Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 39
Björgólfur Thor og Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, geta fagnað góðum árangri. FréTTaBLaðið/GVa Fjöldi notenda í farsímafélögum í eigu Novator ef Actavis hefði verið skráð á markað þegar óveðrið skall á og rekstraráætl- anir brugðust. „Þetta var auðvitað mjög erfitt en eftir á að hyggja var það ekki al slæmt. Það voru hagsmunir okkar og bank- ans að láta þetta ganga; annaðhvort myndum við deyja saman eða bjarga hvor öðrum. Þetta var eins og að vera lokaður inni í kofa í þrjú ár sem manni finnst auðvitað ekki skemmti- legt, en er betra en að vera úti á víða- vangi þegar svona fellibylur gengur yfir.“ Þegar upp var staðið hafði tek- ist að bjarga fyrirtækinu, bankinn fékk sitt og hann sjálfur stóð sterkur eftir. Deutsche Bank er aftur kominn í vandræði, en af öðrum ástæðum. „Þeir geta ekki kennt mér um í þetta skiptið, ég er búinn að gera upp allar skuldir við þá,“ segir Björgólfur. Enn tækifæri í lyfjum Björgólfur Thor horfir áfram á lyfja- geirann. „Ég þekki þann geira mjög vel og marga innan hans. Ég held að það liggi mikil tækifæri þar á næstu árum, einmitt vegna þess hve sam- þjöppunin hefur verið mikil. Ég er að skoða það og hef þegar stofnað lyfjafyrirtækið Xantis Pharma, með höfuðstöðvar í Sviss. Undirbúnings- vinnan er því í fullum gangi, en ég reikna með að stóru skrefin verði tekin á næstu tveimur árum. Þarna er markaðurinn að breytast og þá þarf maður að hugsa hvað það hafi í för með sér og hvernig maður þurfi að hugsa öðruvísi, því þar liggja tæki- færin.“ Björgólfur Thor segir að öll reynsla kalli á endurskoðun. Bókarskrif í kjölfar efnahagshrunsins hafi fengið sig til að líta í eigin barm. „Það var einn í tæknideild Nova sem sagði í söluferlinu í áreiðanleikakönnun- inni hvað það væri frábært að fara svona í gegnum hlutina og um leið lærði maður hvernig maður hefði viljað gera hlutina öðruvísi. Það sama gildir um það þegar ég fór í gegnum ferilinn í bókarskrifum. Þar sá ég skýrt hvernig ég gerði suma hluti rétt og aðra hefði ég viljað gera öðruvísi eða hreinlega sleppa þeim.“ Nenni ekki lengur veseni Hann segir að það hafi verið mikið þroskaferli. „Ég lærði meira um sjálf- an mig og svo hef ég líka elst og von- andi þroskast.“ Staðan er orðin góð og þá vaknar spurningin hvers vegna að halda áfram? Hvað drífur menn áfram. „Ég held að þetta snúist um að ögra sér. Eins og skákmeistari leitar að því að finna nýja leiki og verðuga andstæðinga. En ég hef breyst. Fjár- festingarstefnan hefur breyst og í dag spyr ég mig fyrst: Er þetta skemmti- legt verkefni, með skemmtilegu fólki á skemmtilegu svæði? Við eigum takmarkaðan tíma á jörðinni og ég nenni ekki að eyða mínum tíma í leiðinleg verkefni með leiðinlegu fólki og miklu veseni, jafnvel þótt það sé hægt að hagnast á því. Þegar ég var yngri hefði ég tekið slaginn en ekki núna.“ Hann segist horfa meira á tímann sem hann geti varið með fjölskyld- unni. „Eignasafnið vex ekki jafn hratt og áður, en það er meðvitað. Það er ekki vegna þess að það séu ekki tæki- færi heldur er þetta meðvitað til að hafa meiri balans í lífinu. Ég er með börn á þeim aldri að þau vilja vera með mér og finnst það gaman. Ég veit að eftir tíu ár eða svo skipti ég þau minna máli og þá get ég aftur farið að vinna meira.