Fréttablaðið - 12.10.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 12.10.2016, Síða 46
Í dag 19.00 Keflavík - Haukar Sport 19.15 Keflavík - Haukar Keflavík 19.15 Njarðvík - Stjarnan Njarðvík 19.15 Skallagr. - Grindav. Borgarnes Nýjast Undankeppni HM 2018: C-riðill Þýskaland - N-Írland 2-0 1-0 Julian Draxler (13.), 2-0 Khedira (17.) Noregur - San Marinó 4-1 Tékkland - Aserbaísjan 0-0 Stig þjóða: Þýskaland 9. Aserbaísjan 7, N-Ír- land , Noregur 3, Tékkland 2, San Marinó 0. Undankeppni HM 2018: E-riðill Danmörk - Svartfjallal. 0-1 Pólland - Armenía 2-1 Kasakstan - Rúmenía 0-0 Stig þjóða: Svartfj. 7, Pólland 7, Rúmenía 5, Danmörk 3, Kasakstan 2, Armenía 0. Undankeppni HM 2018: F-riðill Slóvenía - England 0-0 Slóvakía - Skotland 3-0 Litháen - Malta 2-0 Stig þjóða: England 7, Litháen 5, Slóvenía 5, Skotland 4, Slóvakía 3, Malta 0. Undankeppni EM U-21 2017: Ísland - Úkraína 2-4 1-0 Daníel Leó Grétarsson (22.), 1-1 Boryac- huk (56.), 1-2 Besyedin (75.). 2-2 Elías Már Ómarsson (88.), 2-3 Boryachuk (90.), 2-4 Zubkov (90.+4). Makedónía - Skotland 2-0 N-Írland - Frakkland 0-3 Stig þjóða: Makedónía 21, Frakkland 20, Ísland 18, Úkraína 14, Skotland 8, N-Írland 2. Makedónía vann riðilinn og tryggði sig inn á EM. Frakkar voru ekki eitt af fjórum bestu liðunum í 2. sæti og eru úr leik. Domino’s-deild kvenna í körfubolta: Valur - Snæfell 59-61 Andrea Björt Ólafs dótt ir tryggði Snæfelli annan sigurinn í röð með flautukörfu. Vals- konur hafa þar með tapað þremur fyrstu leikjum sínum á Íslandsmótinu í ár og er eina liðið án stiga. Þriðja umferðina klárast síðan með þremur leikjum í kvöld. Þúsund miðar seldust í íslandssætin í gær íslendingar hafa mikinn áhuga á því að skella sér til Finnlands næsta haust til að fylgjast með íslenska körfuboltalandsliðinu keppa á eurobasket 2017. KKí seldi þúsund miða pakka í gær þegar miðasalan hófst og með sama áfram- haldi gætu miðarnir í íslandssætin selst upp í þessari viku. Hannes s. Jónsson, for- maður KKí, var mjög ánægður með við- tökurnar í viðtali á stöð 2 í gær. erlendir ÞJálFarar vilJa Fá að ÞJálFa Kr-liðið Kristinn Kjærnested, formaður Knattspyrnudeildar Kr, er enn að leita að þjálfara fyrir næsta tímabil í Pepsi-deild karla í fótbolta en hann segir að erlendir þjálfarar hafi mikinn áhuga á að þjálfa í vesturbænum næsta sumar. Krist- inn sagði í viðtali á stöð 2 í gær að 40 til 50 umsóknir hafi komið inn á borð og margar þeirra frá þekktum erlendum þjálfurum. Fótbolti Fyrir tveimur árum var það útivallarmark á 90. mínútu sem kom í veg fyrir að íslensku strákarnir í 21 árs landsliðinu kæmust á em en í gærkvöldi var það skelfilegur seinni hálfleikur sem eyðilagði em- drauminn. íslenska liðið tapaði 4-2 fyrir úkra- ínu í laugardalnum í gær og verður því ekki meðal þeirra tólf þjóða sem keppa á em í Póllandi næsta sumar. stóri glugginn sem strákana dreymdi um að komast í opnast aldrei þrátt fyrir að þeir hefðu allt til alls til að leika eftir afrek gullkynslóðarinnar frá því fyrir fimm árum. Allt leit vel út í hálfleik allt leit vel út eftir nítján hálfleiki af tuttugu. daníel leó grétarsson hafði komið íslenska liðinu yfir á 22. mínútu og þetta góða varnarlið var nú aðeins 45 mínútum frá sæti á em. liðið skoraði ekki mörg mörk í keppninni en það var hægt að treysta á það að strákarnir gæfu ekki mörg færi á sér. íslenska liðið hafði fengið aðeins fimm mörk á sig í fyrstu níu leikjum sínum í keppninni og haldið marki sínu hreinu í fimm af síðustu sex leikjum. Það þarf því ekki að taka það fram að fjögur mörk á 45 mínútum var algjörlega út úr karakter. „við klúðruðum þessu sjálfir. í stöðunni 1-0 leið mér ágætlega en í seinni hálfleik leystist leikurinn upp þegar þeir jafna og það er nákvæm- lega það sem við vildum ekki,“ segir aron elís Þrándarson, framherji íslenska liðsins. „við fengum klaufalegt mark á okkur og það breytti leiknum. við þurftum að leysa upp leikinn og spila bara sóknarbolta. við erum ekki góðir í því,“ sagði eyjólfur sverrisson, þjálfari íslenska liðsins. íslenska liðið