Fréttablaðið - 29.09.2016, Qupperneq 62
í alvöruna
Úr gríninu
Júlíana Sara Gunnarsdóttir leikur í spennumyndinni Grimmd sem
frumsýnd verður í október. Júlíana er þekkt fyrir hlutverk sitt í
gamanþáttunum Þær tvær, en hér leikur hún alvarlegra hlutverk.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Það var virkilega skemmtileg til-
breyting að leika eina persónu
og geta einbeitt mér algjörlega að
henni, samanborið við hlutverk
mín í Þær tvær þar sem við bregðum
okkur í hlutverk fimm karaktera á
einum tökudegi,“ útskýrir leik-
konan Júlíana Sara Gunnarsdóttir
þegar hún er spurð út í hlutverk sitt
í spennumyndinni Grimmd eftir
Anton Sigurðsson.
Flestir þekkja Júlíönu úr grín-
þáttunum Þær tvær sem sýndir eru
á Stöð 2, en þar bregður Júlíana sér
í fjölda gamanhlutverka ásamt Völu
Kristínu Eiríksdóttur.
„Fjölbreytnin er það sem drífur
mig áfram í leiklistinni. Það var
mjög gaman að mæta á sett í allt
aðra stemningu en ég er vön, þar
sem grín og glens er allsráðandi.
Þarna þurfti ég frekar að kúpla mig
niður. Í rauninni er það þannig að
þegar alvara málsins er jafn mikil og
í Grimmd, þá detta allir sjálfkrafa í
alvarlegri gír til að koma sögunni
sem best til skila,“ segir Júlíana.
Grimmd er íslensk spennumynd
sem segir frá hvarfi tveggja ungra
stúlkna af leikvelli í Árbænum.
Stúlkurnar finnast síðan látnar í
Heiðmörk og hefst þá viðamikil
rannsókn á málinu. Myndin fléttar
saman nokkra söguþræði þegar
hræðileg málsatvik koma upp á
yfirborðið.
„Ég leik Karítas, metnaðarfulla
rannsóknarlögreglukonu, sem
þráir ekkert heitar en að leysa mál
stúlknanna. Það dugir henni ekki að
finna bara sökudólginn, heldur vill
hún vita ástæðuna að baki verknað-
inum.“ Júlíana segir að auðvelt hafi
verið að samsama sig karakternum.
„Karítas lítur upp til samstarfs-
konu sinnar, Eddu, sem er algjör
reynslubolti í faginu. Edda er leikin
af Margréti Vilhjálmsdóttur og þar
sem ég lít mikið upp til Möggu í
leiklistinni var þetta lítið mál,“ segir
hún og bætir við: „Ég var alltaf full
tilhlökkunar að mæta í vinnuna.“
Næg verkefni eru fram undan hjá
Júlíönu en hún er að vinna í eigin
verkefnum ásamt því að vera ólétt
að sínu öðru barni sem væntanlegt
er í heiminn í mars.
„Það er mikil hugmyndavinna í
gangi þessa dagana. Svo eru alltaf
spennandi verkefni í pokahorninu.
Einnig eru árshátíðir og jólahlað-
borð að fara að skella á þannig
að það er nóg um að vera í veislu-
stjórnun næstu mánuði. Svo er ég
ófrísk að mínu öðru barni sem þýðir
að það eru spennandi og skemmti-
legir tímar fram undan,“ segir hún
að lokum. gudrunjona@frettabladid.is
Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir fer með hlutverk í spennumyndinni Grimmd. Hér er hún ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur.
Flestir þekkja Júlíönu úr grínþáttunum Þær tvær sem sýndir eru á Stöð 2.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 21.09.16 - 27.09.16
1 2
5 6
7 8
109
43
Næturgalinn
Kristin Hannah
Harry Potter and the Cursed Child
J.K. Rowling
Hættuspil
Viveca Sten
Lifðu til fulls
Júlía Magnúsdóttir
7 venjur til árangurs
Stephen R. Covey
Leikvöllurinn
Lars Kepler
Fórnarlamb án andlits
Stefan Ahnhem
Á meðan ég lokaði augunum
Linda Green
Saga af nýju ættarnafni
Elena Ferrante
Hæg breytileg átt
Guðmundur Andri Thorsson
Ég leik karítas,
metnaðarfulla
rannsóknarlögreglukonu,
sem þráir ekkert heitar en
að leysa mál stÚlknanna.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r50 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
A
-6
2
F
4
1
A
B
A
-6
1
B
8
1
A
B
A
-6
0
7
C
1
A
B
A
-5
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K