“ Suður-ameríka í sigti Undanfarið hefur Novator verið í þremur greinum, lyfjageiranum, fjarskiptageiranum og svo í CCP og gagnaveri Verne Holding. Hann segir að jafnvel megi tala um þetta sem tvo geira, heilsu og stafræna veröld. „Ég vil vera á svæðum þar sem hagkerfi er að koma úr niðursveiflu og er að byrja að sýna einkenni þess að þau séu að rétta úr kútnum. Ég hef verið í 25 ár í Austur-Evrópu og mér finnst ég vera búinn með það svæði. Bandaríkin koma ekki til greina. Þar eru allt of margir sem kunna betur það sem ég kann. Þá er eftir Asía, Afríka og Suður-Ameríka. Ég er ekki spenntur fyrir Asíu. Þar er kúltúrinn erfiður og hentar mér ekki og Afríka er erfið, allt of mörg lönd og erfitt að ná stærðarhagkvæmni. Þá er Suður- Ameríka eftir og ég er þegar byrjaður þar með símafélagið Wom í Chile.“ Björgólfur Thor Björgólfsson hóf fjárfestingarferil sinn sem frumkvöðull. Hann horfir nú aftur til upprunans og vill einbeita sér að því að búa til nýja hluti með skemmtilegu fólki. FréTTaBLaðið/GVa 150000 120000 90000 60000 30000 0 ✿ Fjöldi viðskiptavina Nova 30.000 60.000 82.500 96.636 112.930 126.287 136.876 145.734 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 Björgólfur Thor segir að menn- ingin í Suður-Ameríku minni sig um margt á Austur-Evrópu. Margt sé líkt með Suður-Evrópu, Austur- Evrópu og Suður-Ameríku. „Þetta er spennandi svæði sem er að koma út úr erfiðu tímabili. Gallinn er að það er langt að fara til að heimsækja fyrirtækin.“ Í kjarna samstarfsmanna Björg- ólfs Thors í Novator eru ekki margir. Starfsmenn eru innan við tuttugu og hafa unnið lengi saman. „Ég var um tíma kominn með þrjár hæðir í London, þar sem við bættum við fólki með fjölgun verkefna. Maður réð fólk til að ráða við fleiri tækifæri og svo þurfti maður að finna fleiri tækifæri svo allir hefðu nóg að gera. Þetta var vítahringur. Nú er ég með þak á fjöldanum og vil ekki fara yfir tuttugu. Ef við ráðum ekki við verk- efnin með þessum fjölda þá segi ég að við skulum frekar sleppa þeim og einbeita okkur að færri verkefnum.“ Björgólfur Thor segist afar ánægður með að erlendir fjárfestar hafi keypt félagið. „Þegar maður stofnar fyrirtæki og elur það upp er manni ekki sama hvert það fer. Þetta verður eins og barnið manns. Nova er fyrirtæki fólksins. Það hefur stuðlað að verðlækkun á fjarskipta- markaði og margoft verið kosið vinsælasta fyrirtækið. Ég vil tryggja að það verði áfram þessi fríski leik- maður á markaðnum. Ég held að ef það hefði farið í svipað eignarhald og stór fyrirtæki á Íslandi, þá væri meiri hætta á að það staðnaði og færi í sama far og hinir.“ Til Íslands úr vinnunni Hópmálsókn á hendur Björgólfi Thor var vísað frá í Hæstarétti í febrúar. Björgólfur segist þekkja þá menn, sem standi á bak við málsóknina. „Það er alveg á hreinu að þeir eru ekkert að fara að hætta þessari vitleysu. Ég get ekkert gert við slíkri þráhyggju, ég verð bara að láta þetta yfir mig ganga. Þetta eru minni háttar óþægindi og ég velti þessu nú ekkert mikið fyrir mér. Ég vil einbeita mér að því að byggja upp fyrirtæki og skapa störf.“ Við söluna á Nova hefur Björg- ólfur Thor sagt að hann hyggist ekki nota afraksturinn til fjárfestingar hérlendis. Sér hann þá ekki tækifæri hér? „Hér eru örugglega mörg tæki- færi, bara ekki fyrir mig. Ég er mjög ánægður með að erlendir fjárfestar skuli hafa keypt Nova og ég vona að við fáum fleiri erlenda fjárfesta inn í verkefni hérlendis og stækki kerfið. Við erum lítil og einsleit og stutt á milli allra og mikil innri vensl. Ég þrífst ekki vel í því. Ég lít svo á að allur heimurinn sé undir í mínum fjárfestingum. Á Íslandi vil ég fjár- festa í ferðalögum, góðum mat og því að njóta landsins. Ég elska Ísland og Íslendinga en ég vil koma hingað úr vinnunni en ekki í hana.“ 2 milljónir Wom Í CHiLE PLay Í PóLLaNdiNoVa á ÍSLaNdi 15 milljónir 146 þúsund markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . o K t ó b e R 2 0 1 6 1 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A E 3 -E E 5 4 1 A E 3 -E D 1 8 1 A E 3 -E B D C 1 A E 3 -E A A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.