Fréttablaðið - 29.09.2016, Qupperneq 61
LEIKIR
FIFA 17
HHHHH
EA Sports
Playstation 4
Nýjasta útgáfan af vinsælasta
íþróttaleik heims kemur út á Íslandi
í dag. FIFA 17 frá EA Sports er frá-
bær tölvuleikur; á ótrúlegan hátt
tekst framleiðendum að gefa í og
bæta við nýjum þáttum í leikinn
á meðan haldið er áfram að full-
komna spilunina.
FIFA 17 er raunverulegasti
íþróttaleikur sem komið hefur út
og mun eflaust fjölga ástríðufullum
unnendum knattspyrnunnar. Leik-
urinn hefur vakið einstaklega mikla
athygli hér á landi, eftir samskipti
KSÍ og EA Sports sem framleiðir
leikinn. Íslensku landsliðin eru ekki
í leiknum, en gaman hefði verið að
sjá landsliðsfólkið okkar í leiknum.
Frábært ferðalag
David Rutter, framleiðslustjóri
FIFA-leikjanna, og félagar ákváðu
að bjóða upp á nýja vídd í FIFA 17
– fyrsta stóra viðbótin við spilun
síðan FIFA Ultimate Team var kynnt
til leiks í FIFA 13. Í ár er hægt að setja
sig í spor ungs fótboltamanns, Alex
Hunter, í spilunarham sem kallast
The Journey (eða Ferðalagið).
Ég fékk leikinn í hendur í vikunni
og ákvað að eyða mestum tíma í
spiluninni í þennan ham, því hann
skiptir mestu máli í uppfærslunni
í ár. Skemmst er frá því að segja að
þessi viðbót er stórkostleg, maður
verður strax nánast háður því að
halda sögunni áfram, ná lengra
sem Alex Hunter og kynnast stór-
stjörnum knattspyrnuheimsins í
gegnum leikinn.
Grípandi söguþráður
Hunter er fyrst kynntur til sögunnar
11 ára að aldri og fær maður hlut-
verk í yngri flokka leik. Ég ætla ekki
að spilla neinu fyrir þeim sem vilja
kynnast söguþræðinum sjálfir en
get sagt að ýmsar stórstjörnur flétt-
ast inn í söguþráðinn, auk mjög
áhugasamrar mömmu, afa sem
gefur góð ráð og pabba sem vill
varla tala við son sinn. Vinskapur
verður til og vinskapur endar. Allt
er þetta einstaklega raunverulegt,
enda komu atvinnumenn að sögu-
þræðinum, til þess að gera „leiknu
atriðin“, sem gerast ekki inn á vell-
inum, eins raunveruleg og hægt er.
Sem leikmaður kynnist maður
þjálfurum, reynsluboltum og öðrum
ungum leikmönnum sem maður er
í samkeppni við. Maður getur ráðið
tilsvörum, bæði við félagana og
við fréttamenn. Svörin hafa áhrif
á vinsældir Hunters, til að mynda
hversu margir elta hann á Twitter
sem hefur áhrif á styrktarsamninga.
Lítur vel út
FIFA 17 lítur vel út – aldrei hefur
nokkur íþróttaleikur fangað raun-
veruleikann jafn vel. Þetta er fyrsta
útgáfan þar sem EA Sports notast
við Frostbite-leikjavélina og kemur
það berlega í ljós, bæði í spilun og
í atriðum sem gerast í The Journey.
Búið er að lappa upp á hið svo-
kallaða Career Mode, þar sem spil-
arar setja sig í spor knattspyrnu-
stjóra. Búið er að auka á skyldur
stjórans, nú þarf að hugsa út í treyju-
sölu og fleira þegar kemur að því að
stjórna liðum. Einnig geta spilarar
haft áhrif á útlit stjórans og fleira. En
í hreinskilni sagt gafst mér ekki tími
til þess að kafa nógu djúpt í þennan
ham leiksins, með tilliti til þess
hvort hnökrar fyrri leikja hafi verið
lagaðir. Forvitnilegt verður að sjá
hvort endurnýjun leikmanna verði
bætt, en það hefur verið stærsti gall-
inn á Career Mode hingað til.