átti að skora miklu fleiri í mörk í hálfleik þar sem framganga strákanna minnti oft á frammistöðu a-landsliðsins á móti tyrkjum á dögunum. íslenska liðið var með algjöra yfirburði og allt leit vel út. „við áttum bara að nýta færin í fyrri hálfleik. Þá hefði þetta verið búið,“ sagði eyjólfur. um leið og úkraínumenn jöfnuðu með slysa- legu marki breyttist allt. „við þurftum að opna okkur og því fór sem fór. við áttum að klára þetta í fyrri hálfleik enda voru þeir ekki að skapa sér færi. mörkin sem við fengum á okkur voru bara klaufaleg,“ sagði eyjólfur. Hann hefur nú tvisvar á tveimur árum þurft að horfa upp á sína stráka missa af em-lestinni á síðustu stundu. „mér líður illa. sérstaklega fyrir hönd strákanna. Þeir komu sér í þessa stöðu og því miður náðu þeir ekki að nýta sér þetta tækifæri. Því miður stóðust þeir ekki prófið. seinni hálfleikur var ekki nógu öflugur hjá okkur,“ sagði eyjólfur. aron elís gat heldur ekki leynt von- brigðum sínum. Klúðruðum þessu í síðasta leik „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig tilfinningin er. Þetta er tveggja ára vinna og við klúðrum þessu í síðasta leik á heimavelli,“ sagði aron elís Hjörtur Hermannsson var fyrir- liði íslenska landsliðsins í leiknum. „Þetta er gífurlega súrt eftir alla þessa vegferð. við gefum allt í okkar leik í dag og spilum líklega besta fyrri hálfleik sem við höfum spilað í keppninni. við erum yfir á öllum vígstöðvum,“ segir Hjörtur en svo breyttist allt í seinni hálfleiknum. „Þeir lágu á okkur og markið dettur á ótrúlegan hátt. Þetta hefði kannski fallið með okkur hefði það ekki dottið inn. Það var mikið högg á fá það á sig en eftir það þurftum við að sækja þessi þrjú stig,“ sagði Hjörtur og hann horfir björtum augum til framtíðar nú þegar hann kveður yngri landsliðin. Flottir fótboltamenn á leiðinni „Þetta er súrt en eins og við sáum í þessum leik þá er hellingur af flott- um fótboltamönnum á leiðinni og það boðar bara gott fyrir íslenska knattspyrnu,“ sagði Hjörtur að lokum. gullkynslóðin, sem skrifar þessa dagana nýja sögu með a-landslið- inu, er því áfram eina 21 árs lands- liðið sem hefur komist alla leið í úrslitakeppnina. Það er hins vegar alltaf næsta ár og næsta keppni. Þessir strákar, sem misstu af stóra glugganum næsta sumar, finna vonandi aðrar leiðir í betri deildir evrópu í framtíðinni. Frakkar sátu líka eftir Það er erfitt að komast í hóp þeirra tólf þjóða sem keppa um evrópu- meistaratitilinn. stjörnum prýtt lið Frakka sat þannig eftir með sárt ennið alveg eins og það íslenska. makedóníumenn, sem töpuðu 3-0 fyrir íslandi fyrir aðeins sextán mánuðum, unnu riðilinn og verða með á em í Póllandi næsta sumar. ooj@frettabladid.is Stóri glugginn skelltist aftur Frábær byrjun 21 árs landsliðsins og 1-0 forysta í hálfleik dugði skammt á móti Úkraínumönnum í gær. Strákarnir fengu á sig fjögur mörk í seinni hálfleik, féllu á prófinu á síðustu 45 mínútum undankeppninnar og tókst því ekki að feta í fótspor gullkynslóðarinnar. Makedónía fór á EM en Ísland og Frakkland sátu eftir. „Þetta er glatað og alveg ömurleg tilfinning. Það voru allir svo spenntir fyrir þessu. Þetta er versta tilfinning sem ég hef fundið fyrir í langan tíma,” sagði Elías Már Ómars- son eftir leikinn. Hann skoraði í gær og var markahæsti leikmaður Íslands í keppninni. Hér er hann með Tómasi Inga aðstoðarþjálfara eftir leik. FRéTTABLAðIð/ERNIR Íslenska liðið fékk á sig 5 mörk á fyrstu 865 mínútum sínum í undankeppninni en sótti svo boltann 4 sinnum í markið sitt á síðustu 35 mínútunum í gær. Við fengum klaufa- legt mark á okkur og það breytti leiknum. Við þurftum að leysa upp leikinn og spila bara sóknarbolta. Við erum ekki góðir í því. Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari 1 2 . o k t ó b E r 2 0 1 6 M i Ð V i k U D A G U r22 s p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð sport 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A E 3 -C 6 D 4 1 A E 3 -C 5 9 8 1 A E 3 -C 4 5 C 1 A E 3 -C 3 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.