Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 4
26. nóvember kl. 20.00 Jólatónleikar í Grafarvogskirkju Miðala á miði. fornleifar Sérfræðingar Forn- leifastofnunar Íslands vinna með þá kenningu að einn þeirra gripa sem fannst í landi Ytri-Ása í Skaftár- tungu sé örvaroddur. Sé sú raunin er fornleifafundurinn enn sérstakari en áður var talið þar sem örvaroddar hafa tiltölulega sjaldan fundist í kumlum á Íslandi. Eins og komið hefur fram fundu gæsaskyttur upphaflega heillegt sverð á bökkum Eldvatns sem mun vera frá 10. öld, en um mánuði síðar fann annar hópur gæsaveiði- manna mannabein og nokkra smá- hluti aðeins í nokkurra tuga metra fjarlægð frá fundarstað sverðsins. Staðfest hefur verið að tveir þessara muna eru spjótsoddur og hnífur, en sá þriðji er hugsanlega örvaroddur sem verður sannað, eða afsannað, með frekari rannsóknum á næstu dögum. Guðrún Alda Gísladóttir, forn- leifafræðingur hjá Fornleifastofnun, hefur, ásamt kollega sínum, Mjöll Snæsdóttur, annast greiningu á grip- unum sem fundust fyrir Minjastofn- un. „Gripurinn er mjög illa farinn, og líkt og með spjótsoddinn hefur hann verið afmyndaður eins og tíðkaðist með gripi sem voru lagðir með þeim sem féllu frá á þessum tíma – ekki síst vopn. Þetta gæti verið örvaroddur en kannski eitthvað allt annað,“ segir Guðrún Alda. Sé um örvarodd að ræða er ljóst að kumlið er ríkulegt á íslenskan mæli- kvarða. Telja má líklegt að aðeins hluti gripanna sem upphaflega voru lagðir þar hafi fundist enda kumlið illa farið. Hnífurinn sem fannst er stór og mikill, segir Guðrún Alda og gæti verið vopn frekar en vinnutæki. Spjótsoddurinn er jafnframt sér- stakur, en aðeins hafa fundist um 80 spjót hér á landi frá söguöld til þessa. Örvaroddarnir eru enn færri eða 15 eftir því sem næst verður komist, og þar af voru sex í sama kumlinu. Hafa ber í huga að bogi og örvar voru fyrst Kumlið í Ásum telst ríkulegt Einn af þeim gripum sem fundust í kumli fornmannsins í Skaftártungu gæti verið örvaroddur. Slíkur fund- ur er sjaldgæfur hér. Margt bendir til að ekki sé um stakt kuml að ræða heldur svokallaðan kumlateig. Mjaðmabein fornmannsins marandi í hálfu kafi sem sýnir að lítið er í raun eftir af kumlinu. Mynd/Uggi 160 fundarstaðir kumla, eða rétt rúmlega, eru þekktir á Ís- landi og um 330 kuml Eina sem hægt er að gera er að rannsaka svæðið og athuga hvort kumlin séu jafnvel fleiri, en reynslan sýnir að þar sem kuml finnst eru þau oft fleiri sem þar leynast í næsta nágrenni Uggi Ævarsson, minjavörður Suður- lands flóttamenn Hælisleitandanum sem sendur var til baka frá Noregi í síðustu viku var hent út úr gistiskýli á vegum Útlendingastofnunar við Bæjarhraun í Hafnarfirði á laugar- dag. Þetta staðfestir Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlend- ingastofnunar. Ástæðu brottrekstr- arins má rekja til þess að maðurinn, sem er Berbi frá Norður-Afríku, á að hafa brotið húsreglur gistiskýlisins. Berbanum er gefið að sök að hafa neytt áfengis innan dyra í gistiskýl- inu en það er brot á húsreglum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ber- banum í gær var hann á biðstofu geðdeildar Landspítalans. „Ég er kominn aftur á spítalann, ég skráði mig inn á föstudag vegna þess að mig langaði að yfirgefa þennan heim. Ég dvaldi þar eina nótt og fór svo aftur í gistiskýlið. Þegar ég kom í gistiskýlið var mér hent út og sagt að ef ég sneri aftur yrði hringt á lögregluna. Ég er búinn að vera að skera mig og ég þarf hjálp og er þess vegna kominn aftur á spítalann.“ Síðustu nætur hefur Berbinn dvalið á götunni. „Mér líður eins og ég sé rusl í augum þessa fólks,“ segir Berbinn. Hann hefur engar upplýs- ingar fengið frá Útlendingastofnun um hvort hann verði  sendur úr landi. – þh Berbanum gert að yfirgefa gistiskýlið gistiskýlið við Bæjarhraun í Hafnarfirði. FréttaBlaðið/SteFán DanmÖrK Aðildarríki Evrópusam- bandsins við Eystrasalt hafa ákveðið að minnka þorskkvótann í vestur- hluta Eystrasalts um 56 prósent. Evrópusambandið hefur samþykkt samkomulagið sem tekur gildi frá og með næstu áramótum. Danskir sjómenn segja ekki hægt að lifa af helmingi núverandi tekna. Umhverfis- og matvælaráðherra