Skriðþungi leikmanna
Búið er að breyta spiluninni inni
á sjálfum vellinum. Til dæmis eru
föstu leikatriðin gjörbreytt. Leik-
menn láta stundum illa að stjórn,
oft er eins og skriðþunginn sé of
FIFA 17 er frábær: Lengi getur gott batnað
mikill. Erfitt getur reynst að halda
boltanum og spilið getur orðið svo-
lítið einhæft. Maður spyr sig hvort
gervigreindin sé hreinlega orðin of
mikil.
Í The Journey fær maður líka
stundum á tilfinninguna að úrslit
leikjanna séu fyrirfram ákveðin.
Stundum gefa varnirnar Alex Hunt-
er allt of mikið pláss og stundum
missa menn boltann til hans á
slæmum stöðum.
Umgjörðin áþreifanleg
En þrátt fyrir að spilunin geti
stundum valdið pirringi, þá
verður það ekki tekið af fram-
leiðendum að þeim tekst frábær-
lega upp í umgjörðinni. „Sjón-
varpsútsendingarnar“ frá hinum
fjölmörgu deildum í leiknum eru
ólíkar og maður sér að hugsað er
út í minnstu smáatriði.
Gullaldartímabilið
Leikurinn er að verða líkari NBA2k-
leikjunum og Madden, þar sem
keppst er við að hafa hlutina sem
raunverulegasta utan vallar, ekki
síður en inni á vellinum.
Þetta er í fyrsta sinn í langan
tíma sem EA Sports tekur svona
mikla áhættu í uppfærslu sinni og
leikurinn mun eflaust standa uppi
sem mikilvæg uppfærsla í FIFA-
seríunni.
Líklega var EA Sports að fram-
lengja gullaldartímabil knatt-
spyrnuleikja enn frekar með
þessum leik. Gullaldartímabil sem
grundvallast á ástríðu framleiðanda
auk góðs skilnings á þeim leikja-
vélum sem framleitt er fyrir. Gull-
aldartímabil sem hefur haft áhrif
á knattspyrnuna og fjölgað unn-
endum þessarar fögru íþróttar.
Kjartan Atli Kjartansson
LEIKJASTÓLAR
4
LITIR
ENZO
29.990
TPL408E2K
5.995
Ertu í
vandræðum
með þráðlausa
netið?
AFSLÁTTUR
50%
VERÐ ÁÐUR11.990
NET YFIR RAFMAGN
VERÐ ÁÐUR34.990
AFMÆLISTILBOÐ
HEYRNARTÓL
HITZ
54.990
NÝ KYNSLÓÐ LEIKJATÖLVA!
• Nýjasta kynslóð leikjatölva frá Sony
• 500GB harður diskur fyrir alla leikina
• Notar HDR tækni fyrir ótrúlega dýpt
• Spotify, Netflix, Youtube ofl öpp
• Fullkominn HD margmiðlunarspilari;)
• Taktu upp öll flottustu atvikin og deildu
• Styður PlayStation VR græjur;)
• Öflugri, þynnri og léttari ný kynslóð
• Nýr þráðlaus Dual Shock 4 stýripinni
9.990
WONLEX GPS KRAKKAÚR
GW100
SOS
HNAPPUR
SENDIR BOÐ Í SÍMA
FORELDRA!
MICRO
SIM
VIRKAR MEÐ ÖLLUM
SIM KORTUM:)
GPSKRAKKAÚR
ENGAR ÁHYGGJUR MEÐ WONLEX!
Bráðsniðugt og vandað GPS krakkaúr með
1.22’’ LED lita snertiskjá, SOS takki fyrir neyðar-
símtal og SMS sendingu með staðsetningu.
• 1.22’’ lita LED snertiskjár
• Allt að 10 símanúmer í símaskrá
• Hægt að velja 3 SOS símanúmer
• Með innbyggðri vekjaraklukku
• Viðvörun kemur í síma ef úr er tekið af
• Hægt að skoða ferðir barnsins yfir daginn
• GEOgirðing varar við ef úr fer út fyrir svæði
• Allar aðgerðir stjórnast úr síma foreldra
• App í boði fyrir IOS og Android
3
LITIR
34.990
22” 24.990 | 24” 27.990
GC2870H
• 28’’ VA-LED FHD 1920x1080 skjár
• 3000:1 native skerpa og True 8-bit litir
• 5ms GTG viðbragðstími fyrir leikina
• Flicker-free og Low Blue Light tækni
• 178° True to Life Ultra Wide sjónarhorn
• Einstök myndgæði með Wide Color Gamut
• 2x HDMI 1.4, VGA, HDMI kapall fylgir
2x HDMI TENGI;)
TENGDUALLT
VERÐ ÁÐUR49.990
AFMÆLISTILBOÐ
28”VALED
FULL HD SKJÁR
Ertu í
vandræðum
með þrá lausa
netið?
