þú daglega?
Face and Body frá MAC, Fit Me
hyljari frá Maybelline, Lash
Sensational maskari frá Maybell
ine, Mineralize Skinfinish púður
frá MAC, Brow Definer frá Anas
tasia Beverly Hills, svo nota ég
oftast highlight, kinnalit og sólar
púður en litirnir fara eftir skapi
og stuði.
Hvernig málar þú þig þegar þú
ætlar út á lífið?
Ef ég hef nægan tíma þá finnst
mér mjög gaman að gera flotta
augnförðun, jafnvel smokey og
vera með nude varir við. Annars
hef ég alltaf verið hrifin af því að
vera með flottan varalit, eyeliner
og augnhár en ég elska rauða vara
liti og verða þeir oft fyrir valinu.
Hvað er best að gera til að
hugsa vel um húðina?
Alltaf að hreinsa húðina á kvöld
in fyrir svefninn og á morgnana
eftir nóttina. Passa sig að nota gott
rakakrem og láta maska á sig einu
sinni í viku. Ég er alveg sjúk í nýju
maskana frá L’Oréal, þeir eru al
gjört æði. Svo er það þetta klass
íska að drekka nóg af vatni, en það
getur gert kraftaverk fyrir húðina.
Áttu einhverja fyrirmynd þegar
kemur að förðun?
Mér finnst mjög gaman að fylgjast
með Desi Perkins og Katy (Lust
relux) á Youtube og Snapchat.
Einnig finnst mér mjög gaman að
fylgjast með íslenskum förðunar
snöppurum, við eigum svo marga
klára förðunarfræðinga og fæ ég
oft innblástur frá þeim.
Hvaða snyrtivara verður keypt
fyrir veturinn?
Mér finnst mjög gaman að kaupa
mér nýjan varalit fyrir veturinn,
einhvern fallega dökkan og róm
antískan.
Hvar kaupir þú snyrtivörur
helst?
Ég reyni oft að nýta mér það þegar
fjölskylda og vinir fara til útlanda
og panta ég mér oft á netinu og
sendi á þau. Ég elska Sephora en
þau eru með mjög mikið af flottum
merkjum. Ég er líka mikill MAC
elskandi, hef alltaf verið og mun
alltaf vera.
Eyðir þú miklu í snyrtivörur?
Nei, ég myndi ekki segja það. Ég
kaupi oftast þegar mig vantar eitt
hvað en auðvitað verður maður
að leyfa sér stundum. Þá eru það
oftast varalitir og naglalökk sem
verða fyrir valinu.
Hvað er nýtt/flott í haust?
Þegar ég hugsa um haustið sé ég
alltaf fyrir mér hlýja tóna. App
elsínugulur, rauður og brúnn eru
mjög vinsælir í augnförðunum og
dökkar varir koma hægt og rólega
inn í staðinn fyrir bjarta sumarliti.
Hægt er að fylgjast með Guð
rúnu Birnu á Snapchat á gudrun
birnag.
Dökkt Á Haustin
Rauðir varalitir verða oft fyrir valinu hjá Guðrúnu Birnu þegar hún
málar sig fyrir fínni tilefni. Hún leyfir lesendum að líta í snyrtibudduna.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Fa
rv
i.i
s
//
0
91
6
KRINGLUNNI | 588 2300
Hafðu smá
í dag
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
Hluti af þeim
snyrtivörum
sem Guðrún
Birna notar
daglega.
Guðrún
Birna
byrjaði
að nota
brúnku-
kremin frá
St. Tropez
þegar hún
var ólétt að
stelpunni
sinni og féll
alveg fyrir
þeim.
Litirnir á
highlight,
kinnalit og
sólarpúðri
sem Guð-
rún Birna
velur sér
fara eftir
skapi og
stuði.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-5
9
1
4
1
A
B
A
-5
7
D
8
1
A
B
A
-5
6
9
C
1
A
B
A
-5
5
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K