Fréttablaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 52
Sundáhrif Sólveigar opnunarmynd RIFF
RIFF verður sett í þrettánda sinn við hátíðlga athöfn í Háskólabíói í kvöld. Opnunarmynd
hátíðarinnar er fransk/íslenska kvikmyndin Sundáhrifin eftir Sólveigu Anspach.
Opnunarmynd RIFF er Sundáhrif, kvikmynd eftir Sólveigu Anspach, og verður hún sýnd í stóra sal Háskólabíós í kvöld.
Sólveig Anspach.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Reykjavík International Film Festi-
val, RIFF, hefst í kvöld. Opnunar-
mynd hátíðarinnar er Sundáhrif,
kvikmynd eftir Sólveigu Anspach
og verður hún sýnd í stóra sal
Háskólabíós í kvöld. Myndin var
heimsfrumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni Cannes í vor þar sem hún
hlaut SACD-verðlaun in fyr ir bestu
frönsku mæl andi kvik mynd ina á
loka hófi dag skrár inn ar Director's
Fortnig ht.
Myndin segir frá Samir sem er ást-
fanginn af sundkennara sínu, Agathe,
og óskar að bæta ráð sitt gagnvart
henni. Samir eltir ástina til Íslands en
verður fyrir rafstraumi sem gerir það
að verkum að hann missir minnið
og vandast þá málin því hvernig
getur hann bætt upp fyrir nokkuð
sem hann ekki man? Getur Agathe
aðstoðað hann við að endurheimta
minnið, og um leið ást hans í hennar
garð? Florence Loiret Caille og Samir
Guesmi fara með aðalhlutverkin.
Með önnur hlutverk fara ljóðskáldið
Didda Jónsdóttir, sem leikið hefur í
alls fjórum myndum Sólveigar, Frosti
Jón Runólfsson, Ingvar E. Sigurðsson
og Kristbjörg Kjeld.
Tökur á Sundáhrifunum fóru fram
í Frakklandi og á Íslandi árið 2014
og 2015. Sólveig glímdi við illvígt
krabbamein á meðan á tökum stóð
og lést í ágúst í fyrra. Hún leikstýrði
alls fjórtán myndum á farsælum
ferli sínum.
„Við veljum Sundáhrifin af því
að okkur finnst Sólveig vera frá-
bær kvikmyndagerðarkona og
við höfum sýnt mikið af myndum
eftir hana. Þetta er fyrst og fremst
skemmtileg og góð mynd. Ég var
viðstödd heimsfrumsýninguna úti
í Cannes og hún vakti mikla hrifn-
ingu gesta í salnum,“ sagði Hrönn
Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, í
viðtali við Fréttablaðið í ágúst.
RIFF verður sett við hátíðlega
athöfn í Háskólabíói í kvöld. Kvik-
myndahátíðin stendur yfir í tíu
daga, eða til 9. október næstkom-
andi. sara@frettabladid.is
KviKmyndir
Sólveigar anShpach:
Leikstjórinn Sólveig Anspach
fæddist árið 1960 í Vestmanna-
eyjum. Hún bjó lengst af í Frakk-
landi og starfaði þar sem hand-
ritshöfundur og leikstjóri. Meðal
helstu verka hennar má nefna:
l Stormviðri
(Stormy Weather) 2003
l Skrapp út 2009
l Queen of Montreuil 2012
l Lulu in the Nude 2013
l Sundáhrifin 2015
18.45 Hatur
Finnska kvikmyndin Hatur
segir frá Lauri og öðrum fórnar-
lömbum eineltis sem haldin eru
áfallastreituröskun og eru upp-
full af hatri. Þau verða vör við
óréttlæti og undirbúa hefndir ...
eins og skotárásir í skólum.
Sýnd í Bíói Paradís.
19.30 Veraldarvana stúlkan
Ítalsk/franska kvikmyndin La
Ragazza del Mondo segir frá
Giuliu sem verður ástfangin af
Libero. Saga þeirra er saga um
sanna og óumflýjanlega ást. Þau
hefja líf sitt saman af mikilli
ástríðu, það verður til þess að
Giuliu er úthýst frá Vottum
Jehóva og þar með veröldinni
sem hún tilheyrði.
Sýnd í Bíói Paradís.
20.30 Múrar
Múrar er spænsk heimildar-
mynd sem segir sögur fólks sem
búa sitthvorum megin við
hina ýmsu múra; múrinn sem
aðskilur Suður-Afríku og Simb-
abve, aðskilnaðarmúrinn milli
Bandaríkjanna og Mexíkó og
girðinguna í Melilla sem markar
landamæri Spánar og Marokkó.
Sýnd í Bíói Paradís.
21.30 Hættu að glápa
á diskinn minn
Þessi króatíska kvikmynd er
sýnd í flokknum Vitranir og segir
frá Marijönu og fjölskyldu henn-
ar. Í kjölfar þess að stjórnsamur
faðir hennar fær heilablóðfall og
verður algjörlega rúmliggjandi
tekur Marijana við stöðu hans
sem höfuð fjölskyldunnar.
Sýnd í Bíói Paradís.
Frumsýningar
á RIFF
Léttleikandi
timburhús
í hjarta
Akureyrar
Nýtt á skrá. Snyrtilegt og vel staðsett, fjögurra
hæða timburhús í Brekkunni á Akureyri með
glæsilegu útsýni yfir Eyjafjörð. Flott eign með
mikla möguleika. Tilvalið fyrir laghenta.
Ísskápur og þvottavél fylgja.
VÖN
DU
Ð
GÓ
LFE
FNI
Á S
VIÐ
I FULLFRÁ-GENGIN LÓÐ
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r40 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð
bíó
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
A
-6
7
E
4
1
A
B
A
-6
6
A
8
1
A
B
A
-6
5
6
C
1
A
B
A
-6
4
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K