NÝ
SENDING
LENT!
12.990
FYRIR POKÉMON GO!
• 7’’ IPS fjölsnertiskjár 1024x600
• Quad Core 1.3GHz A53 64-bit örgjörvi
• Hexa Core Mali T720 DX11 3D skjákjarni
• 8GB flash og allt að 32GB microSD
• 4G-LTE, 300Mbps WiFi, BT 4.0, GPS
• Li-Polymer rafhlaða allt að 4 tímar
• USB2 micro og microSD kortalesari
• 2x vefmyndavélar 2MP FHD og 0.3MP
• Android 5.1 Lollipop og fjöldi forrita
M7410
4G
DUAL S
IM
TEKUR
SÍMKO
RT
FRÁ ÖL
LUM
SÍMFÉL
ÖGUM
7”MOBII
1TB SLIM FLAKKARI
KEMUR Í FJÓRUMLITUM!
12.990
1TB SLIM
2TB
19.90
0
FÆST Í 2 LITUMFÆST Í 3 LITUMF ST Í 2 LIT
79.990
P20E
RÁBÆR Í SKÓLANN!
5
Fullbúinn skólafélagi! Með full HD skjá, ofur
hröðum SSD disk, öflugra þráðlausu neti og
Nvidia leikjaskjákorti fyrir alla grafíska vinnslu.
• Intel Pentium Dual Core 3558U 1.7GHz
• 4GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 256GB SSD ofur hraður diskur
• 15.6’’ FHD LED Anti-Glare 1920x1080
• 2GB GeForce GT 920M leikjaskjákort
• 2.0 TrueHarmony Wide Range hljóðkerfi
• 1300Mbps WiFi MU-MIMO, BT 4.0, USB 3.0
• 720p Crystal Eye HD Skype vefmyndavél
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
3
DAGA
TILBOÐ
20ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR99.990 E5-573G
NÝJASTA 2017 KYNSLÓÐ FARTÖLVA!
PS4
STÝRIPIN
NI
FYLGIR
PS4SLIM
NÝ
KYNSLÓÐ
ÖFLUGRI, ÞYNNRI
OG LÉTTARI
159.990
• Intel Core i5-6200U 2.8GHz Turbo 4xHT
• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 256GB SSD ofur hraður diskur
• 14’’ FHD IPS 1920x1080 fjölsnertiskjár
• Intel HD 520 DX12 Skylake skjákjarni
• AccuType lyklaborð með baklýsingu
• 867Mbps Dual WIFI AC, BT 4.0, USB 3.0
• Glæný rafhlöðutækni allt að 7 tímar
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
YOGA700
80QD008SMH
7
FULL HDIPSCORNING GORILLA GLASSFJÖLSNERTISKJÁR MEÐ178° SJÓNARHORNI
HÆGT AÐ SNÚA 360°
20ÞÚSUND AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR179.990
3
DAGA
TILBOÐ
4
LITIR
AFSLÁTTURVERÐ ÁÐUR 4.990
50% 2.495
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Virka daga
10:00 - 18:00
Laugardaga
11:00 - 16:00
OPNUNARTÍMAR
AFMÆLIS
VEISLA
FRÍTT
SENDUM
ALLAR FA
RTÖLVUR
Í SEPTEMB
ER
*Tölvutek er stæ
rsta sérhæ
fða tölvuverslun landsins í ferm
etrum
verslunarrým
is talið, sam
kvæ
m
t niðurstöðu Neytendastofu þann 10.05.2016
*10 ÁRA AFMÆLISVEISLA Í STÆRSTU TÖLVUVERSLUN LANDSINS
29. septem
ber 2016 • Birt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð 49F I M M T U D A G U R 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 6
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-6
7
E
4
1
A
B
A
-6
6
A
8
1
A
B
A
-6
5
6
C
1
A
B
A
-6
4
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K