Fréttablaðið - 12.10.2016, Page 2
LÖGGÆSLA Lögreglumönnum hefur
fækkað mjög á landinu öllu frá árinu
2007. Á sama tímabili hefur íbúum
landsins fjölgað og sprenging orðið
í fjölda ferðamanna sem heimsækja
landið. Rannsóknarlögreglumaður á
höfuðborgarsvæðinu segir að álagið
hafi aukist mjög og lögreglumenn
finni fyrir því.
„Við horfum á brottfall úr stéttinni
því álagið bara eykst og eykst,“ segir
Jökull Gíslason rannsóknarlögreglu-
maður. Í hans deild eiga að starfa átta
manns en að undanförnu hafa þeir
verið fjórir.
Í svari innanríkisráðherra við
fyrir spurn Bjarkeyjar Olsen Gunn-
arsdóttur, þingmanns Vinstri
grænna, kemur fram að starfandi
lögreglumenn og afleysingamenn nú
eru 642. Árið 2007 voru þeir tæplega
hundrað fleiri. Fæstir voru starfandi
lögreglumenn árið 2014 eða 622. Á
tímabilinu hefur lögreglumönnum
fækkað í öllum umdæmum nema
á Vestur- og Suðurlandi. Þar hefur
þeim fjölgað um þrjá.
Á sama tímabili hefur íbúum
landsins fjölgað um 25 þúsund og
fjöldi ferðamanna sem heimsækja
landið hefur þrefaldast. Árið 2007
voru 2,3 lögreglumenn á hverja þús-
und íbúa en talan er nú 1,9.
„Þetta hljómar eflaust eins og
úlfur, úlfur en staðreyndin er sú að
við erum fyrir löngu komin fram hjá
þolmörkum,“ segir Jökull. Hann segir
að allt í kringum sig sjái hann áhrif
þess hve fáir standa eftir. „Álags-
veikindi hafa aukist og aðrir hrein-
lega brenna út. Fólk afkastar ekki
eins miklu í þessari stöðu.“
Hann tekur dæmi um að tveir
ungir og frambærilegir lögreglu-
menn hafi hætt á dögunum til að
Veður
Í dag er spáð sunnan- og suðaustan-
hvassviðri og mikilli rigningu á öllu
sunnan- og vestanverðu landinu. Norð-
austan- og austanlands er heldur hægari
vindur og þurrt, en svo lægir snögglega
í stutta stund vestast á landinu eftir
hádegi, það hvessir þó aftur í kvöld.
Sjá Síðu 26
Friðarsamkomulaginu ógnað?
Íbúar Donetsk æfðu í gær viðbrögð við innrás herliðs. Æfingin brýtur í bága við friðarsamkomulagið sem undirritað var í Minsk í febrúar í fyrra.
Átök hafa verið í Donbas-héraði reglulega. Donetsk er höfuðborg héraðsins, sem er austast í Úkraínu við landamæri Rússlands. Fréttablaðið/EPa
800
700
600
500
400
300
200
100
0
1.600.000
1.400.000
1.200.000
1.000.000
800.000
600.000
400.000
200.000
0
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
712
646
686
659 647 624 610 620 634 629
29 2914 26 2 2 25 20 13
✿ Þróun fjölda lögreglu- og ferðamanna (2007-2016)
n Fjöldi faglærðra lögreglumanna
n Fjöldi afleysingamanna
n Fjöldi erlendra ferðamanna
Í samantektinni er ekki litið til
héraðslögreglumanna og lögreglu-
manna hjá héraðssaksóknara.
Heimild: innanríkisráðuneytið
H E I L S U R Ú M
Haust
tilboð
KING KOIL
SUMMER GLOW
QUEEN SIZE AMERÍSKT HEILSURÚM
40%
afsláttur
Fullt verð 278.710 kr.
TILBOÐSVERÐ 167.226 kr.
A
R
G
H
!!!
1
11
01
6
Lögreglumenn sækja í
önnur störf vegna álags
Frá árinu 2007 hefur lögreglumönnum á landinu fækkað um hundrað. Sam-
tímis hefur fólki fjölgað á landinu. Rannsóknarlögreglumaður telur að mála-
flokkurinn sé löngu komin yfir þolmörk og lögreglumenn muni leita annað.
ALÞINGI Frumvarp um afnám gjald-
eyrishafta var samþykkt sem lög á
Alþingi í gær. 47 greiddu atkvæði
með frumvarpinu en sextán voru
fjarverandi.
Lögin eru liður í áætlun stjórn-
valda um losun fjármagnshafta sem
kynnt var í júní 2015. Í því felast
ýmsar breytingar sem miða að því
að losa fjármagnshöft á heimili og
fyrirtæki í varfærnislegum áföng-
um.
Fimm aðrar lagabreytingar voru
samþykktar á þingi í gær. EES-reglur
á sviði opinberra innkaupa, breyt-
ingar á höfundalögum sem varða
eintakagerð til einkanota, breyt-
ingar á lögum um almennar íbúðir
og lagabreyting um fjárfestingar-
heimildir lífeyrissjóða. – jóe
Afnám hafta samþykkt á þingi
Fimm frumvörp voru samþykkt sem lög á alþingi í gær. Enn er óvíst hvenær þing-
störfum lýkur en vonast er til að það verði á næstu dögum. Fréttablaðið/Eyþór
BANdAríkIN Í lok síðustu viku
undirritaði Barack Obama Banda-
ríkjaforseti ný lög, sem eiga að
styrkja réttarstöðu fórnarlamba
nauðgana.
Samkvæmt lögunum eiga fórnar-
lömb nauðgana meðal annars rétt
á því að fram fari réttarlæknis-
fræðileg rannsókn og að niður-
stöður hennar verði geymdar með
öllum sönnunargögnum þangað til
refsing í málinu væri ekki lengur
möguleg vegna fyrningarákvæða.
Ekki verður heimilt að rukka um
greiðslu fyrir þetta. Jafnframt þarf
að gera fórnarlambinu grein fyrir
niðurstöðum rannsóknarinnar.
Þá verður að tilkynna fórnar-
lambinu skriflega með tveggja
mánaða fyrirvara ef til stendur að
eyða sönnunargögnunum. – gb
Styrkir stöðu
fórnarlamba
hefja störf á bílaleigu. „Að undan-
förnu hefur borið á því að yngra
fólkið fer, því lífsgæði snúast ekki
um meiri yfirvinnu. Lífsgæði snúast
um það að verja tíma með sínum
nánustu og sinna áhugamálum, helst
óþreyttur,“ segir Jökull.
„Veikindi hafa verið að aukast,
bæði skammtíma- og langtíma-
veikindi, en við eigum ekki tölur
um það,“ segir Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lögreglu-
manna. „Það er einnig staðreynd að
lögreglumenn hafa verið að segja
upp í auknum mæli sökum ástands-
ins.“ johannoli@frettabladid.is
Þetta hljómar
eflaust eins og úlfur,
úlfur en staðreyndin er sú að
við erum fyrir löngu komin
fram hjá þolmörkum
Jökull Gíslason
rannsóknarlögreglu-
maður
1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 6 M I ð V I k u d A G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t A B L A ð I ð
1
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
3
-A
E
2
4
1
A
E
3
-A
C
E
8
1
A
E
3
-A
B
A
C
1
A
E
3
-A
A
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K