Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 46
Í dag
19.00 Keflavík - Haukar Sport
19.15 Keflavík - Haukar Keflavík
19.15 Njarðvík - Stjarnan Njarðvík
19.15 Skallagr. - Grindav. Borgarnes
Nýjast
Undankeppni HM 2018: C-riðill
Þýskaland - N-Írland 2-0
1-0 Julian Draxler (13.), 2-0 Khedira (17.)
Noregur - San Marinó 4-1
Tékkland - Aserbaísjan 0-0
Stig þjóða: Þýskaland 9. Aserbaísjan 7, N-Ír-
land , Noregur 3, Tékkland 2, San Marinó 0.
Undankeppni HM 2018: E-riðill
Danmörk - Svartfjallal. 0-1
Pólland - Armenía 2-1
Kasakstan - Rúmenía 0-0
Stig þjóða: Svartfj. 7, Pólland 7, Rúmenía 5,
Danmörk 3, Kasakstan 2, Armenía 0.
Undankeppni HM 2018: F-riðill
Slóvenía - England 0-0
Slóvakía - Skotland 3-0
Litháen - Malta 2-0
Stig þjóða: England 7, Litháen 5, Slóvenía 5,
Skotland 4, Slóvakía 3, Malta 0.
Undankeppni EM U-21 2017:
Ísland - Úkraína 2-4
1-0 Daníel Leó Grétarsson (22.), 1-1 Boryac-
huk (56.), 1-2 Besyedin (75.). 2-2 Elías Már
Ómarsson (88.), 2-3 Boryachuk (90.), 2-4
Zubkov (90.+4).
Makedónía - Skotland 2-0
N-Írland - Frakkland 0-3
Stig þjóða: Makedónía 21, Frakkland 20,
Ísland 18, Úkraína 14, Skotland 8, N-Írland 2.
Makedónía vann riðilinn og tryggði sig inn
á EM. Frakkar voru ekki eitt af fjórum bestu
liðunum í 2. sæti og eru úr leik.
Domino’s-deild kvenna í körfubolta:
Valur - Snæfell 59-61
Andrea Björt Ólafs dótt ir tryggði Snæfelli
annan sigurinn í röð með flautukörfu. Vals-
konur hafa þar með tapað þremur fyrstu
leikjum sínum á Íslandsmótinu í ár og er
eina liðið án stiga. Þriðja umferðina klárast
síðan með þremur leikjum í kvöld.
Þúsund miðar seldust í
íslandssætin í gær
íslendingar hafa mikinn áhuga á
því að skella sér til Finnlands næsta
haust til að fylgjast með íslenska
körfuboltalandsliðinu keppa á
eurobasket 2017. KKí seldi þúsund
miða pakka í gær þegar
miðasalan hófst og
með sama áfram-
haldi gætu miðarnir í
íslandssætin selst
upp í þessari
viku. Hannes s.
Jónsson, for-
maður KKí,
var mjög
ánægður
með við-
tökurnar í
viðtali á stöð
2 í gær.
erlendir ÞJálFarar vilJa Fá
að ÞJálFa Kr-liðið
Kristinn Kjærnested, formaður
Knattspyrnudeildar Kr, er enn að
leita að þjálfara fyrir næsta tímabil
í Pepsi-deild karla í fótbolta en
hann segir að erlendir þjálfarar
hafi mikinn áhuga á að þjálfa í
vesturbænum næsta sumar. Krist-
inn sagði í viðtali á stöð 2 í gær að
40 til 50 umsóknir hafi komið inn á
borð og margar þeirra frá þekktum
erlendum þjálfurum.
Fótbolti Fyrir tveimur árum var
það útivallarmark á 90. mínútu sem
kom í veg fyrir að íslensku strákarnir
í 21 árs landsliðinu kæmust á em
en í gærkvöldi var það skelfilegur
seinni hálfleikur sem eyðilagði em-
drauminn.
íslenska liðið tapaði 4-2 fyrir úkra-
ínu í laugardalnum í gær og verður
því ekki meðal þeirra tólf þjóða sem
keppa á em í Póllandi næsta sumar.
stóri glugginn sem strákana dreymdi
um að komast í opnast aldrei þrátt
fyrir að þeir hefðu allt til alls til að
leika eftir afrek gullkynslóðarinnar
frá því fyrir fimm árum.
Allt leit vel út í hálfleik
allt leit vel út eftir nítján hálfleiki
af tuttugu. daníel leó grétarsson
hafði komið íslenska liðinu yfir á
22. mínútu og þetta góða varnarlið
var nú aðeins 45 mínútum frá sæti á
em. liðið skoraði ekki mörg mörk í
keppninni en það var hægt að treysta
á það að strákarnir gæfu ekki mörg
færi á sér.
íslenska liðið hafði fengið aðeins
fimm mörk á sig í fyrstu níu leikjum
sínum í keppninni og haldið marki
sínu hreinu í fimm af síðustu sex
leikjum. Það þarf því ekki að taka það
fram að fjögur mörk á 45 mínútum
var algjörlega út úr karakter.
„við klúðruðum þessu sjálfir. í
stöðunni 1-0 leið mér ágætlega en í
seinni hálfleik leystist leikurinn upp
þegar þeir jafna og það er nákvæm-
lega það sem við vildum ekki,“ segir
aron elís Þrándarson, framherji
íslenska liðsins.
