Fréttablaðið - 12.10.2016, Blaðsíða 26
Nova kom eins og stormsveipur inn á íslenskan síma-markað fyrir tæpum áratug. Björgólfur Thor Björgólfsson
lagði til hugmyndina og fé til stofn-
unar félagsins. Eins og gengur voru
ekki margir trúaðir á verkefnið í
byrjun. Boðið var upp á ókeypis sím-
töl og margir klóruðu sér í hausnum
yfir því hvernig félagið ætti að afla
tekna. Nova var fjármagnað af eig-
andanum Novator frá byrjun sem
nú áratug síðar selur félagið í góðu
ásigkomulagi fyrir, að því að heim-
ildir herma, um 16 milljarða króna
til erlendra fjárfesta.
Eins og barnauppeldi
„Ég byrjaði sem frumkvöðull þegar
við stofnuðum bjórfyrirtækið Bravo
í Rússlandi,“ segi Björgólfur Thor
og bætir því við að hann hafi með
tímanum farið betur og betur að
átta sig á því hvar styrkleikar hans
liggja og nýta þá. „Ég er bestur í því
að fá hugmyndir, finna gott fólk
til að vinna með mér í að láta þær
verða að veruleika og selja síðan. Ég
nota stundum þá líkingu að það að
fóstra svona hugmynd er eins og að
ala upp barn. Fyrst ósjálfbjarga ung-
barn, smábarn síðan ungling og svo
einstakling sem er tilbúinn að fara út
í lífið. Þá sleppir maður og snýr sér að
næsta verkefni.“
Björgólfur segir að á tímabili hafi
hann farið í ýmis fjárfestingarverk-
efni sem byggðu á greiningu verð-
kennitalna og tækifæra í skráðum
fyrirtækjum í fullmótuðum rekstri.
Það hafi ekki alltaf gengið vel. Hann
hafi því fært sig að því sem honum
finnst gaman og það sé að byggja frá
grunni.
Tekur minnst tíu ár
Bjórverksmiðja Bravó var slíkt verk-
efni og ásamt Nova hefur Björgólfur
Thor byggt upp farsímafyrirtæki í
Póllandi og í Chile. „Það er merki-
legt að í öllum fyrirtækjunum verður
til sami kúltúrinn, sama stemning á
skrifstofunni. Þessi fyrirtæki eru
hvert í sínu heimshorninu, en öll að
breyta stöðnuðum mörkuðum. Þetta
er kjarninn í því að vera frumkvöðull
og því vil ég fylgja umfram allt.“
Hann segir að lykillinn að stemn-
ingunni sé að allt byrji þetta á hug-
myndavinnu. Fyrst sé að greina hvað
hinir séu að gera og finna svo hvernig
hægt sé að gera hlutina öðruvísi og
betur. Björgólfur Thor segir mikil-
vægt að átta sig á því að þetta er veg-
ferð sem tekur tíma. „Ég hef verið
spurður að því hvert ég muni fara
næst og ég svara því að ég viti það
ekki, en ég viti að ég þurfi að vanda
ákvörðunina vel, því þetta sé tíu ára
skuldbinding. Bravo tók tíu ár og
Nova tók tíu ár. Það er sennilega lág-
markstími á startup-verkefni.“
Framtakssjóðir (e. Private Equity)
horfa oft til fjögurra eða fimm ára
mest í sínum fjárfestingum. Novator
hefur oft verið skilgreint sem slíkur
sjóður, en í tilfelli Novator er tíma-
ramminn yfirleitt rýmri. „Það þýðir
að við getum tekið meiri áhættu í
upphafi og varið tíma í hugmynda-
vinnu. Að sama skapi þýðir það að
við getum ekki verið að skipta oft um
skoðun á stefnunni. Maður verður að
trúa á stefnuna og fylgja henni fast
eftir.“
Við dauðans dyr
Hann bætir því við að þó að sýnin sé
skýr þurfi alltaf að halda vöku sinni
og spyrja sig gagnrýninna spurn-
inga og hafa fólk í kringum sig sem
sé óhrætt við að spyrja spurninga.
„Ég held að ef einhver lykill sé til að
velgengni, þá sé það hæfileikinn til
að aðlagast hratt. Ekki það að vera
klárastur, sterkastur eða fljótastur.“
Slíkar vegferðir eru ekki án erfið-
leika og Björgólfur segir að fyrirtæk-
in eigi það sammerkt að hafa farið í
gegnum „near death experience“ og
notar þar hugtak sem vísar til sjúkl-
inga sem deyja og eru endurlífgaðir.
„Alltaf þegar þetta gerist og útlitið er
sem svartast, þá gerist eitthvað. Ein-
hver hugmynd verður til og fyrir-
tækin verða miklu sterkari á eftir.“
Lokaður inni í kofa
Björgólfur Thor hefur ekki farið var-
hluta af efnahagslægðum og efna-
hagsáföllum í vegferð fyrirtækja
sinna. Kreppa skall á með fullum
þunga í Rússlandi 1998 og fjármála-
kreppuna sem reið yfir heiminn og
hafði miklar afleiðingar hér á landi
þarf ekki að fjölyrða um. „Kreppan
1998 reið Bravo næstum að fullu og
sama hér með Nova 2008. Félagið var
enn í taprekstri og þurfti meira eigið
fé og sama gilti um Play í Póllandi.“
Staða Björgólfs Thors er sterk í
dag, en útlitið var dökkt eftir að fjár-
málakreppan skall á árið 2008. Með
stuðningi Deutsche Bank hafði hann
keypt aðra hluthafa út úr Actavis árið
2007. Í slíkum viðskiptum reyna
bankar að dreifa áhættu sinni með
sölu lána til annarra fjármálafyrir-
tækja. Deutsche Bank tókst ekki að
ljúka því áður en allar dyr lokuðust á
fjármálamörkuðum. Á þessum tíma
var Actavis stærsta einstaka áhætta
bankans og mikið í húfi. Björgólfur
Thor segist ekki geta hugsað þá
hugsun til enda hvernig farið hefði
Gleðin framar
gróðanum
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sem fjárfestir
kynnst bæði góðum tímum og slæmum. Félag hans
Novator seldi nýlega Nova og fjórfaldaði fjárfestingu
sína í félaginu. Hann segir reynsluna hafa kennt sér
að einbeita sér að styrk sínum sem hugmyndasmið.
Ég held að ef einhver
lykill sé til að
velgengni, þá sé það hæfileik-
inn til að aðlagast hratt. Ekki
það að vera klárastur,
sterkastur eða fljótastur.
Björgólfur Thor Björgólfsson hóf fjárfestingarferil sinn sem frumkvöðull. Hann horfir nú aftur til upprunans og vill einbeita sér að því að búa til nýja hluti með skemmtilegu fólki. FréTTaBLaðið/GVa
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r6 markaðurinn
1
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
E
3
-E
E
5
4
1
A
E
3
-E
D
1
8
1
A
E
3
-E
B
D
C
1
A
E
3
-E
A
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K