Fréttablaðið - 12.10.2016, Síða 27

Fréttablaðið - 12.10.2016, Síða 27
fólk kynningarblað 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r Krabbameinsfélagið hrindir af stað árvekniátaki um krabbamein tvisvar á ári. Í október snýr það að konum en að körlum í mars. Að hverju sinni er átakinu valin yfir skrift og að þessu sinni er hún #fyrirmömmu. „Á hverju áru setjumst við niður og förum yfir hvaða krabbamein er brýnast að minna á. Ástæð- an fyrir því að brjóstakrabba- mein varð fyrir valinu í ár er sú að reynslan sýnir okkur að við þurfum sífellt að vera að minna á brjóstakrabbameinsleitina. Að- sóknin eykst alltaf í kringum ár- vekniátökin okkar en dvínar því miður fljótlega eftir að við hættum að minna á. Það er mjög miður því skipulögð leit er öflugasta vopnið í baráttunni gegn brjóstakrabba- meini á byrjunarstigi þegar lækn- ing er möguleg,“ segir Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameins- félagsins. Kolbrún segir alltaf reynt að finna þema sem vekur athygli og hreyfir við fólki. „Það er því miður ekki nóg að segja bara; munið að mæta.“ Konur sem fá boð um að koma í skoðun eru á aldrinum 40-69 ára. „Þegar við fórum að hugsa um konur sem hafa greinst á þessum aldri barst talið að því hvað þetta snertir yfirleitt marga og er mikið áfall fyrir fjölskylduna. Margar þessara kvenna eru mæður og/eða eiga mæður og niðurstaðan var sú að mömmur eru svolítið miðjan í þessu. Við eigum það nánast öll sameiginlegt að eiga móður hvort sem hún er með okkur eða ekki og flestir eru ánægðir með og þakk- látir fyrir sína mömmu. Okkur fannst þetta flötur sem væri sam- einandi og hlýr. Við vildum ýta undir að fólk þakkaði mömmu og um leið að hvetja mömmur og allar konur, ungar sem aldnar til að fara í skoðun,“ segir Kolbrún en konur eru hvattar til að mynda sig með MöMMuM boðið í kaffi Árvekniátak Krabbameinsfélagsins um brjóstakrabbamein hófst með viðhöfn í Kringlunni 29. september og nær hápunkti á bleika daginn 14. október þegar fólk og fyrirtæki sameinast um að minna á átakið með því að klæðast bleiku, skreyta með bleiku eða bjóða upp á bleikar veitingar. Átakið í ár ber yfirskriftina #fyrirmömmu. Kolbrún segir alltaf reynt að finna þema sem hreyfir við fólki og vekur athygli. „Þegar við fórum að hugsa um konur sem hafa greinst á aldrinum 40-69 ára barst talið að því hvað þetta er alltaf mikið áfall fyrir fjölskylduna. Margar þessara kvenna eru mæður og/eða eiga mæður og niðurstaðan var sú að mömmur eru svolítið miðjan í þessu. MYND/GVA Vera Einarsdóttir vera@365.is mæðrum sínum eða birta gaml- ar mæðgna- eða mæðginamynd- ir og senda á Krabbameinsfélag- ið sem deilir þeim á samfélags- miðlum. „Eins hvetjum við fólk til að bjóða mömmu sinni í mömmu- kaffi á bleika daginn, föstudaginn 14. október. Hvort sem er heim eða á vinnustaðinn.“ Átakinu í ár er þó ekki aðeins ætlað að minna konur á að fara í skoðun heldur er líka verið að safna fyrir nýjum leitartækjum og rennur allt söfnunarfé bleiku slaufunnar óskert til endurnýjun- ar tækjabúnaðar til skipulagðrar brjóstakrabbameinsleitar. „Sam- hliða endurnýjun tækja hyggjumst við uppfæra hugbúnaðinn okkar og taka upp nýtt boðunarkerfi. Í dag fá konur bréf á tveggja ára fresti sem hugsanlega endar á ísskápn- um en getur líka týnst og gleymst. Með boðunar kerfinu getum við bókað konu í tíma, sent hann til hennar og beðið hana um að breyta ef hún kemst ekki. Kerfið er notað í Svíþjóð og hefur gefið góða raun.“ Margir hafa lagt átakinu í ár lið. Hér má sjá þekktar konur og mæður með börnum sínum. 40+ FEMARELLE REJUVENATE l Minnkar skapsveiflur l Stuðlar að reglulegum svefni l Eykur orku l Eykur teygjanleika húðar l Viðheldur eðlilegu hári 60+ FEMARELLE UNSTOPPABLE l Inniheldur kalsíum og D3-vítamín sem eru nauð- synleg til að styrkja bein að innan l Stuðlar að heilbrigðri slímhúð legganga l Eykur liðleika l Stuðlar að reglulegum svefni l Eykur orku sem stuðlar að andlegu jafnvægi 50+ FEMARELLE RECHARGE l Slær hratt á einkenni (hitakóf og nætursviti minnka) l Stuðlar að reglulegum svefni l Eykur orku l Eykur kynhvöt l Hefur engin áhrif á vef í brjóstum eða legi NÝTT NÝTT Femarelle skiptir Valgerði miklu máli. Selma Björk er mjög ánægð með áhrifin af Femarelle. Eva Ólöf er hressari þegar hún notar Femarelle. 200 krónur af hverri seldri vöru rennur til bleiku slaufunar 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A E 3 -D F 8 4 1 A E 3 -D E 4 8 1 A E 3 -D D 0 C 1 A E 3 -D B D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.