Fréttablaðið - 12.10.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.10.2016, Blaðsíða 24
Hagnaður Snaps Bistro tvöfaldast milli ára Velta má fyrir sér hvort Seðlabanki Íslands og fjármálastöðugleika- ráð þurfi ekki að setja bindiskyldu á erlenda ferðamenn. Að hverjum ferðamanni verði skylt að dvelja hið minnsta í einn mánuð á Íslandi til að takmarka innstreymi erlends gjald- eyris og ofris krónunnar. Þessari hug- mynd er varpað fram í Skuldabréfa- yfirliti Capacent. Í greiningunni kemur fram að umhverfið á gjaldeyrismarkaði sé farið að minna um margt á þá tíma þegar erlendir fjárfestar streymdu til landsins til að kaupa íslenska vexti. Seðlabankinn hafi komið í veg fyrir að slíkt komi fyrir aftur og sett bindi- skyldu á erlenda fjárfesta sem fjár- festa á innlendum vaxtamarkaði. Hins vegar stafi hröð og mikil gengis- styrking nú af innstreymi ferða- manna til landsins. „Þetta er eins og vatn, ef þú stíflar vatn á einum stað finnur það sér farveg annars staðar. Þetta er ákveðin ádeila að velta þessu upp. Það er að sjálf- sögðu ekki raunhæft að setja bindi- skyldu á ferðamenn. Ég er að benda á hættuna af bindiskyldunni sem Seðla- bankinn er með,“ segir Snorri Jakobs- son, ráðgjafi hjá Capacent. Fram kemur í greiningunni að fjárfesting í fasteignum og fasteigna- félögum komi að stórum hluta í stað- inn fyrir fjárfestingu í verðtryggðum skuldabréfum. Leiga fasteignafélag- anna sé verðtryggð og skapi stöðugt sjóðstreymi líkt og vaxtagreiðslur. Gengi fasteignafélaganna hafi hækkað mikið síðan í sumar. Það ætti ekki að koma á óvart í ljósi bindiskyldu á vaxtamarkaði sem beini fjárfestum inn á fasteignamarkað. „Það sem maður hefur heyrt er að erlendir fjárfestar séu að skoða það að fara inn á fasteignamarkaðinn eða til fasteignafélaganna. Því í eðli sínu er verðtryggður fasteignasamningur eins og verðtryggt skuldabréf, leigutekjur eru eins og vaxtatekjur. Leigusamn- ingar eru í eðli sínu skuldabréf. Þann- ig að ef þú mátt ekki fjárfesta í skulda- bréfum með vöxtum þá geturðu alveg eins farið á fasteignamarkaðinn og fjárfest þar. Stoppir þú flæðið á einum stað þá fer það á annan,“ segir Snorri. „Hvar ætla þeir að stoppa í bindi- skyldunni, er æskilegt að fjármagnið streymi inn á fasteignamarkað sem grefur undan verðbólgumarkmiði Seðlabankans ef verður mikil þensla þar?“ spyr Snorri.  Fram kemur í greiningunni að gengi krónunnar styrkist stöðugt og hafi krónan styrkst um 2,9 prósent frá ágústlokum. Gengi pundsins og norsku krónunnar gagnvart krónu hafi ekki verið lægra síðan í mars 2008. Ef gengisstyrking krónunnar heldur áfram er þess ekki langt að bíða að gengi flestra gjaldmiðla gagn- vart krónu verði svipað og fyrir banka- hrun. Jafnframt eru breytingar í stýri- vöxtum taldar ólíklegar fram að ára- mótum. saeunn@frettabladid.is Bindiskylda á túrista gæti komið næst Capacent gagnrýnir bindiskyldu Seðlabankans á erlenda fjárfesta sem fjárfesta á innlendum vaxtamarkaði og bendir á að ef fjármagn streymir í staðinn inn á fasteignamarkað geti það grafið undan verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Capacent veltir þeirri hugmynd upp að hverjum ferðamanni verði skylt að dvelja í að minnsta kosti einn mánuð á Íslandi til að takmarka innstreymi erlends gjaldeyris og ofris krónunnar. Fréttablaðið/Ernir Þetta er ákveðin ádeila að velta þessu upp. Það er að sjálf- sögðu ekki raunhæft að setja bindiskyldu á ferðamenn. Snorri Jakobsson, ráðgjafi hjá Capacent Borgarstjórinn í Reykjavík býður til málþings um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Dregin verður upp heildstæð mynd af framkvæmdum og framkvæmdaáformum á húsnæðismarkaði í Reykjavík. Áhersla verður lögð á samþykkt verkefni og framkvæmdir sem eru nýlega hafnar, en einnig verður gefin innsýn í verkefni á undirbúningsstigi. Málþingið verður í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október og hefst það kl. 8.30, en húsið opnar kl. 8.00 með léttri morgunhressingu. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Dagskrá: kl. 08.30 Kynning borgarstjóra: Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. kl. 09.30 Kynning á ýmsum uppbyggingarverkefnum kl. 11.00 Borgarlínan og þétting byggðar kl. 11.15 Greining á fasteignamarkaði Ný skýrsla Capacent reykjavik.is/ibudir – nýjar íbúðir í Reykjavík Nýjar íbúðir í Reykjavík Ísfélag Vestmannaeyja hagnaðist um 11,4 milljónir dollara, jafnvirði 1.300 milljóna íslenskra króna, á árinu 2015. Hagnaðurinn dróst saman um 13 milljónir dollara, 1.500 milljónir króna, milli ára. EBITDA-framlegð var 27,6 prósent árið 2015, samanborið við 24,7 pró- sent árið áður. Í árslok námu eignir félagsins 288,9 milljónum dollara, jafnvirði 33 milljarða íslenskra króna, samanborið við 271 milljón dollara í árslok 2014. Bókfært eigið fé í árslok var tæplega 130 millj- ónir dollara, jafnvirði 14,9 milljarða króna og eiginfjárhlutfall félagsins 45 prósent. Í árslok 2015 voru hluthafar í félaginu 135 en voru 137 í ársbyrjun. ÍV fjárfestingarfélag á um 89 prósent útistandandi hlutafjár og er eini hlut- hafi félagsins sem á yfir 10 prósent hlut. ÍV fjárfestingarfélag er nánast alfarið í eigu Guðbjargar Matthías- dóttur í Vestmannaeyjum. Rekstrartekjur móðurfélagsins námu samtals 115,6 milljónum dollara, 13,2 milljörðum íslenskra króna, árið 2015, samanborið við 105,9 milljónir dollara árið áður. Helstu starfsþættir Ísfélagsins eru frysting sjávarafurða, fiskimjöls- og lýsisframleiðsla og útgerð fiskiskipa. Félagið á 50 prósenta hlut í Iceland Pelagic ehf. Meðalfjöldi starfa hjá móðurfélag- inu var 249 á árinu 2015, saman- borið við 270 árið áður. Heildar- laun og þóknanir til stjórnenda samstæðunnar á árinu 2015 námu 1,3 milljónum dollara, tæplega 149 milljónum króna. – sg Ísfélag Vestmannaeyja hagnast um 1,3 milljarða Stærsti eigandi Ísfélagsins er að mestu í eigu Guðbjargar. Fréttablaðið/anton Veitingastaðurinn Snaps hagnaðist um 34 milljónir á síðasta ári, saman- borið við tæplega 17 milljóna króna hagnað árið áður. Hagnað- urinn ríflega tvöfaldaðist því milli ára. Eignir félagsins í árslok námu 111,9 milljónum króna, samanborið við 96,2 milljónir í árslok 2014. Eigið fé í árslok nam 28,2 milljónum króna, samanborið við 19,4 milljónir króna árið áður. Hlutafé félagsins nam í lok tímabilsins 3,0 milljónum króna, allt útistandandi hlutafé var í eigu tveggja aðila, Sæmundar ehf. og B48a ehf. Fram kemur í ársreikningnum að ekki var búið að taka ákvörðun um greiðslu arðs til hluthafa. Snaps var opnaður árið 2012. Árið 2015 var Sigur- gísli Bjarnason fram- kvæmdastjóri Snaps, en hann og Stefán Mel- sted voru þá eigendur staðarins. Árið 2016 urðu Birgir Bieltvedt og eigin- kona hans, Eygló Björk Kjartansdóttir, hluthafar í Snaps. Þau eiga félagið Eyju sem á meirihluta í Jubileum sem rekur veitingahúsin Jómfrúna og Snaps. – sg 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r4 markaðurinn 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 3 -F 3 4 4 1 A E 3 -F 2 0 8 1 A E 3 -F 0 C C 1 A E 3 -E F 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.