„við fengum klaufalegt mark á
okkur og það breytti leiknum. við
þurftum að leysa upp leikinn og spila
bara sóknarbolta. við erum ekki
góðir í því,“ sagði eyjólfur sverrisson,
þjálfari íslenska liðsins.
íslenska liðið átti að skora miklu
fleiri í mörk í hálfleik þar sem
framganga strákanna minnti oft á
frammistöðu a-landsliðsins á móti
tyrkjum á dögunum. íslenska liðið
var með algjöra yfirburði og allt leit
vel út.
„við áttum bara að nýta færin í
fyrri hálfleik. Þá hefði þetta verið
búið,“ sagði eyjólfur. um leið og
úkraínumenn jöfnuðu með slysa-
legu marki breyttist allt.
„við þurftum að opna okkur og því
fór sem fór. við áttum að klára þetta
í fyrri hálfleik enda voru þeir ekki
að skapa sér færi. mörkin sem við
fengum á okkur voru bara klaufaleg,“
sagði eyjólfur.
Hann hefur nú tvisvar á tveimur
árum þurft að horfa upp á sína
stráka missa af em-lestinni á síðustu
stundu.
„mér líður illa. sérstaklega fyrir
hönd strákanna. Þeir komu sér í
þessa stöðu og því miður náðu þeir
ekki að nýta sér þetta tækifæri. Því
miður stóðust þeir ekki prófið.
seinni hálfleikur var ekki nógu
öflugur hjá okkur,“ sagði eyjólfur.
aron elís gat heldur ekki leynt von-
brigðum sínum.
Klúðruðum þessu í síðasta leik
„Þú getur rétt ímyndað þér hvernig
tilfinningin er. Þetta er tveggja ára
vinna og við klúðrum þessu í síðasta
leik á heimavelli,“ sagði aron elís
Hjörtur Hermannsson var fyrir-
liði íslenska landsliðsins í leiknum.
„Þetta er gífurlega súrt eftir alla
þessa vegferð. við gefum allt í okkar
leik í dag og spilum líklega besta
fyrri hálfleik sem við höfum spilað
í keppninni. við erum yfir á öllum
vígstöðvum,“ segir Hjörtur en svo
breyttist allt í seinni hálfleiknum.
„Þeir lágu á okkur og markið
dettur á ótrúlegan hátt. Þetta hefði
kannski fallið með okkur hefði það
ekki dottið inn. Það var mikið högg
á fá það á sig en eftir það þurftum
við að sækja þessi þrjú stig,“ sagði
Hjörtur og hann horfir björtum
augum til framtíðar nú þegar hann
kveður yngri landsliðin.
Flottir fótboltamenn á leiðinni
„Þetta er súrt en eins og við sáum í
þessum leik þá er hellingur af flott-
um fótboltamönnum á leiðinni og
það boðar bara gott fyrir íslenska
knattspyrnu,“ sagði Hjörtur að
lokum.
gullkynslóðin, sem skrifar þessa
dagana nýja sögu með a-landslið-
inu, er því áfram eina 21 árs lands-
liðið sem hefur komist alla leið í
úrslitakeppnina. Það er hins vegar
alltaf næsta ár og næsta keppni.
Þessir strákar, sem misstu af stóra
glugganum næsta sumar, finna
vonandi aðrar leiðir í betri deildir
evrópu í framtíðinni.
Frakkar sátu líka eftir
Það er erfitt að komast í hóp þeirra
tólf þjóða sem keppa um evrópu-
meistaratitilinn. stjörnum prýtt
lið Frakka sat þannig eftir með sárt
ennið alveg eins og það íslenska.
makedóníumenn, sem töpuðu 3-0
fyrir íslandi fyrir aðeins sextán
mánuðum, unnu riðilinn og verða
með á em í Póllandi næsta sumar.
ooj@frettabladid.is
Stóri glugginn skelltist aftur
Frábær byrjun 21 árs landsliðsins og 1-0 forysta í hálfleik dugði skammt á móti Úkraínumönnum í gær.
Strákarnir fengu á sig fjögur mörk í seinni hálfleik, féllu á prófinu á síðustu 45 mínútum undankeppninnar
og tókst því ekki að feta í fótspor gullkynslóðarinnar. Makedónía fór á EM en Ísland og Frakkland sátu eftir.
„Þetta er glatað og alveg ömurleg tilfinning. Það voru allir svo spenntir fyrir þessu. Þetta er versta tilfinning sem ég hef fundið fyrir í langan tíma,” sagði Elías Már Ómars-
son eftir leikinn. Hann skoraði í gær og var markahæsti leikmaður Íslands í keppninni. Hér er hann með Tómasi Inga aðstoðarþjálfara eftir leik. FRéTTABLAðIð/ERNIR
Íslenska liðið fékk á sig 5
mörk á fyrstu 865 mínútum
sínum í undankeppninni en
sótti svo boltann 4 sinnum í
markið sitt á síðustu 35
mínútunum í gær.
Við fengum klaufa-
legt mark á okkur
og það breytti leiknum. Við
þurftum að leysa upp leikinn
og spila bara sóknarbolta.
Við erum ekki góðir í því.
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari
1 2 . o k t ó b E r 2 0 1 6 M i Ð V i k U D A G U r22 s p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð
sport
1
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
3
-C
6
D
4
1
A
E
3
-C
5
9
8
1
A
E
3
-C
4
5
C
1
A
E
3
-C
3
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K