Danmerkur, Esben Lunde Larsen, er ekki beinlínis hrifinn af samkomu- laginu en kallar það hálfan sigur í viðtali við danska ríkisútvarpið. Upprunalega tillagan hafi verið að minnka þorskkvótann um 88 pró- sent og Svíar og Pólverjar hafi verið fylgjandi tillögu fiskifræðinganna. – ibs Þorskkvótinn helmingaður danskir sjómenn segja ekki hægt að lifa af helmingi núverandi tekna. FréttaBlaðið/SteFán Samfélag Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hafnaði beiðni sjónvarpsstöðvarinnar N4 um styrk á sveitarstjórnarfundi í síðustu viku. Sjónvarpsstöðin óskaði eftir styrk upp á 250 þúsund krónur til að framleiða 12 þátta seríu „Að sunnan“. María Björk Ingvadóttir, framkvæmda- og framleiðslustjóri N4, sendi sveitarstjórninni bréf þar sem verkefnið var kynnt en hafði ekki erindi sem erfiði og hafnaði sveitarstjórnin beiðninni. N4 var stofnað árið 2000 og er eini fjöl- miðillinn sem er með höfuðstöðvar sínar og ritstjórn utan höfuðborgar- svæðisins. – bbh N4 neitað um styrk frá hreppi SamgÖngur „Ég fann fyrst fyrir bílhræðslu á ævinni þegar ég fór um Vatnsnes,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, sem verið hefur sveitar- stjóri í Húnaþingi vestra frá vorinu 2016. Eins og fram hefur komið í Frétta- blaðinu eru íbúar Húnaþings afar ósáttir við ástand vegarins um Vatnsnes. Byggðaráð sveitarfélagsins bók- aði í gær enn eina athugasemdina vegna þessa.  Lýst er sérstökum áhyggjum vegna sprengingar í umferð ferðamanna þótt sú þróun sé sögð að mörgu leyti jákvæð og störfum við ferðaþjónustu á svæð- inu hafi fjölgað mikið. Fjöldi þeirra sem heimsóttu upplýsingamiðstöðina á Hvamms- tanga hefur áttfaldast á aðeins fimm árum, þeir voru  fimm þúsund  á árinu 2011 en eru orðnir 38 þúsund það sem af er þessu ári. „Nú er staðan orðin þannig að víða er vegakerfið komið að ystu þolmörkum, sérstaklega Vatnsnes- vegur, sem er mjög vinsæl ferða- mannaleið. Vegurinn er langur, erfiður og víða úr sér genginn,“ segir byggðaráðið í bókun sinni um málið. Þorbjörg Ásbjarnardóttir,  sem býr á Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi, segir íbúana hafa þungar áhyggjur af umferð ferðamanna sem sé stýrt út á Vatnsnes að skoða Hvítserk og seli. Þeir kunni fæstir að aka á malarvegum. „Annaðhvort keyra þeir á þrjátíu og hleypa ekki fram úr eða maður mætir þeim á 100 kílómetra hraða. Við höfum bara miklar áhyggjur af öryggi og velferð barnanna okkar sem þurfa að keyra þarna um veginn í skólabíl,“ segir Þorbjörg Ásbjarnardóttir á Þorgrímsstöðum - gar Túristar á þjóðvegunum vekja ótta með heimafólki á Vatnsnesi Iðulega yfir sumar- tímann parkera ferðamenn á veginum og í kantinum til að sofa. Þeir eru ofan í giljum, á blindhæðum – bara alls staðar. Þorbjörg Ásbjarnardóttir  á Þorgrímsstöðum og síðast veiðitæki og ekki mikil þörf fyrir slík veiðitæki hérlendis. Uggi Ævarsson, minjavörður Suð- urlands, segir að varðandi fornleifa- fundinn megi segja að unnið sé með tvær sviðsmyndir. Annars vegar að sverðið sé úr sama kumli og beinin, ásamt þeim gripum sem fundust þar, og hins vegar að um tvö kuml sé að ræða. Erfitt sé hins vegar að kveða upp úr með það vegna þess hversu illa vatnagangurinn í Eldvatninu hefur leikið svæðið allt. „Það eina sem hægt er að gera er að rannsaka svæðið og athuga hvort kumlin séu jafnvel fleiri, en reynslan sýnir að þar sem kuml finnst eru þau oft fleiri sem þar leynast í næsta nágrenni,“ segir Uggi, en þekkt er að um þriðjungur þeirra kumla sem hér hafa fundist eru í svokölluðum kumlateigum þar sem eru fleiri en eitt kuml á sama stað. „Það má líka segja að það megi undrum sæta hversu fá kuml hafa fundist hér- lendis,“ segir Uggi en oftast er ástæða þess að kuml finnst að á staðnum hafi jörð blásið upp eða landbrot sé af öðrum ástæðum, en eins vegna framkvæmda. svavar@frettabladid.is Ég er búinn að vera að skera mig og ég þarf hjálp og er þess vegna kominn aftur á spítalann. Hælistleitandi frá Norður-Afríku 1 2 . o K t ó b e r 2 0 1 6 m i Ð V i K u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 3 -C 1 E 4 1 A E 3 -C 0 A 8 1 A E 3 -B F 6 C 1 A E 3 -B E 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.